Eldri færslur fyrir 'heimska og fáfræði'

Ofstæki AMX og Anders Breivik

Það er nú líklega að bera í bakkafullan lækinn að fara að býsnast yfir ósmekklegheitum og heimsku höfunda vefsins AMX, einum helsta vettvang íslenskra hægriróttæklinga. Undanfarna daga hafa skrif AMX og þó sérstaklega „smáfugla“ þeirra um hryðjuverkin í Noregi nefnilega vakið verðskuldaða athygli. Frá degi til dags í Fréttablaðinu talar um „hræfugla“. Ég hef verið [...]

Samsæri vinstrimanna gegn sögunni

Um daginn bárust af því fréttir að söguþekking bandarískra ungmenna væri ekki upp á marga fiska: American students are less proficient in their nation’s history than in any other subject, according to results of a nationwide test released on Tuesday, with most fourth graders unable to say why Abraham Lincoln was an important figure and [...]

Póstmódernísk sagnfræði frú Palin

Þekking eða túlkun Söru Palin á Bandarikjasögu vakti mikla athygli í síðustu viku, en þá breytti hún Paul Revere í einhverskonar NRA talsmann og bjöllufífl sem hefði riðið um góland, hringjandi bjöllum og skjótandi viðvörunarskotum, allt til að vara breska herinn við Bandaríkjamönnum. Síðan þá hefur Palin komið fram og ítrekað þessa sagnfræði sína: PALIN: [...]

Bandaríkjasaga a’la Palin

Bloggarar og fjölmiðlafólk í bandaríkjunum hefur skemmt sér konunglega yfir mögnuðum söguskýringum Söruh Palin. Hér er hún að rifja upp söguna af Paul Revere: He who warned, uh, the British that they weren’t going to be taking away our arms uh by ringing those bells and making sure as he’s riding his horse through town [...]

Eyðing regnskóga leysir gróðurhúsavandann

Ein skemmtilegasta frétt undanfarinna daga er tvímælalaust sú að Dana Rohrabacher, þingmaður repúblíkana frá Kalíforníu, lagði til, í fúlustu alvöru að því er virðist, að Bandaríkin myndu bregðast við loftslagsbreytingum af mannavöldum með því að niðurgreiða eyðingu regnskóganna. Rohrabacher setti þessa athyglisverðu hugmynd fram við vitnaleiðslur í þinginu. NYT: On the witness stand was Todd [...]

Nauðganahátíðin í Eyjum

Stórfurðulegt viðhorf Páls Scheving, formanns „Þjóðhátíðarnefndar“, til nauðgana og Stígamóta hefur vakið verðskuldað umtal og dregið athygli almennings að þeim hugsunarhætti sem ræður ríkjum meðal skipuleggjenda fylleríissamkomu sem haldin er hverja verslunarmannahelgi í Vestmannaeyjum. Páll hélt því fram á borgarafundi í Vestmannaeyjum að nærvera Stígamóta á þessari „Þjóðhátíð“ gæti með einhverjum hætti fjölgað nauðgunum á [...]

Vanhæfur nóbelsverðlaunahafi

Eitt besta dæmið um málþófsstjórnmál Repúblíkana er sú sérkennilega staða sem hefur komið upp vegna tilskipunar Peter Diamond, prófessor í hagfræði við MIT, í bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna. Sænska akademían hefur tilkynnt að Diamond muni hljóta nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár, en Obama hefur engu að síður ekki tekist að fá samþykki öldungadeildarinnar fyrir tilnefningu Diamond. Af hverju? [...]

Múslimadekur í Campbellsúpum

Pamela Geller, einn af helstu talsmönnum þess að komið verði í veg fyrir að múslimar megi innrétta félagsmiðstöð og bænahús tveimur húsaröðum frá „ground zero“* hefur uppgötvað að það er ekki bara í nágrenni við „ground zero“ sem íslamófasismi er að leggja undir sig Bandaríkin. Ónei. Geller hefur nefnilega uppgötvað að Campell súpufyrirtækið hfur lagst [...]

WaPo: Heimska bandarískra stjórnmála

E.J. Dionne Jr., einn af betri dálkahöfundum og stjórnmálaskýrendum Bandaríkjanna skrifaði góða grein í Washington Post í gær þar sem hann veltir fyrir sér því sem hann kallar heimsku bandarískra stjórnmála. Upplegg greinarinnar er próvókerandi spurning: Can a nation remain a superpower if its internal politics are incorrigibly stupid? Dionne bendir í þessu sambandi á [...]

Fjárlagahallinn leystur með snyrtilegri brellu

Tvö helstu baráttumál repúblíkana undanfarnar vikur hafa verið 1) að fjárlagahallanum verði eytt og 2) að skattalækkanir Bush, sem lögum samkvæmt eiga að renna út í ár, verði framlengdar. Í þessu felst ákveðin þversögn, því fjárlagahallinn er ekki síst til kominn vegna skattalækkana Bush – skattalækkana sem engin innistæða var fyrir. Obama og demokratar í [...]

Allir múslimar hlægja og pissa á grafir 9/11 fórnarlambanna

Það virðist vera að færast aukinn hti í baráttu lýðskrumara og ofstækismanna innan repúblíkanaflokksins gegn hinni svokölluðu „Ground Zero Mosque“ – sem er í raun félagsmiðstöð/bænahús sem stendur til að innrétta í hús sem stendur tveimur húsaröðum (blocks) frá „Ground Zero“, þar sem World Trade Center stóð. Það á því ekki að byggja 13 hæða [...]

Enn og aftur: Gingrich er bjáni

Eða ómerkilegur og óheiðarlegur lýðskrumari. Annað hvort. Undanfarnar vikur hefur töluvert verið rætt um hvort múslimar megi reisa félagsmiðstöð, sem mun meðal annars innihalda eitt stykki bænahús, í námunda við „Ground zero“, þar sem World Trade Center stóð áður. Og hægrimenn eru auðvitað í öngum sínum yfir slíkri ósvífni. Sarah Palin, sem er gagnleg sem [...]

Félagsleg húsnæðislán og undirmálslán

Um daginn skrifaði ég stutta færslu um þá merkilegu staðreynd að fólk sem á hús í Bandaríkjunum sem kosta yfir eina milljón dollara (um 120 milljón krónur) er líklegra til að ganga frá eignum sínum og hætta að borga af fasteignalánunum en fólk sem á fasteignir sem eru ódýrari. Þetta virðist sérstaklega eiga við í [...]

Hatur AGS á íslenskri menningu

Góð grein í Fréttablaðinu í morgun eftir Kristínu Steinsdóttur og Jón Kalmann Stefánsson: Trúlega vita þeir hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, AGS, lítið um íslenskar bókmenntir. Og sennilega vita þeir minna en ekki neitt um íslenskan bókamarkað. Þess vegna hafa þeir líklega bent íslenskum stjórnvöldum á að snarhækka virðisaukaskatt á bækur úr 7% og upp í 25,5%. Reikniforritin [...]

4th July: Allir Kanar asnar. Haha

Það er fastur liður í allri umfjöllun um Bandaríkin að Bandaríkjamenn séu öðru fólki vitlausara og verr upplýst. Ástæðan er ekki síst sú að þessi hugmynd á næstum jafn vel upp á pallborðið vestan hafs og austan – Bandaríkjamenn eru sjálfir mjög pirraðir á fáfræði samborgara sinna. Slíkt ergelsi yfir samlöndum fólks er ekki bundið við [...]