Bandaríkjasaga a’la Palin

Bloggarar og fjölmiðlafólk í bandaríkjunum hefur skemmt sér konunglega yfir mögnuðum söguskýringum Söruh Palin. Hér er hún að rifja upp söguna af Paul Revere:

He who warned, uh, the British that they weren’t going to be taking away our arms uh by ringing those bells and making sure as he’s riding his horse through town to send those warning shots and bells that we were going to be secure and we were going to be free and we were going to be armed.

Öll bandarísk börn lærðu söguna af „Paul Revere and his midnight ride“ átta eða níu ára gömul. Hið rétta er að Paul Revere varaði John Hancock og Samuel Adams við ferðum breska hersins, og þar sem það valt allt á því að enginn yrði hans var var hann augljóslega ekki með neinar „bjöllur“, og hleypti ekki af neinum „warning shots“, og ég held að þessi furðuútgáfa Palin af sögunni sé álíka klók og að íslenskur stjórnmálamaður rifjaði það upp fyrir blaðamönnum hvernig “Hannes Hafstein hafi barið í borðið á þjóðfundinum í Iðnó og varað Íslendinga við því að Danir myndu aldrei samþykkja sjálfstæði Íslands því „Þeir mótmæla allir!“ og hvatti Íslendinga til að gefa ekki handritin í skiptum fyrir stjórnarskrá.“

En það er óþarfi að örvænta, því söguskilningur Palin virðist fara batnandi. Um daginn rifjaði Palin svo upp fyrir Bandaríkjamönnum að frelsisstyttan væri líka „a warning„:

“Lady Liberty is the symbol of unity and friendship we have with other freedom-loving nations. It’s also a “warning” of sorts, as France encouraged us to keep democracy alive as the recipient of this gift… basically telling us not to blow it. Thank you for this reminder, France!”

Styttan, sem var gjöf frá Frökkum, átti reyndar að tákna von, ekki viðvörun, en það er kannski smekksatriði – Palin vill sjá viðvaranir við ógnunum í öllum hlutum, ekki von og trú. Aðalatriðið er auðvitað að túlkun Palin á sögulegri merkingu frelsisstyttunnar hefur tekið miklum framförum síðan fyrir ári síðan þegar hún hélt því fram að frelsisstyttan væri gjöf erlendra þjóðhöfðingja sem vildu að Bandaríkin fylgdu ekki fordæmi þeirra og tækju upp sósíalisma:

“This Statue of Liberty was gifted to us by foreign leaders, really as a warning to us, it was a warning to us to stay unique and to stay exceptional from other countries. Certainly not to go down the path of other countries that adopted socialist policies,” Palin said to cheers from the crowd.

Það má líka rifja upp að Jón Arason var einmitt drekkt í Snorralaug af útsendurum dönskum maóistum fyrir að berjast gegn þjóðnýtingu og tilraunum þeirra til að koma á samyrkjubúum.

Og svona að lokum, smá Sue Sylvester – Palin combo:



Rita ummæli





Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og fjórum? Svar: