Eldri færslur fyrir 'Beck, Limbaugh, osfv'
Krugman um öfgar repúblíkana
Það eru komnir nokkrir dagar síðan þessi grein Krugman um breytingar á bandarískri stjórnmálaumræðu birtist. Krugman kemur með nokkra virkilega góða punkta um nýleg prófkjör Repúblíkana og þess sem virðist vera vaxandi hugmyndafræðileg harka meðal hörðustu öfgamanna flokksins: Utah Republicans have denied Robert Bennett, a very conservative three-term senator, a place on the ballot, because [...]
Fært inn 21. maí, 2010 undir Beck, Limbaugh, osfv, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: engin
Colbert, Almættið og Glenn Beck
Fyrir utan að vera með alvarlegt nazitourette er Glenn Beck líka með stórkostlega megalómanískar hugmyndir um sjálfan sig og hlutverk sitt. Beck er nefnilega sannfærður um að hann sé ekki bara Marteinn Lúther King, heldur sé hann einhverskonar útsendari almættisins með „100 ára plan“ fyrir Bandaríkin, og ekki bara það, heldur endurfæðingu Bandaríkjanna. Beck sér [...]
Fært inn 15. maí, 2010 undir Beck, Limbaugh, osfv, Sjónvarp.
Ummæli: 5
Obama sökkvir olíuborpöllum af einskærri maóískri íllsku
Um daginn fleytti Rush Limbaugh þeirri hugmynd út að einhverjir á vegum Barack Obama hafi unnið skemmdarverk á olíuborpalli BP sem sökk með þeim afleðingum að milljónir tunna af olíu streyma nú út í Mexíkóflóa. Limbaugh velti því fyrir sér hvort það væri ekki of hentugt fyrir Obama að olíuborpallurinn hefði sokkið – því nú [...]
Fært inn 4. maí, 2010 undir Beck, Limbaugh, osfv, Fox news, samsæriskenningar.
Ummæli: 2
Já, btw: Bush var vinstrimaður
Þeir sem fylgjast með Glenn Beck vita að eitt helsta framlag hans til þjóðfélagsumræðunnar hefur verið að boða söguskoðun Jonah Goldberg að vinstrimennska sé í raun fasismi, að nasistarnir hafi verið vinstrimenn. Það er, meðan þeir eru ekki Maóistar og kommúnistar. En nú hefur vinstrimönnum bæst liðsauki, því samkvæmt Beck var George W. Bush líka [...]
Fært inn 28. apríl, 2010 undir Beck, Limbaugh, osfv, Bush & co, Ímyndunarveiki.
Ummæli: 8
Meira af stríðinu gegn raunveruleikanum
Fyrir viku síðan birtist makalaus könnun skoðanakannanafyrirtækisins Harris á skoðunum Bandaríkjamanna á Obama, en í staðinn fyrir að spyrja einfaldra spurninga um hvort fólk væri hlynnt stefnu forsetans eða ekki var fólk spurt út í hvaða stefnu það teldi forsetann fylgja: Hvort hann væri sósíalisti. Eða nasisti. Eða væri útsendari alheimssamsæris Sameinuðu þjóðanna um að koma [...]
Fært inn 5. apríl, 2010 undir Beck, Limbaugh, osfv, Fox news, heimska og fáfræði, samsæriskenningar.
Ummæli: 7
Friður með hernaði
Barack Obama tilkynnti í gær að hann ætlaði að senda 30.000 hermenn í viðbót til Afghanistan á næstu sex til tólf mánuði. Liðsstyrkurinn er meiri, og hraði styrkaukningarinnar meiri en fréttaskýrendur höfðu átt von á. McCain gagnrýndi sérstaklega þau aumingjalegheit forsetans að vilja vera með „exit strategíu“ – alvöru karlmenn æða áfram án þess að [...]
Fært inn 2. desember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Stríðsæsingur.
Ummæli: 7
Sjálfsmorðssáttmáli repúblíkana
Einn af íhaldssömum dálkahöfundum Washington Post, Kathleen Parker, skrifar áhugaverða grein í sunnudagsblað WaPo um „tíu boðorð íhaldsmennskunnar“ sem nokkrir úr forystuliði flokksins vilja að flokkurinn innleiði. Hugmyndin með boðorðunum er að frambjóðendum sem hafa svikið tvö boðorðanna verði meinað um stuðning flokksins. Þessi boðorð ganga út á hluti eins og andstöðu við „Obamacare“, skilyrðislausan [...]
Fært inn 29. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Íhaldzmenn, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 2
Beck: Palin er kelling sem blaðrar og blaðrar og blaðrar
Þetta má ekki fara framjá neinum sem vill fylgjast með Glenn Beck og Söru Palin: Um daginn gaf Sara Palin til kynna að hún væri hrifin af hugmyndinni um að hún og Glenn Beck byðu sig fram til forseta saman. Fyrir sitt leyti er Glenn Beck ekkert sérstaklega hrifinn af hugmyndinni, enda Palin kelling, og [...]
Fært inn 27. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Karlmennska eða skortur á henni.
Ummæli: 2
Bush kom í veg fyrir hryðjuverkaárásir
Dálkur í LA Times um nýja skýrslu Anti Defamation League um Glenn Beck. The Anti Defamation League, sem eru ópólítísk samtök sem berjast gegn hatursboðskap, sérstaklega gyðingahatri, en þó einnig öðrum birtingarmyndum mannhaturs- og ofstækisboðskapar, sérstaklega kynþáttahatri og „white supremasist“ hreyfingum, hafa aldrei áður lýst áhyggjum af vinsælli bandarískri fjölmiðlafígúru. ADL varar við því að [...]
Fært inn 25. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Dagblöð og fréttir, Ímyndunarveiki, Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 3
Beck boðar „the Plan“, lofsyngur kommúnisma
Undanfarnar vikur hefur verið nokkur umræða um það hvort efnahagsaðgerðir Obama hafi borið árangur eða ekki. Repúblíkanar hafa staðhæft að svo sé ekki – árangurinn hafi bara verið aukinn fjárlagahalli og ekkert annað. Hvíta húsið hefur haldið hinu gagnstæða fram, en gengið ílla að sannfæra fjölmiðla. Skv. úttekt NYT eru þó allir óháðir hagfræðingar og [...]
Fært inn 24. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Dagblöð og fréttir.
Ummæli: 4
Ágæti innihalds og samhengisleysis
Í gær skrifaði ég um mánudagsdálk Ross Douthat í New York Times. Douthat velti því fyrir sér af hverju Palin hefði valið frama sem fjölmiðla og frægðarfígúra frekar en að leggja grunn að bitastæðum pólítískum kareer sem „alvöru“ pólítíkus með alvöru ígrunduð svör við alvöru samfélagslegum og pólítískum vandamálum. Douthat fannst þetta augljóslega vera hið [...]
Fært inn 24. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, heimska og fáfræði, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 3
Palin-Beck 2012
SNL skets af heimsendamyndinni 2012, gerir spádóma myndarinnar enn skelfilegri: — Ég er búinn að uppdeita myndabandið – sum myndbönd, þar á meðal SNL myndbönd, detta mjög hratt út af youtube. Við skulum sjá hversu lengi þetta hangir inni!
Fært inn 22. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv.
Ummæli: 5
Nauðganarþráhyggja Limbaugh
Úttekt Media Matters á því hversu oft ýmsir vinsælustu útvarps og sjónvarpskarakterarnir á hægrikantinum, menn á borð við Rush Limbaugh, Michael Savage og Glenn Beck, grípa til ýmiskonar nauðgunarmyndlíkinga hefur vakið töluverða athygli. Hver sem hefur hlustað á Savage og Limbaugh vita að þeir eru ekki þekktir fyrir kurteislegt eða fágað orðfæri. En tíðni nauðganamyndlíkinga [...]
Fært inn 21. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv.
Ummæli: 6
Enn annar gullmoli frá Glenn Beck
Í gær fjallaði uppáhaldssjónvarpstrúður okkar allra, Glenn Beck, um umbætur á heilbrigiðstryggingakerfi Bandaríkjanna, staðhæfði að það væri alveg hreint klárt má að bandaríska þjóðin hefði hafnað þessari hræðilegu hugmynd – og greip síðan til merkilegrar myndlíkingar til að leggja áherslu á mál sitt: Bandaríska þjóðin er táningsstúlka sem er verið að nauðga, af ríkisstjórnin Obama, [...]
Fært inn 17. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Ímyndunarveiki.
Ummæli: 2
Dauði repúblíkanaflokksins, dauði bandarískra stjórnmála
Í dálki sínum í New York Times í gær veltir Paul Krugman fyrir sér tepokauppreisninni og þróun repúblíkanaflokksins. Sögulegar vangaveltur Krugman eru góðar – þó ég sé ekki endilega sammála þeirri ábyrgð sem hann skellir á Reagan, ég held að Nixon beri meiri ábyrgð. Áherslan á Reagan virðist tengjast mikilvægi „Reagan demokratanna“, en ég er ekki [...]
Fært inn 10. nóvember, 2009 undir Barátta gegn umbótum, Beck, Limbaugh, osfv, Sagnfræði.
Ummæli: 13