Eldri færslur fyrir 'allt sem endar á "-gate"'

Siðferðisbrestir Blagojevich útskýrðir

Narsissískar persónuleikatruflanir eða hárið? Nei. Því auðvitað er „menningarstríðsvínkill“ á þessu máli eins og öllum öðrum bandarískum fréttum – og auðvitað má rekja rætur spillingarinnar til almenns siðleysis allra vinstrimanna allstaðar alltaf.
Kathryn Jean Lopez á National Review útskýrir í nýjasta dálki sínum Blagojevich, en hún hefur áður lýst yfir ánægju sinni með spillingarmál Blagojevich með [...]

Meira af pólítískri misbeitingu dómstóla í Alabama

Í gærkvöld skrifaði ég stutta færslu um makalaususar fréttir af því hvernig Repúblíkanar í Alabama, með dyggum stuðningi og hugsanlega fyrirmælum Karl Rove og Hvíta hússins stóðu í pólítískum ofsóknum gegn Don Siegelman, demokrata og fyrrverandi ríkisstjóra Alabama. Siegelman var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir opinbera spillingu, en það er allt sem bendir til [...]

Gonzales sviptur nafnbótinni “lögfræðingur ársins”

Á miðvikudaginn tilkynntu lögfræðingasamtök Bandaríkjanna, American Bar Association, að þau hefðu tilnefnt Alberto Gonzales „lögfræðing ársins“. Ekki fyrir að vera góður lögfræðingur, því Gonzales, í embætti sínu sem dómsmálaráðherra í ríkisstjórn George W Bush, hefur líklega gert meira en flestir aðrir Bandaríkjamenn til að grafa undan lögum og rétti og stjórnarskrárvörðum réttindum borgaranna, heldur fyrir að vera [...]

Klámskandalar og Karl Rove?

Nú er farinn af stað heljarinnar orðrómur þvert og endilangt um öll veraldarrörin um að síðasti skjalaeyðinga/yfirhylmingaskandall Hvíta Hússins snúist raunverulega um internetklám. Reyndar er þessi klámvínkill örlítið langsóttur, og orðrómurinn enn á fósturstígi, en þar sem einu fréttirnar sem mér finnast skemmtilegri en fréttir sem snúast um spillingarmál þar sem valdasýki, dómgreindarleysi, og hroki koma [...]

Klósett-gate skandall Repúblíkana til sölu á Ebay

Veraldarvefirnir hafa gert mikið til að breyta gangverki  pólítískra skandala. Fyrst var það blogospherið, svo var það youtube, og núna er Ebay farið að mjólka aulaskandala Washington. Svo virðist nefnilega sem bloggarinn Mike Rogers, sem var fyrstur til að afhjúpa samkynhneigð Larry Craig og lék lykilhlutverk í að Idaho Statesman fór að grafast fyrir um [...]

Dómsmálaráðuneyti Gonzales neitar að segja hversu margir saksóknarar voru reknir

Það hefur tiltölulega lítið frést af framhaldssögunni „Gonzalesgate“ undanfarnar vikur. Aðallega vegna þess að dómsmálaráðherran og forsetinn ákváðu að besta leiðin til að þegja málið í hel væri að segja ekki orð: starfsmönnum Hvíta Hússins var bannað að mæta í vitnleiðslur fyrir þinginu, og beiðnum dómsmálanefnda þingsins og öldungadeildarinnar um upplýsingar eða opinber skjöl er [...]

Leiðari NYT: Dómsmálaráðuneyti BNA notað til að hjálpa repúblíkönum að vinna kosningar?

Þó dómsmálaráðherran minnislausi, Alberto Gonzales sé enn við völd er engin endir í sjónmáli í vangaveltum stjórnmálaskýrenda, blaðamanna og bloggara um allar hliðar Gonzales-gate. Nýjasta hliðin á þessu máli er að dómsmálanefnd þingsins hefur óskað eftir skýrslum og útskýringum á aðdraganda þess að dómsmálaráðuneytið hóf rannsókn á nokkrum pólítíkusum flokksins fyrir síðustu kosningar. Aðdragandi þessara [...]

Leiðari NYT: Þingið neyði Gonzales úr embætti

Í leiðara sínum á sunnudaginn lýsti New York Times því yfir að blaðið teldi að Bandaríkjaþing ætti að hefja umræður um bindandi vantraustsyfirlýsingu á hendur Alberto „I can’t recall“ Gonzales. Og þó New York Times sé frekar „vinstra“ megin en t.d. Wall Street Journal eða Washington Times, er mjög óvanalegt að bandarísk dagblöð taki með [...]

Gonzales staðinn að því að ljúga að þinginu – ekki að það komi neinum á óvart

Ég hef ekki nennt að blogga mikið undanfarna daga – ekki vegna þess að það sé ekki búið að vera nóg um að vera. Aðalfrétt undanfarinna daga er búið að vera Gonzales-gate, en minnislausi Dómsmálaráðherran mætti fyrir þingnefnd eina ferðina enn, því þingið er ekki búið að gefa upp á bátinn að hann geti aulast til [...]

Raw story og Google gefa til kynna að Obama sé viðriðinn “The DC Madame” vændisskandalinn…

Ég skrifaði í gær færslu um yfirlýsingar Larry Flint um að hann hefði lista yfir 30 þingmenn sem hefðu keypt vændisþjónustu í Washington – Flynt fór síðan í viðtal til Larry King til að tala um þessar upplóstranir, og sagðist ekki vera búinn að ákveða hvenær eða hvernig hann ætlaði að fletta hulunni af öllum [...]

Fleiri hóreríisskandalar í uppsiglingu í Washington

Eitt helsta áhugamál þessa bloggs, Freedomfries, er að skrifa um perverta- og aðra dónaskandala – sérstaklega þegar hórkarlarnir hafa fengið hæstu einkunn frá Family Research Council, og hafa barist fyrir „hefðbundnum fjölskyldugildum“ og úthrópað „vinstrimenn“ fyrir að bera ekki virðingu fyrir helgi hjónabandsins. Það er fatt ömurlegra en öldungadeildarþingmenn á borð við David Vitter, (Repúblíkani [...]

Alberto Gonzales staðinn að því að ljúga að þinginu

Washington Post greinir frá því í morgun að Alberto Gonzales hafi fengið afhenta skýrslu, sem greindi í smáatriðum frá margvíslegum brotum alríkislögreglunnar á The Patriot Act, sex dögum áður en hann mætti fyrir þingið og lýsti því staðfastlega yfir að hann vissi ekki um eitt einasta tilfelli þess að FBI hefði brotið umrædd lög.
Að vísu [...]

Fred Thompson var flugumaður Nixon í Watergate rannsókninni

Boston Globe flutti í fyrradag (ég var of upptekinn við að grilla og halda upp á þjóðhátíðardaginn til að geta staðið í bloggi og fréttalestri!) fréttir af því að þátttaka Fred Thompson í rannsókninni á Wategate skandalnum sé síst eitthvað sem Thompson eigi að vera að gorta sig af eins og hann gerir á heimasíðu [...]