Eldri færslur fyrir 'Bush & co'
Meira af innihaldsleysi, nú Bush, ekki Palin
Síðasta færsla mín var um innihaldsleysi þessa bloggs, þ.e. hversu upptekinn ég hef verið undanfarið af innihaldslausum stjórnmálamönnum, eða réttara sagt einni ákveðinni innihaldslausri stjórnmálakonu, sem Halldór lýsti í góðri athugasemd sem „þorpsfíflinu“:
Ég á nokkra kunningja sem lesa Ayn Rand og eru spenntir fyrir Palin. Það sem mér heyrist þeir eiga sameiginlegt er að þeir [...]
Fært inn 10. febrúar, 2010 undir Bloggar, Bush & co, heimska og fáfræði.
Ummæli: engin
Obama gubbaði þó allavegana ekki
Fært inn 18. nóvember, 2009 undir Bush & co.
Ummæli: engin
Óverðskulduð Nóbelsverðlaun Obama
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að Obama mun fá friðarverðlaun Nóbels. Og það er líklega varla ofsögum sagt að það sé erfitt að finna frétta- eða stjórnmálaskýrendur sem geta haldið því fram að „þessi ákvörðun komi ekki á óvart“. Bandarískir fjölmiðlamenn eru enn að klóra sér í hausnum og flestir bloggarar virðast ekki [...]
Fært inn 9. október, 2009 undir Bush & co, Kosningar og framboð.
Ummæli: 3
Allt djöfuls “gyðingunum” að kenna!
Í nýrri bók sem blaðamaðurinn og rithöfundurinn Patrick Tyler hefur skrifað, en er víst ekki enn komin út, um samskipti Bandaríkjanna við Miðausturlönd kemur fram furðuleg saga sem nú hefur farið um veraldarvefinn – en samkvæmt henni virðist George Tenet, fyrrum yfirmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna, ekki vera svo óskyldur Mel Gibson. Marc Ambinder á The Atlantic endursegir sögu [...]
Fært inn 17. desember, 2008 undir Bush & co.
Ummæli: 8
Skrílslæti
Ætli þetta flokkist ekki líka undir skrílslæti?
—
Besta analýsan á þessum atburði kemur frá Yglesias sem rifjar upp fréttaflutning frá árinu 2003:
I’m having trouble coming up with appropriately humorless language with which to express my fake outrage at this incident. Instead, a flashback to April 2003:
Iraqis had begun tearing down portraits of Saddam and throwing shoes [...]
Fært inn 15. desember, 2008 undir Bush & co, Quagmire/Írak.
Ummæli: 1
Afrek Bush
Olbermann fjallaði um söguendurskoðunartilraunir Bush, nú þegar hann er loksins að láta af löndum. Parturinn um að Bush hefði „upheld the honor and dignity of the office“ er sérstaklega góður
—
Fært inn 11. desember, 2008 undir Bush & co, Sjónvarp.
Ummæli: engin
Rove ætlar að nefna nöfn
Þannig hljómar fyrirsögnin á CNN. Karl Rove ætlar semsagt að skrifa bók um starfsár sín í Hvíta Húsi Bush. Hljómar spennandi, ekki satt? Kannski ætlar Rove að bjarga eigin orðspori og skrifa svipaða bók og Scott McClellan þar sem hulunni er svipt af heimsku, svikum og vanhæfni forsetans?
Rove ætlar nefnilega að ljóstra upp um hverjir [...]
Fært inn 8. desember, 2008 undir Bush & co, Sagnfræði, Ímyndunarveiki.
Ummæli: 7
Dubya og Barack
Hversu skrýtið er það að maður sem heitir jafn skrýtnu nafni og Barack Obama skuli hafa verið kosinn forseti Bandaríkjanna, fyrst sitjandi forseti var kallaður „Dubya“ – og það er ekki einu sinni alvöru nafn. Allavegana er Dubya ekki mikið hversdagslegra mannsnafn en „Barack“.
Ég held því að stuðningsmenn Bush hafi búið Bandaríkjamenn undir Obama, með [...]
Fært inn 30. nóvember, 2008 undir Bush & co.
Ummæli: 2
Fyrir hvað erum við þakklát?
Rachel Maddow veltir fyrir sér hvað það er sem við eigum að vera þakklát fyrir, nú þegar það sér loksins fyrir endann á óstjórn glæpagengis George W. Bush og Dick Cheney í Washington.
—
Og þetta eru aðeins helstu aularnir, glæpamennirnir og skúrkarnir í ríkisstjórninni, sem hafa neyðst til að segja af sér. Það eru ekki taldir með aðrir [...]
Fært inn 27. nóvember, 2008 undir Bush & co, Heiðarleikaskortur.
Ummæli: 8
…og það hata ennþá allir Bush
Þetta vídeó er búið að birtast á öðru hverju bandarísku stjórnmálabloggi. Og þar sem þetta er bandarískt stjórnmálablogg ber mér samningsbundin skylda til að birta það líka:
—
Fært inn 20. nóvember, 2008 undir Bush & co.
Ummæli: 2
McCain nýtur óskoraðs trausts Dick Cheney
Og nú eru kosningarnar loksins ráðnar, því (vara)forseti Bandaríkjanna, Dick Cheney, hefur lýst yfir stuðningi við McCain!
—
Nú væri mjög gaman að vita hvaða áhrif þessi stuðningsyfirlýsing mun hafa. Hvaða óákveðnu kjósendur Cheney getur hjálpað McCain að vinna á sitt band. En í ljósi þess forskot Obama á landsvísu er slíkt að McCain þarf ekki bara [...]
Fært inn 2. nóvember, 2008 undir Bush & co, Forsetakosningar, Ímyndunarveiki.
Ummæli: 7
Landsfeðurnir yrðu svekktir
CNN birti á föstudag niðurstöður athyglisverðrar könnunar, en samkvæmt henni er yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar þeirrar skoðunar að landsfeðurnir, „the founding fathers“, myndu hundóánægðir með hverskonar land Bandaríkin eru í dag. 69% segja að landsfeðurnir myndu verða fyrir vonbrigðum með Bandaríkin væru þeir uppi í dag, og aðeins 29% telja að þeir yrðu ánægðir.
Það sem gerir [...]
Fært inn 6. júlí, 2008 undir Bush & co, efnahagsmál.
Ummæli: 1
Forsetinn má grafa fanga lifandi… kannski
Í dag standa yfir þingyfirheyslur yfir David Addington og John Yoo. Addington og Yoo hafa kannski ekki mikið verið á forsíðum dagblaðanna, en allir sem fylgst hafa með bandarískum stjórnmálum undanfarin ár þekkja þá og verk þeirra. Þeir félagar léku t.d. lykilhlutverk í að semja hið íllræmda „torture memo“, lögfræðiálit sem staðhæfði að forsetinn mætti, [...]
Fært inn 26. júní, 2008 undir Bush & co, Heiðarleikaskortur, Ríkisvald, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 8
BNA: Fjölmiðlar uppgötva að Maverick McCane er alls ekki svo ólíkur Bush
Bandarískir bloggarar hafa undanfarna mánuði gagnrýnt að fjölmiðlar skuli þrjóskast við að tala stöðugt um John McCain sem a Maverick™ – því þó McCain hafi undanfarin átta ár oft tekið línu skynseminnar í repúblíkanaflokknum og barist gegn stefnumálum flokksins eða forsetans sem voru borðleggjandi afleit hefur hann undanfarna mánuði stýrt stíft til hægri.
Flest fólk sem [...]
Fært inn 17. júní, 2008 undir Bush & co, Forsetakosningar.
Ummæli: engin
Kucinich ákærir Bush í þinginu fyrir glæpsamlega vanhæfni, vanrækslu, stríðsglæpi
Dennis Kucinich hefur loksins gert það sem demokratar hefðu átt að gera fyrir langa löngu: Í gær lagði Kucinich nefnilega fram „articles of impeachment“ gegn forsetanum. Impeachment er í aðra röndina sambærilegt við vantraustsyfirlýsingu, en er mun alvarlegri, því til að lýsa yfir vantrausti á forseta Bandaríkjanna þarf að sýna fram á að hann hafi [...]
Fært inn 10. júní, 2008 undir Bush & co, Heiðarleikaskortur, Karlmennska, Quagmire/Írak, Stríðsæsingur.
Ummæli: 4
