Póstmódernísk sagnfræði frú Palin
Þekking eða túlkun Söru Palin á Bandarikjasögu vakti mikla athygli í síðustu viku, en þá breytti hún Paul Revere í einhverskonar NRA talsmann og bjöllufífl sem hefði riðið um góland, hringjandi bjöllum og skjótandi viðvörunarskotum, allt til að vara breska herinn við Bandaríkjamönnum. Síðan þá hefur Palin komið fram og ítrekað þessa sagnfræði sína:
PALIN: You know what? I didn’t mess up about Paul Revere. Here’s what Paul Revere did. He warned the Americans that “the British were coming, the British were coming.” And they were going to try to take our arms so got to make sure that, uh, we were protecting ourselves and, uhm, shoring up all of our ammunitions and our firearms so that they couldn’t take them.
But remember that the British had already been there — many soldiers — for seven years in that area. And part of Paul Revere’s ride… And it wasn’t just one ride. He was a courier. He was a messenger. Part of his ride was to warn the British that were already there that, “Hey. You’re not going to succeed. You’re not going to take American arms. You are not gonna beat our own well-armed, uh, persons, uh, individual private militia that we have. He did warn the British.
And in a shout-out, gotcha type of question that was asked of me, I answered candidly. And I know my American history.
Um þetta sagði Joe Scarborough að „Everything is a gotcha question with her, isn’t it?“. Og sagnfræðingar sem ABC fréttastofan ræddi við, þar á meðal James Giblin, sem er margverðlaunaður fyrir að skrifa aðgengilegar og auðlæsilegar bækur um sagnfræði fyrir skóla, börn og unglinga, meðal annars bók sem nefnist The Many Rides of Paul Revere, staðhæfir að frásögn Palin sé hreint rugl.
En það er rétt að hafa í huga að svona menn, einhverjir „sagnfræðingar“ eru upp til hópa elítistar og vinstrimenn. Merkikerti sem þykjast vita allt betur en venjulegt fólk. Og í ljósi þess að sagan er síbreytileg, allt eftir því hver horfir og hvaðan, og allt tal um sögulegan sannleik eða staðreyndir hreinasta hrokapíp ákváðu stuðningsmenn Palin að fara inn á Wikipedia og hreinlega breyta frásögninni af Paul Revere, svo hún passaði betur við túlkun Palin. NYT The Caucus:
Over the course of the weekend, people added sentences to the Revere article that repeated Ms. Palin’s claims. It can be hard to discern motives for changes on Wikipedia, and in some cases people appeared to be attributing the claims to Ms. Palin in order to mock her.
One editor, Tomwsulcer, added the following sentence: “Accounts differ regarding the method of alerting the colonists; the generally accepted position is that the warnings were verbal in nature, although one disputed account suggested that Revere rang bells during his ride.”
When the discussion board for the Revere article was ringing with complaints that this was a lie, Tomwsulcer replied that it should be included as a theory because a prominent American politician, that is, Sarah Palin, had said it. “If you follow Wikipedia’s rules,” he wrote, “we must maintain a neutral position, representing the mainstream position as well as disputed versions.”
Sem er auðvitað mjög póstmódernískt viðhorf til sagnfræði. Ef einhverjum dettur í hug að hafa eitthvað viðhorf eða sjónarhorn til sögunnar sé það ekkert betra eða verra en önnur viðhorf til sögunnar. Það séu hvort sem er alltsaman viðhorf, og það er það beinlínis skylda okkar að leyfa öllum sjónarmiðum að fá að njóta sín. Annað væri skoðanakúgun og einhyggja og elítismi… Hið póstmóderníska sögustríð Palin endaði hins vegar með ósigri endurskoðunarsinnanna. Þ.e. á Wikipedia. Á Conservapedia, sem er Wikipedia fyrir hægrimenn, sótthreinsuð af vinstrisinnuðum áróðri og háskólalygum, höfðu Palinverjar betur.
The piece has been edited to read as follows: “He is famous for riding from Boston to Lexington, Massachusetts with William Dawes on the night of April 18, 1775 ringing bells to warn the British that colonists would exercise their natural rights to both bear arms and use them in an effort secede from the United Kingdom in response to Big Government bullying and interfering with Colony’s Rights.”
Fyrir utan að vera „sjónarhorn“ er öll sagnfræði, og öll fræðimennska, auðvitað líka einhverskonar „pólítík“. Og hver þykist þess umkominn að segja hvað sé rétt og hvað ekki?
—–Update—–
Í umfjöllun um þetta sagnfræði-gate og þau svör Palin að það megi rekja til einhverrar „shout-out, gotcha type of question“ hefur alveg gleymst að segja hverju hún var að svara. Ed Brayton á Dispatches from the Culture Wars er með svarið þessari spurningu:
Now Sarah Palin claims that she was right about Paul Revere and that it’s all the media’s fault for asking her another „gotcha“ question. Here’s the actual question she was asked when she gave that bizarre, word-salad answer:
„What have you seen so far today, and what are you going to take away from your visit?“
Þetta er aldeilis svívirðileg „gotcha type question“. En það verður að segjast að þegar Palin segist hafa svarað heiðarlega „…I answered candidly. And I know my American history.“ er það sennilega líka rétt. Hún var spurð að því hvað hún hefði lært af safnaheimsókn sinni þann daginn og hvaða skilning hún legði í þá sögu – og hún sagðist kunna sína Bandaríkjasögu. Hvernig átti henni að detta í hug að fólk væri að biðja hana um að hafa eftir hvað einhverjir sagnfræðingar segðu að hefði gerst?!
Fært inn 8. júní, 2011 undir heimska og fáfræði, Sagnfræði.
Ummæli: engin
| Facebook

Rita ummæli