Eldri færslur fyrir 'Heiðarleikaskortur, hræsni'

Af nærbuxnadónanum Weiner

Anthony Weiner, (og á íslensku Wikipedia - ein af fjölmörgum frábærum Wikipediafærslum um bandarísk stjórnmál sem nemendur við Bifröst skrifuðu síðasta haust), einn af þingmönnum demókrata fyrir New York fylki, hefur tilkynnt að hann muni segja af sér. Eins og flestir vita varð Weiner frægur fyrir að taka dónamyndir af nærbuxunum sínum - eða tippinu á sér, [...]

Biskupinn elskar líka skattsvikara

Er biskupinn að lýsa yfir stuðningi við Ingva Hrafn vegna þess að þeir tveir séu persónulegir vinir, eða leggur biskupinn í vana sinn að hringja í alla sem dæmdir eru fyrir brot á skattalögum? Eða er þetta kannski bara annað dæmi um ást biskupsins á glæpamönnum? Hvort sem menn gerast sekir um að nauðga konum [...]

Valdamikla menn á ekki að kæra

Það hefur skapast dálítil umræða um hvort það séu ekki réttarfarsofsóknir þegar valdamiklir og fínir menn þurfa að sitja fyrir dómi vegna brota á lögum. Enda eðlilegt. Það er ekki á hverju degi sem meðlimir elítunnar, hvort heldur það er stjórnmálaelítan eða framámenn í viðskipta og fjármálalífi þurfa að sæta ábyrgð gjörða sinna, og því [...]

Trump út – Gingrich inn

Samkvæmt Salon er forsetaframboð sjónvarpstrúðsins Donald Trump búið að renna sitt skeið á enda: Donald Trump’s fake presidential campaign is finished. Not officially (or … unofficially, or however you classify the de facto end of a fake campaign), but in the only venue that matters when you’re still not even close to an actual caucus [...]

Ásta Ragnheiður fer með rangt mál

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir heldur því fram í viðtali við blaðamenn Fréttablaðsins í dag að hún hafi ekki átt neina aðkomu að máli nímenninganna sem sakaðir voru um að hafa ráðist á Alþingi og reynt að svipta það sjálfræði sínu. Ásta Ragnheiður segir: „Ég mun ekki tjá mig neitt um þetta. Þetta gerðist fyrir mína tíð [...]

Afghanistan er Booooring…

Eitt af því merkilegasta við Afghanistanleka Wikileaks er hversu litla umfjöllun hann hefur í raun fengið hjá bandarískum fréttaskýrendum. Svo virðist sem skjalalekinn hafi haft einhver áhrif á umræðuna í Washington, þar sem andstæðingar stríðsins í þinginu og innan Hvíta hússins hafa unnið á. New York Times greindi frá því á mánudag að Wikileaks skjölin hafi [...]

Aumingja Jakob Frímann

Það hefur hreinlega verið of mikið af stórfenglegum fréttum undanfarna daga til að ég hafi haft tíma til að skrifa mikið um bandarísk stjórnmál. Mig hefur t.d. mikið langað til að skrifa um Jakob Magnússon og Bubba Morthens og hjákátleg varnarskrif þeirra fyrir fjárglæframenn. En maður á ekki að vera vondur við minni máttar. Aumingja [...]

Enginn sá neitt fyrir…?

Einn mest þreytandi söngur sem maður hefur heyrt eftir hrunið er að „enginn“ hafi „séð þetta fyrir“. Þetta er auðvitað kolrangt, og eiginlega hálfpartinn út í hött. Auðvitað er aldrei hægt að sjá nákvæmlega fyrir heila atburðarás og allar afleiðingar. En að enginn hafi séð fyrir í öllu „góðærinu“ að það myndi fara ílla er [...]

Skiplögð glæpastarfsemi og fjármálakreppan

Dan Froomkin skrifaði í gær ágæta grein um glæpastarfsemi fjármálafyrirtækja og lykilstarfsmanna þeirra og stjórnenda og aðdraganda fjármálakreppunnar: The securities fraud case against Goldman Sachs is a powerful reminder that the financial crisis responsible for millions of lost jobs and lost homes wasn’t just the result of market vagaries and regulatory failure — it was [...]

Umhyggja Fox fyrir skattsvikurum

Skattayfirvöld í Bandaríkjunum hafa nýlega lýst því yfir að þau ætli sér að taka hart á skattsvikum, sérstaklega margmilljónamæringum sem hafa komið auðæfum fyrir í skattaskjólum erlendis. Úr ræðu yfirmanns IRS, Douglas Shulman: Now, high wealth individuals are not your typical Form 1040 filers with a W-2, some 1099 income, and maybe a Schedule C [...]

Af tvöfeldni og hræsni

Umfjöllun Rachel Maddow undanfarna daga um „cash and trash“ afstöðu repúblíkana til efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar (trash the stimulus while happily accepting the cash) sýnir enn og aftur að hún hefur ekki bara einstakan hæfileika til að hitta naglann á höfuðið, heldur líka að hún er langbesti kapalþáttastjórnandinn í bandarísku sjónvarpi um þessar mundir: Um daginn fjallaði [...]

Ríksþröngvað jafnrétti = ný fasteignabóla?

Heimskulegasta og um leið ógðefelldasta skýringin á fasteignabólunni, og þar með lánsfjárbólunni og að lokum hruni fjármálakerfis Vesturlanda, er sú að orsakanna sé að leita í the Community Reinvestment Act – laga sem sett voru í valdatíð Jimmy Carter, og hert á fyrsta kjörtímabili Bill Clinton. Þessi lög tóku á því að bankar gætu mismunað lántakendum [...]

Af Joe Lieberman

Þeir sem hafa verið að fylgjast með bandarískum stjórnmálum vita vafalaust allt um skemdarverkastarfsemi Joe Lieberman. Til að gera langa sögu stutta hefur Lieberman tekist að neyða meirihluta demokrata í öldungadeildinni til að draga allar tennur úr heilbrigðistryggingakerfisumbótunum. Lieberman ákvað meira að segja að setja sig gegn umbótatillögum sem hann hafði stutt – tillögum sem [...]

Valdhroki

Orrin Hatch var spurður að því hvað væri besta leiðin til að vinna bug á efnahagskreppunni. Svar Hatch var einfalt: Binda endi á valdhrokann í Washington. Með því að henda út demokrötunum og koma repúblíkönum aftur til valda. Sem ég held að hljóti nú að flokkast sem makalaus valdhroki, og lýsandi fyrir hugsunarhátt sjálftökuflokksmanna allra [...]

Stuðningur repúblíkana við nauðganir – enn og aftur

Áhugi repúblíkana í öldungadeild Bandaríkjaþings um að standa vörð um réttindi og hagsmuni hópnauðgara í málaliðaherjum og hernaðarverktakasveitum Bandaríkjanna er enn og aftur kominn í umræðu. Ekki vegna þess að Al Franken eða demokrataflokkurinn sé að minna á málið, heldur vegna þess að repúblíkanaflokkurinn getur ekki hætt að væla undan því hversu ósanngjarnt það sé [...]