Eldri færslur fyrir 'Forsetakosningar'
Romney og Bachmann með forystu
Samkvæmt fyrstu könnuninni sem Des Moines Register í Iowa hefur tekið á stuðningi repúblíkana sem líklegir eru til að taka þátt í prófkjöri repúblíkana sýnir að Mitt Romney og Michele Bachmann séu með forystu í fylkinu – sem skiptir miklu máli, því fyrstu prófkjörin eru í Iowa og New Hampshire, og því skiptir öllu fyrir frambjóðendur [...]
Fært inn 26. júní, 2011 undir Forsetakosningar, Skoðanakannanir.
Ummæli: 4
Enn af endalokum Gingrich
Nýjustu fréttir af megalómaníska lýðskrumaranum Gingrich eru þær að allt fjáröflunarteymi hans hafi þakkað fyrir sig pent og sagt upp. Fyrr í mánuðinum sögðu allir helstu ráðgjafar Gingrich upp störfum. AP: The top fundraisers for Newt Gingrich’s presidential campaign have abandoned his struggling bid amid anemic fundraising and heavy spending. Í gær bárust þær fréttir [...]
Fært inn 21. júní, 2011 undir Forsetakosningar.
Ummæli: engin
Obama vinnur 2012, nema suðurríkin
Ef við tökum kannanir á vinsældum/óvinsældum Obama og sigurmöguleikum Mitt Romney trúanlegar lítur út fyrir að Obama sé í alvarlegum vandræðum og að Mitt Romney eigi barasta nokkuð góðan séns á að vinna. Fréttastofa RÚV flutti eina svona frétt í byrjun síðustu viku. RÚV: Óánægja bandarískra kjósenda með frammistöðu Baracks Obama Bandaríkjaforseta eykst á ný. [...]
Fært inn 16. júní, 2011 undir Forsetakosningar, Skoðanakannanir.
Ummæli: 2
Gingrich út – Perry inn
Miðað við skoðanakannanir virðist prófkjörsframboð Gingrich búið að vera. Samkvæmt nýrri könnun WSJ og NBC hefur rétt tæpur þriðjungur repúblíkana sem líklegir eru til að kjósa í prófkjörum flokksins jákvæða mynd af Gingrich. Í apríl, áður en hann tilkynnti framboð hafði helmingur jákvæða mynd af honum. WSJ: Just 32% of Republican primary voters viewed him [...]
Fært inn 16. júní, 2011 undir Forsetakosningar.
Ummæli: engin
Pawlenty flugumaður Romney
Sá repúblíkani sem hefur komið mér, líkt og mörgum bandarískum stjórnmálaskýrendum mest á óvart, og í raun valdið mestum vonbrigðum, er Tim Pawlenty. Það bjuggust nefnilega flestir við því að Pawlenty myndi verða sá frambjóðandi flokksins sem myndi taka forystyna. En einhvernveginn hefur Pawlenty ekki tekist að komast á flug. Steve Kornacki á Salon telur [...]
Fært inn 15. júní, 2011 undir Forsetakosningar.
Ummæli: 2
Hver leiðir repúblíkanaflokkinn 2012?
Í gær voru kappræður forsetaframbjóðenda repúblíkana á CNN – og það þó að það sé engan veginn víst að allir frambjóðendur flokksins séu komnir fram. Það er t.d. enn óvíst hvort Rick Perry, ríkisstjóri Texas og Sarah Palin taki þátt í slagnum. En, hvað um það. Það hefur þó alla vegana fjölgað í hópnum síðan [...]
Fært inn 14. júní, 2011 undir Forsetakosningar.
Ummæli: engin
Guð búinn að velja sinn frambjóðanda
Um daginn bárust af því fréttir að forsetaframboð Michelle Bachmann hefði fengið einhverskonar go-ahead frá guði almáttugum: Bachmann hafði semsagt spurt guð hvort hún ætti að bjóða sig fram, og hann svarað játandi. Nokkuð afgerandi. Bachmann er sennilega best þekkti biblíurepúblíkani þingsins, ofstækisfullur afturhaldssinni þegar kemur að öllu sem snertir siðgæði. Hatrammur andstæðingur réttinda samkynhneigðar [...]
Fært inn 3. júní, 2011 undir Forsetakosningar.
Ummæli: 2
Af heimsku Söru Palin
Um daginn fréttist að Sara Palin ætlaðist til þess að einhver grasrótarhópur repúblíkana í Iowa greiddi sér 100.000 dollara fyrir að halda eina af sínum samhengislausu ræðum. Þessar fréttir hafa að nýju komið af stað umræðum meðal bloggara um hverskonar pólítíkus Palin sé – hvað hún ætli sér eiginlega og hvaða hlutverk hún muni spila [...]
Fært inn 31. október, 2009 undir Forsetakosningar, Kosningar og framboð.
Ummæli: 2
Íkornaætan Huckabee næsti forseti
Allir sem hafa fylgst með þessu bloggi í einvher tíma vita að Mike Huckabee er í miklu uppáhaldi á síðunni. Maður sem segir sögur af því hvernig hann, á háskólaárum sínum, steikti sér íkorna í poppkornspotti og er „Chuck Norris Approved“ hlýtur að eiga skilið athygli okkar. Og fyrir utan Ron Paul var Huckabee sá eini sem [...]
Fært inn 25. október, 2009 undir Forsetakosningar, Skoðanakannanir.
Ummæli: 19
Testosteroneskortur McCain
Einhverjir vísindamenn, sem virðast hafa of mikinn tíma aflögu, hafa birt niðurstöður rannsóknar sem sýnir að kosningaósigur hefur mjög alvarlegar afleiðingar fyrir testosteronemagn í blóði karlmanna: (via boing boing) The findings indicate that male voters exhibit biological responses to the realignment of a country’s dominance hierarchy as if they participated in an interpersonal dominance contest… [...]
Fært inn 24. október, 2009 undir Forsetakosningar, Karlmennska eða skortur á henni.
Ummæli: engin
Netárásir á stjórnvöld í Íran
—– Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að það voru kosningar í Íran um daginn og að opinberar niðurstöður þeirra séu vægast sagt ótrúverðugar. Nate Silver, sem var með langsamlega bestu skoðanakannana- og tölfræðiumfjöllun fyrir síðustu kosningar í Bandaríkjunum, bendir á að það sé nánast útilokað, tölfræðilega séð, að niðurstöðurnar endurspegli vilja kjósenda sem [...]
Fært inn 16. júní, 2009 undir Forsetakosningar, Tölvur og tækni.
Ummæli: 2
Guantanamo
Í tilefni þess að Obama vill loka Gunatanamo-fangabúðum Bandaríkjamanna á Kúbu er ágætt að rifja upp að Repúblíkanar buðu fram menn sem vildu ekki bara halda búðunum opnum, heldur helst tvöfalda þæ… Af hverju? Nú vegna þess að það mætti alls alls ekki veita mönnum sem sakaðir eru um hryðjuverk aðgang að lögfræðingum. — Takið [...]
Fært inn 23. janúar, 2009 undir Forsetakosningar.
Ummæli: engin
Pípulagningajúdasinn Wurzelbacher sver af sér McCain
Maður heitir Samuel Wurzelbacher. Wurzelbacher varð heimsþekktur sem „Joe the Plumber“, þó hann væri enginn pípulagningamaður, hvað þá sá skattpíndi athafnamaður sem hann þóttist vera. Wurzelbacher er nefnilega einhverskonar meiriháttar „failure“ sem ekki hefur staðið skil á sköttum eða skuldum og stendur ekki í neinum arðbærum rekstri, hvað þá að hann sé með fjölda manns í vinnu. Wurzelbacher [...]
Fært inn 11. desember, 2008 undir Forsetakosningar, Heiðarleikaskortur, hræsni.
Ummæli: 1
Enn um óskilgetna kynblendinginn og útlendinginn Barack Hussein Obama
Eitt undarlegasta málið sem kom upp í aðdraganda forsetakosninganna, og einhver allra furðulegasta árásin á Barack Obama var að hann væri ekki kjörgengur, þar sem hann væri í raun útlendingur, fæddur í Kenýa. Þessi hugmynd var lengi í umferð, og var haldið við af þáttastjórendum á AM talk radio og á bloggsíðum. T.d. á bloggsíðu [...]
Fært inn 7. desember, 2008 undir Forsetakosningar, samsæriskenningar.
Ummæli: engin
Hversu stór var sigur Obama?
Hversu góð var kosningaþátttakan í Bandaríkjunum, og hversu stór var sigur Obama? Fyrst eftir kosningarnar voru flestir á því að þátttaka hefði verið miklu meiri en vejulega, og að sigur Obama væri því þeim mun stófenglegri. Um leið tóku þó að heyrast raddir um að kosningaþátttakan hefði í raun verið í meðallagi, sem breytti kannski ekki miklu um sigur Obama, [...]
Fært inn 28. nóvember, 2008 undir Forsetakosningar.
Ummæli: 4