Eldri færslur fyrir 'Barátta gegn umbótum'

Kosningaauglýsing: EKKI kjósa!

Allar spár um niðurstöður kosninganna í byrjun nóvember benda til þess að demokratar hljóti skelfilega útreið. Nýjustu spár gera ráð fyrir að Repúblíkanar vinni um 50 sæti í fulltrúadeildinni og þó ólíklegt sé að demokratar eigi ekki eftir að missa meirihlutann í öldungadeildinni bendir allt til að meirihluti þeirra þar fari úr 59 niður í 52 eða [...]

Vanhæfur nóbelsverðlaunahafi

Eitt besta dæmið um málþófsstjórnmál Repúblíkana er sú sérkennilega staða sem hefur komið upp vegna tilskipunar Peter Diamond, prófessor í hagfræði við MIT, í bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna. Sænska akademían hefur tilkynnt að Diamond muni hljóta nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár, en Obama hefur engu að síður ekki tekist að fá samþykki öldungadeildarinnar fyrir tilnefningu Diamond. Af hverju? [...]

Demokratar að fá áhuga á kosningunum

Það eru alir fréttaskýrendur í Bandaríkjunum á einu máli: Repúblíkanar munu vinna stórsigur í konsingunum í haust. Menn eru líka nokkurnveginn sammála um skýringuna á þessu: Kjósendur repúblíkana eru einfaldlega áhugasamari um kosningarnar en demokratar, kjósendur repúblíkana ætla að mæta á kjörstað meðan kjósendur demokrata segjast ekki sérlega líklegir til að mæta. Skýringin á þessum [...]

BNA: Meirihluti styður hjónabönd samkynhneigðra

Undanfarin ár hafa frétta- og stjórnmálaskýrendur margoft bent á að stuðningur við réttindi samkynhneigðra í Bandaríkjunum fari vaxandi ár frá ári – en til þessa hefur þó verið meirihluti gegn því að samkynhneigðir fái að gifta sig eins og gagnkynhneigðir. Fyrir um mánuði síðan vakti það því athygli að könnun CNN sýndi að meirihluti aðspurðra [...]

WaPo: Heimska bandarískra stjórnmála

E.J. Dionne Jr., einn af betri dálkahöfundum og stjórnmálaskýrendum Bandaríkjanna skrifaði góða grein í Washington Post í gær þar sem hann veltir fyrir sér því sem hann kallar heimsku bandarískra stjórnmála. Upplegg greinarinnar er próvókerandi spurning: Can a nation remain a superpower if its internal politics are incorrigibly stupid? Dionne bendir í þessu sambandi á [...]

Aumingja auðjöfrarnir, mega ekki myrða verkamenn

Í vor varð eitt alvarlegasta námuslys síðustu ára í kolanámu, í eigu Massey Energy í Vestur Virginíu, þar sem 29 námuverkamenn létu lífið. Í kjölfarið hófst umræða um öryggismál námuverkamanna, og þó sérstaklega opinberar öryggisreglur og eftirlit með þeim – því í ljós kom að eigandi námunnar, Massey Energy, hafði sýnt einbeittan brotavilja þegar kom að lögum og reglum [...]

Hvað ætla repúblíkanar sér ef þeir vinna?

Eitt af því merkilegasta við stjórnarandstöðu repúblíkana síðan Obama komst til valda er að þeir hafa ekki lagt fram neina heildstæða stefnuskrá – enga raunhæfa valkosti við lausnir Obama eða demokrata. Hið eina sem Repúblíkanar hafa haft fram að færa er andstaða: Þeir eru einfaldlega á móti Obama, á móti demokrötum. Þetta hefur gengið svo langt að [...]

Ofstækishópar sjaldan vinsælli

Þetta ætti nú ekki að koma mjög mikið á óvart, svona í framhaldi af fréttum af ílladuldum rasisma tepokahyskisins: Patriot’ groups— described by the [Southern Poverty Law Center (SPLC)] as outfits ‘that see the federal government as part of a plot to impose ‘one-world government’ on liberty-loving Americans’ — are ‘roaring back’ after years out of [...]

Obama þjóðnýtir námslánakerfið

Um leið og Obama skrifaði undir lögin um umbætur á heilbrigðistryggingakerfi Bandaríkjanna skrifaði hann undir lög sem geraróttækar breytingar á bandaríska námslánakerfinu. Og þó þessar breytingar hafi ekki fengið ýkja mikla athygli eru þær þó líklega engu ómerkilegri en umbæturnar á heilbrigðistryggingakerfinu. Þær eru líka fyrsta skrefið í að gera uppskurð á fjármálakerfinu og Wall [...]

Hjólreiðar eru bara fyrir asna og asnalega hippa

Bandarískir hægrimenn hafa einhverra hluta vegna ægilega andúð á hjólreiðum og öllum öðrum „alternative“ ferðamátum. Lestum og almenningssamgöngum. Í hugum bandarískra hægrimanna er einkabíllinn eini ferðamátinn sem brýtur ekki einhvernveginn í bága við grundvallarhugsjónir stjórnarskránnar um frelsi einstaklingsins. Hjólreiðar og almenningssamgöngur, svo ég tali nú ekki um þann ósóma að fara ferða sinna fótgangandi, eru [...]

Haturs og ofbeldisboðskapur repúblíkana

Think Progress hefur tekið saman vídeó með nokkrum dæmum um ofstækis og ofbeldisboðskap repúblíkana: Staðreynd málsins er sú að repúblíkanaflokkurinn, þingmenn flokksins og forystumenn, hafa beinlínis verið að kynda undir ofstæki og hatri – og hafa gert í því að æsa upp ofstækisfyllstu og ójarðtengdustu element flokksins með samsæriskenningum og endalausu tali um kommúnista og [...]

Sex ára, lumbramdi á kommúnistum

Um síðustu helgi birtist ljósmynd á forsíðu DV af einum af stjórnmálastjörnum Sjálfstæðisflokksins ásamt tilvitnun í þennan speking og óþreytandi baráttumann fyrir frelsi, þar sem hann lýsti því glaðhlakkalega yfir að ofstækið og ofbeldið risti svo djúpt í hans svarta hjarta að hann hefði sex ára gamall verið farinn að „lumbra“ á fólki sem hann [...]

Skref í rétta átt

Undanfarnar vikur hefur verið að komast hreyfing á tilraunir demokrata til að endurskoða heilbrigðistryggingakerfi Bandaríkjanna. Þannig lítur út fyrir að demokratar séu tilbúnir til að koma málinu í gegn um „reconciliation“ – láta öldungadeildina kjósa um frumvarpið samkvæmt hreinum meirihlutareglum, og svo virðist sem „the public option“ sé aftur að komast á dagskrá. Reyndar hefur [...]

Heilagur Petraeus fordæmir pyntingar

Ef það er einn maður sem stríðsáhugamenn og repúblíakanar í Bandaríkjunum og Evrópu hafa hafið upp til skýjanna þá er það heilagur David Petraeus, dýrlingur af The Surge, en einnig þekktur sem „Svikmundur„. Nema hvað. Meðan Bush var enn forseti voru stríðsáhugamenn almennt þeirrar skoðunar að það ætti að hlusta á Petraeus. Stefna forsetans þegar [...]

Palin palin palin palin… ad infinitum

Steven Colbert kemur Palin til stuðnings: Mér var bent á að það væri nú orðið ansi leiðigjarnt að lesa bara um Palin og nýjasta heimskuuppátæki hennar. Eins og það væru fréttir. Jú: við vitum öll að Palin er bjáni, og það er vissulega fyndið að fá afsökun til að nota orðasambandið „fucking retarded“. Ég og Rush Limbaugh [...]