Obama vinnur 2012, nema suðurríkin

Ef við tökum kannanir á vinsældum/óvinsældum Obama og sigurmöguleikum Mitt Romney trúanlegar lítur út fyrir að Obama sé í alvarlegum vandræðum og að Mitt Romney eigi barasta nokkuð góðan séns á að vinna. Fréttastofa RÚV flutti eina svona frétt í byrjun síðustu viku. RÚV:

Óánægja bandarískra kjósenda með frammistöðu Baracks Obama Bandaríkjaforseta eykst á ný. … Fylgisaukningin sem Obama naut eftir að bandarískir sérsveitamenn réðu Osama bin Laden af dögum reyndist skammlíf. Þá sögðust 56 prósent ánægð með frammistöðu forsetans en nú segjast einungis 47 prósent vera þeirrar skoðunar. Þeir sem eru óánægðir með frammistöðu hans eru ívið fleiri, eða 49 prósent. …

Þrátt fyrir að þetta séu slæm tíðindi fyrir forsetann eru möguleikar hans á endurkjöri enn góðir. Sex hafa gefið kost á sér í forvali repúblikana fyrir forsetakosningar á næsta ári. Könnunin gefur til kynna að Obama myndi leggja fimm þeirra að velli. Sá eini sem gæti veitt honum keppni í dag er Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri í Massachusetts. Þeir mælast jafnir meðal allra aðspurðra en ef aðeins er horft til skráðra kjósenda hefur Romney þriggja prósentustiga forskot.

Það kom ekki fram á hvaða könnun frétt RÚV byggðist, en könnun sem CNN birti um þetta leyti sýndi að vinsældir Obama hefðu fallið ur 54% sem sögðust ánægð í lok maí í 48%. En í þeirri könnun kom fram að þessi aukning á óvinsældum byggðist fyrst og fremst á því að hann var óvinsælli meðal Repúblíkana en áður. Þannig að það var allsendis óvíst að þessi samdráttur í vinsældum hefði breytt neinu um líkur hans á endurkjöri.

En það sem skiptir kannski meiru: Óvinsældir Obama eru nánast alfarið bundnar við Suðurríki Bandaríkjanna. Og það er bara í suðurríkjunum sem Romney gæti sigrað Obama. Annarsstaðar er Obama með nokkuð öruggt forskot. MSNBC:

Obama is at 50% or higher in every region except the South: … Obama leads Romney by six points (49%-43%) in a hypothetical general-election match up, despite all the grim economic numbers in the poll. But when you look at the Obama-vs.-Romney split by region, you see Obama’s lead over Romney is even stronger when thinking about the Electoral College. Obama is at 50% or higher against Romney in the Northeast (54%-36%), Midwest (50%-41%), and West (55%-40%). The one place that’s bolstering Romney’s numbers is in the South, where the Republican leads by a 49%-43% margin. Similarly, Obama’s overall job-approval is above 50% everywhere outside the South.

Kosningastrategía Obama 2012 verður því „whistling past Dixie„, eins og það heitir. Og þó það hafi einu sinni verið þannig að það gæti enginn forsetaframbjóðandi unnið sem tapaði suðurríkjunum er það ekki lengur þannig. Það lítur sömu leiðis út fyrir að frambjóðendur demókrata til þings og öldungadeildar í suðurríkjunum muni eiga mjög á brattann að sækja, sem ætti enn frekar að verða til þess að flokkurinn leggi áherslu á að vinna í öðrum landshlutum þar sem hann hefur mun sterkari stöðu.



Ummæli

Ummæli frá Rósa
Rituð: 16. júní, 2011, 15:30

Takk fyrir góð skrif um USA.

Efnahagsmálin vinna gegn Obama. Staðan í haust hvað atvinnuleysi varðar verður mjög mikilvæg hvað varðar sigur möguleika hans.

Breytt demografía vinnur með Obama.

Þetta verða tveir stærstu ásarnir og munu ráða úrslitum.

Ummæli frá freedomfries
Rituð: 16. júní, 2011, 20:36

Og teboðshreyfingin. Hún vinnur líka með Obama.
Varðandi demógrafíuna: Það hafa verið nokkrar vísbendingar um að Obama og demókratarnir ætli að reyna að gera innflytjendamál að kosningamáli. Það, og medicare gæti dugað þeim til að ná eldri kjósendum og hispanics – yngri kjósendur kjósa hann líklega ennþá. Þá sitja repúblíkanar uppi með reiða miðaldra hvíta kjósendur. Ef þeir eru nógu reiðir gæti það kannski dugað, en kannanir benda til að þeir séu hreint ekkert sérstaklega ánægðir heldur með sína menn.
En all in all hef ég engar áhyggjur af Obama, eins og stendur. Eina sem gæti sökkt honum væri einhverskonar Weiner-skandall. Eitthvað nógu fáránlega niðurlægjandi og idjódískt.
Nú, eða að það kæmi upp úr dúrnum að hann væri í raun og veru fæddur í Kenýa!

Rita ummæli





Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og sex? Svar: