Eldri færslur fyrir 'Fox news'
Enn af Stewart og Fox
Jon Stewart hélt í gær áfram umfjöllun sinni um Fox News. Hrein snilld.
Fært inn 28. júní, 2011 undir Fox news.
Ummæli: engin
Stewart útskýrir Fox News
Töluverð umræða hefur spunnist um viðtal Jon Stewart við Fox News – og í gær fjallaði Stewart aðeins um þessa umræðu, og benti á að fólki hefði yfirsést mikilvægasta atriðið í öllu viðtalinu. Einhvernveginn virðist mér ekki lengur takast að setja Comedy Central myndbönd inn í færslur, þannig að lesendum er bent á að horfa á [...]
Fært inn 21. júní, 2011 undir Fox news.
Ummæli: 10
Vinstrislagsíða fjölmiðla í BNA
Jon Stewart, stjórnandi The Daily Show, var í viðtali hjá Chris Wallace, á sunnudaginn, þar sem umfjöllunarefnið voru bandariskir fjölmiðlar og sú sannfæring Wallace, og margra, ef ekki flestra annarra bandarískra hægrimanna, að „the main stream media“ sé einhverskonar risavaxið vinstrasamsæri gegn hægrimönnum. Einna áhugaverðasti partur viðtalsins snéri að tilraunum Wallace til að fá Stewart [...]
Fært inn 20. júní, 2011 undir Fox news.
Ummæli: 3
Obama sökkvir olíuborpöllum af einskærri maóískri íllsku
Um daginn fleytti Rush Limbaugh þeirri hugmynd út að einhverjir á vegum Barack Obama hafi unnið skemmdarverk á olíuborpalli BP sem sökk með þeim afleðingum að milljónir tunna af olíu streyma nú út í Mexíkóflóa. Limbaugh velti því fyrir sér hvort það væri ekki of hentugt fyrir Obama að olíuborpallurinn hefði sokkið – því nú [...]
Fært inn 4. maí, 2010 undir Beck, Limbaugh, osfv, Fox news, samsæriskenningar.
Ummæli: 2
Umhyggja Fox fyrir skattsvikurum
Skattayfirvöld í Bandaríkjunum hafa nýlega lýst því yfir að þau ætli sér að taka hart á skattsvikum, sérstaklega margmilljónamæringum sem hafa komið auðæfum fyrir í skattaskjólum erlendis. Úr ræðu yfirmanns IRS, Douglas Shulman: Now, high wealth individuals are not your typical Form 1040 filers with a W-2, some 1099 income, and maybe a Schedule C [...]
Fært inn 8. apríl, 2010 undir efnahagsmál, Fox news, Heiðarleikaskortur, hræsni, Spilling.
Ummæli: engin
Repúblíkanar uppgötva ábyrgðarkennd
Undanfarna mánuði hef ég margsinnis bent á að leiðtogar repúblíkanaflokksins hafa ekkert gert til að tóna niður allan þann múgæsing og móðursýki sem hefur gripið um sig meðal grasrótar flokksins. Þingmenn og leiðtogar flokksins hafa ekkert gert til að leiðrétta rangfærslur og „fear mongering“ á borð við þá fáránlegu samsæriskenningu að Obama og demokratar hygðust koma [...]
Fært inn 7. apríl, 2010 undir Fox news, samsæriskenningar, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 3
Meira af stríðinu gegn raunveruleikanum
Fyrir viku síðan birtist makalaus könnun skoðanakannanafyrirtækisins Harris á skoðunum Bandaríkjamanna á Obama, en í staðinn fyrir að spyrja einfaldra spurninga um hvort fólk væri hlynnt stefnu forsetans eða ekki var fólk spurt út í hvaða stefnu það teldi forsetann fylgja: Hvort hann væri sósíalisti. Eða nasisti. Eða væri útsendari alheimssamsæris Sameinuðu þjóðanna um að koma [...]
Fært inn 5. apríl, 2010 undir Beck, Limbaugh, osfv, Fox news, heimska og fáfræði, samsæriskenningar.
Ummæli: 7
Fox útskýrir snilli Palin
Það hefur að vonum vakið athygli að Sarah Palin skuli hafa skrifað minnispunkta í lófann á sér áður en hún hélt ræðu á landsfundi tepokalýðsins nú um helgina. Þetta uppátæki Palin vakti líklega aðallega athygli þar sem hún er fullorðin kona, 45 ára gömul, hún hefur útskrifast úr háskóla, sat í hálft kjörtímabil sem ríkisstjóri [...]
Fært inn 8. febrúar, 2010 undir Fox news, heimska og fáfræði, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 8
193% Repúblíkana styðja Palin, Huckabee eða Romney
Fox toppar sig sig enn og aftur. Fox News hefur margsinnis verið gripið glóðvolgt við ýmiskonar ýkjur í myndaskýringum með fréttum. Samkvæmt kökuriti sjónvarpsstöðvarinnar munu 70% repúblíkana styðja Palin – meðan Huckabee nýtur stuðnings 63% repúblíkana og Mitt Romney 60%. Samtals munu 193% repúblíkana ætla að kjósa einhvern þessara frambjóðenda sem auðvitað hlýtur að trompa [...]
Fært inn 23. nóvember, 2009 undir Fox news.
Ummæli: 8
Er Obama Satan?
Útlendingahatarinn Lou Dobbs, sem var nýlega neyddur til að hætta störfum á CNN mætti í sjónvarpsviðtal hjá Bill O’Reilly á Fox í gærkvöld til að ræða ýmis mál, meðal annars hvort Dobbs ætlaði í pólítík. Þegar Dobbs var búinn að ræða þetta í dálítinn tíma kastaði Billo fram einni lokaspurningu: Er Barack Obama satan? Og [...]
Fært inn 17. nóvember, 2009 undir Fox news.
Ummæli: 3
Samsæriskenningar Palin of vitlausar fyrir Fox
Sarah Palin hélt eina af sínum samhengislausu ræðum um daginn, og notaði tækifærið til að fleyta út nýrri samsæriskenningu: Palin hélt því fram að ákvörðun hefði verið tekin um að fjarlægja orðin „In God We Trust“ af framhlið eins dollars myntarinnar, sem hún taldi benda til skuggalegs samsæris trúleysingja á hæstu stöðum í ríkisstjórninni. Þessi [...]
Fært inn 12. nóvember, 2009 undir Fox news, samsæriskenningar.
Ummæli: 5
Rómaveldi, terrorismi og landráð
Bandarísku læknasamtökin AMA hvetja til þess að Marijuana verði tekið af lista yfir hættuleg eiturlyf, hætt verði að flokka það sem „Schedule I Controlled Substance“, en á þeim sama lista eru LSD, heróín, kókaín og amfetamín. (LA Times) Góð úttekt Washington Independent á tilraunum „anti-tax“ hreyfinga til að fá stjórnarskrám ríkjanna breytt til að banna [...]
Fært inn 12. nóvember, 2009 undir Fox news, Sagnfræði, samsæriskenningar.
Ummæli: engin
Það er ekki hægt að drepa alla Múslima
Ralph nokkur Peters mætti til O’Reilly til að ræða fjöldamorðin í Fort Hood herstöðinni, og lýsti þar gremju sinni yfir þeirri svívirðu að forsetinn skuli ekki hafa notað minningarathöfn um hermennina sem féllu til að tala upp mikilvægi stríðsins gegn hryðjuverkum. Ekkert um hryðjuverk! Ekkert um íslamistaógnina. Því við vitum jú að fjöldamorð múslima, líkt [...]
Fært inn 11. nóvember, 2009 undir Fox news, Stríðsæsingur.
Ummæli: 7
Obama er Nixon
Eftir að Obama og aðrir úr Hvíta húsinu voguðu sér að benda á að Fox „News“ hegðaði sér eins og flokksmálgagn Repúblíkanaflokksins og væri því ekki trúverðugur fréttamiðill hafa bæði Fox og sumir repúblíkanar risið upp á afturfæturna og veinað um að Obama væri að hegða sér „eins og Nixon“. Sem þeim finnst ábyggilega klók [...]
Fært inn 22. október, 2009 undir Fox news, Obama.
Ummæli: 1
Listrýni Glenn Beck
Í beinu framhaldi af fyrri skrifum um ródeótrúðinn (skv honum sjálfum) Glenn Beck fannst mér nauðsynlegt að minna á að hann er ekki bara sérfræðingur í Maóisma og langsóttum tengingum, heldur er hann líka sérfræðingur í byggingarlist og þeirri list að lesa fasísk/stalínísk/sósíalísk/liberal samsæri út úr öllum hlutum: — Og ég vil minna á að [...]
Fært inn 16. október, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Fox news, Ímyndunarveiki, samsæriskenningar.
Ummæli: 4