Bloggheimar til varnar Baldri Hermanssyni
Það hefur verið merkilegt að fylgjast með viðbrögðum í netheimum við máli óþverrabloggarans Baldurs Hermanssonar. Baldur hefur margsinnis, með ógeðslegu málfari, farið langt yfir þær línur sem gilda í mannlegum samskiptum á netinu. Allur samskiptastíll Baldurs á bloggi hans og í athugasemdaskrifum á bloggi og Facebook einkennist af ótrúlegum dónaskap í garð samborgaranna, og þó sérstaklega kvenna.
Óþverraleg skrif hans hafa oft náð því stigi að hann tali „í gríni“ að eigin sögn, um að nauðga konum. Tvö þessara skipta hafa komið upp í umræðu síðustu daga – þar sem hann „grínaði“ með að Sóley Tómasdóttir væri kelling sem vildi láta nauðga sér:
Og í kjölfar dóms yfir nímenningunum sem voru sýknaðir af árás á Alþingi lét hann þau orð falla að réttast væri að loka nímenningana inni í búri og „áreita kellingarnar kynferðislega“.
Og sýna kellingunum kynferðislega áreitni. Ekki má gleyma því.
Það sér flestallt sæmilega siðmenntað fólk að það talar enginn heilvita maður með þessum hætti á opinberum vettvangi.
En þó ekki alveg allir. Athugasemdir fæstra, t.d. á DV, voru á því plani að það taki því að svara þeim. En inntakið í flestum var að Baldur væri nú svo fyndinn, og það væri hin versta svívirða að honum væri sýnd þessi ritskoðun. Baldur sjálfur heldur því fram í viðtai við DV að þetta sé nú bara kerskni, hann sé svoddan óttalegur brandarakall sem alltaf er að stríða fólki.
Nokkrir bloggvinir Baldurs af Moggablogginu tóku líka upp hanskann fyrir hann. Magnús Sigurðsson á Moggablogginu var mjög uppsigað við húmorsleysi sem, sem hann reyndar telur jaðra við ofsóknir:
Baldur Hermannson er einhver litríkasti bloggarinn hérna á mbl blogginu. Það þarf einbeittan vilja til að skilja ekki húmorinn hans Baldurs. Hvernig verður komið fyrir málfrelsi og hressilegri umræðu ef vinnustaðir eins og Flensborg fara almennt að veita starfsfólki áminningu vegna ummæla á óskyldum vettvangi s.s. bloggsíðum og facebook?
Það er greinilegt á fréttum síðustu daga að DV er komið í krossferð gegn Baldri Hermannsyni og heldur aðförinni áfram dag eftir dag. Eftir að hafa gert heimildaþættina „Þjóð í hlekkjum hugarfarsins“ ætti Baldri að hafa verið það ljóst að gálgahúmor getur vakið upp einkennilegar hvatir sem fólk er tilbúið til að láta bitna á hlutaðeigenda á óskildum vettvangi.
„Málfrelsi“ og „húmor“. Þetta eru tvö meginrök nafna míns. Það er eitthvað vont fólk sem hatar Baldur og „gálgahúmor“ hans sem vill kæfa niður „hressilegar “ umræður. Annar bloggari, Páll Vilhjálmsson tók í sama streng – þótti Baldur vera fórnarlamb húmorslausra ritskoðandi byltingarsinna:
Carlin Romano kennari og menningarrýnir skrifaði frægan bókadóm í tímaritið Nation haustið 1993 þar sem hann í huga sér nauðgaði þekktum bandarískum femínista, Katrínu MacKinnon. Punkturinn hjá Romano var að sitthvað er hugsuð nauðgun og framkvæmd. Á Vesturlöndum er tjáningarfrelsi þar sem mönnum leyfist að tjá hugsanir sínar.
Á Íslandi er að verða til ný hefð sem heitir múgréttur. Samkvæmt þeim rétti leyfist ofbeldisfólki að leggja undir sig alþingi án eftirmála. Þeir sem voga sér að andæfa múgræðinu eiga á hættu að fá á sig áminningu, séu þeir svo óheppnir að vera opinberir starfsmenn.
Vandinn er þessi: múgrétturinn starfar í skjóli sitjandi ríkisstjórnar.
Það er athyglisvert að Páli tekst hér að snúa öllu á haus og búa til úr þessu einhverskonar allsherjarsamsæri þar sem ríkisstjórnin vinnur með einhverjum ímynduðu ofbeldisfólki sem á víst að hafa lagt undir sig Alþingi að því að þagga niður í pólítískum andstæðingum. Baldur Hermansson verður þar með einhverskonar hugrakkur höfundur samizdat-bókmennta á internetinu? Frelsisbaráttumaður sem kommúnistarnir hafa nú þaggað niður í? Einhverskonar Solzhenitsyn, nema Baldur skrifar ekki bókmenntir af samúð með samborgurunum og djúpum skilningi á mannlegu eðli, heldur heldur Baldur úti síðu á moggablogginu þar sem hann klæmist og ryður út úr sér óþverra og svívirðingum, innblásnum af stæku mannhatri.
En allir þurfa sínar frelsishetjur, og Páll Vilhjálmsson má eiga Baldur fyrir sinn eigin persónulega Solzhenitsyn.
Flestir sem hafa tjáð sig um þetta mál hafa þó kosið að seilast ekki jafn langt og Páll sem telur Baldur fórnarlamb pólítískra ofsókna. Flestir láta sér nægja að sjá hér að verki „húmorsleysi“. Hann sé eins og Magnús Sigurðsson Moggabloggari vill meina fórnarlamb húmorslauss fólks sem vill kæfa „hressilegar“ umræður, þ.e. leyfi gamalla karlfauska til að klæmast á almannafæri – og ekki bara klæmast, heldur að klæmast með ofbeldisfullu tali.
Annar moggabloggari, Jón Ríkharðsson tekur upp þennan þráð, leggur áherslu á að Baldur sé „greindur“ og „skemmtilegur“ maður:
…hann orðar hlutina á sinn hátt, enda er hann einn af mest lesnu bloggurum hjá mbl.is. Ef menn sleppa móðursýkinni og notast við lesskilning sem þjálfast hjá flestum, þá er heilmikið til í pistlunum hans.
Tilsvörin hjá honum í athugasemdarkerfinu eru hreint frábær, hnyttnar athugasemdir til manna, blandaðar skemmtilegum húmor ættu að geta komið þeim í gott skap, sem ekki þjást af ofurviðkvæmni og árásarhneigð í garð þeirra sem eru þeim ekki sammála.
Auðvitað á það að koma fólki í „gott skap“ að heyra einhvern grínast með að konum sé nauðgað, enda er það „skemmtilegur húmor“. Af hverju skilur sumt fólk ekki svona skemmtilegan húmor? Þegar haft er í huga að Baldur vill yfirleitt láta nauðga eða berja það fólk sem er honum ósammála er líka stórfurðulegt að fólk sem er honum ósammála skuli ekki kunna að meta kímnigáfuna í þessari rökræðulist hans. Baldur beitir tali um ofbeldi og nauðganir beinlínis sem rörkæðutækni, og þegar hann er konfronteraður með óþverrann fer hann undan í flæmingi, og segist bara hafa verið að grínast. „Nei, nei, nei. Þetta er bara gert til þess að stríða.“
Og það er eiginlega mikilvægasta spurningin, því eina raunverulega vörnin sem nokkur maður getur haft uppi fyrir talsmáta eins og þann sem Baldur stundar, er að það sé „grín“. Baldur hafi nú bara svona ógeðslegan húmor, og við hin eigum að umbera þennan persónulega húmor hans.
Einn kommentaskrifari hér á síðunni setti spurninguna upp með þessum hætti:
Það er samt merkilegt hvað kynferðislegt ofbeldi virðist koma við kvikuna í fólki, meira annað. Það er nánast alsiða að „grínast“ með hengingar, hálshögg, drekkingar og hvaðeina og enginn kippir sér upp við neitt, jafnvel þótt það sé auðvitað í hæsta máta viðbjóðslegt. En um leið og orðið „kynferðisleg áreitni“ er notað (ath. orðavalið) verður allt vitlaust.
Þessu er í raun auðsvarað:
Það er vegna þess að kynferðislegt ofbeldi er almennt talið alvarlegra en annað ofbeldi, og vegna þess að það er oftast framið fyrir luktum dyrum og er í raun og veru mun algengara en við viljum viðurkenna.
Það má hugsa þetta svona:
Hversu margir karlmönnum eru hálshöggnir, þeir hengdir eða þeim drekkt í hverri viku, í alvörunni , á Íslandi? Að jafnaði enginn.
Þvínæst spyr maður sig: Hversu margar konur og börn ætli verði á hverjum degi fyrir kynferðislegu ofbeldi hér á landi? Hvort heldur það er af höndum einhvers ókunnugs, vinar eða náinst fjölskyldumeðlims?
Hversu mörg þessara tilfella koma svo upp á borð lögreglu?
Hversu mörg þeirra enda með því að ofbeldismaðurinn hlýtur refsingu?
Maður sér þá í hendi sér ástæðuna fyrir því að fólki finnst ógeðfellt að hlusta á menn grínast með að nauðga konum eða beita þær kynferðislegu ofbeldi. Það er mikið af mönnum sem gera einmitt það í alvörunni, og mjög mjög fáir þeirra þurfa nokkurn tímann að borga fyrir misgjörðir sínar, og það er mikið af fórnarlömbum slíkra manna meðal okkar. Maður getur aldrei vitað hvort manneskja sem maður talar við hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi, og því ber manni ævinlega að sýna fyllstu nærgætni þegar talað er um kynferðislegt ofbeldi. Hvað þá að maður „gríni“ með að það þurfi að nauðga þessum og hinum.
Á sama tíma og kynferðislegt ofbeldi er mjög algengt og kynferðisafbrotamenn ganga yfirleitt lausir er mjög fátítt að menn séu hálshöggnir, þeim drekkt eða þeir hengdir, og samfélaginu tekst nokkuð vel að hafa hendur í hári morðingja. Og samt finnst okkur mjög óþægilegt ef einhver „grínast“ með að myrða fólk, og lítum á slíkt grín sem morðhótanir, sama hversu mikið „grín“ kann að búa að baki. Með sama hætti finnst fólki óþægilegt þegar það er „grínað“ með að því eða einhverjum sér nákomnum sé nauðgað. Baldur hefur meira að segja gengið lengra - hann hefur beinlínis talað fyrir því að konur séu beittar kynferðislegu ofbeldi. Ég veit ekki, en ég get ekki séð að slíkan „húmor“ eigi að umbera.
Fært inn 2. mars, 2011 undir Íslensk stjórnmál, skítlegt innræti.
Ummæli: 13
| Facebook
Ummæli
Ummæli frá ábs
Rituð: 2. mars, 2011, 13:42
Ónefndir eru þeir sem vilja ekki banna óþverraskrif né láta reka fólk úr vinnu fyrir þau. Ég er í þeirra hópi. Því við vitum alveg hvar það gæti endað; það er a.m.k. hægt að ímynda sér það að í hægri fasistaríki yrði höfundur freedomfries handtekinn fyrir „óþverraskrif“ og róg um stjórnvöld. Þú veist hvert ég er að fara … Það er hins vegar alveg sjálfsagt að vekja athygli á óþverralegum skrifum og fordæma þau, eins og þú ert umfram allt að gera.
Ummæli frá Siggeir F. Ævarsson
Rituð: 2. mars, 2011, 14:15
Ég held að fæstir séu að tala um að láta reka Baldur. Fólk var einfaldlega að kalla eftir sterkari viðbrögðum frá Flensborg en komu frá þeim í upphafi.
Ummæli frá Anna
Rituð: 2. mars, 2011, 14:18
Frábær pistill. Ég er ekki sammála ábs um það að það jaðri við fasisma að áminna menn fyrir slík skrif. Málfrelsið er ekki ótakmarkað. Sá sem vill málfrelsi án nokkurra takmarka eða ábyrgðar, styður um leið málflutning eins og þann þegar tútsar voru kallaðir „kakkalakkar“ og hvatt til morða á þeim í útvarpi í Rúanda á sínum tíma. Allir vita hvar það endaði. Það er ekkert grín að hvetja til kynferðislegs ofbeldis eða láta eins og allar konur þrái það. Sérstaklega ekki hjá manni sem kennir áhrifagjörnum ungmennum.
Ummæli frá Hildur Lilliendahl
Rituð: 2. mars, 2011, 15:02
En finnst þér þá, Ágúst, að menntaskólakennarar eigi að halda vinnunni sama hvað þeir segja opinberlega, svo lengi sem þeir segja það ekki innan skólastofunnar eða á vinnutíma? Ætti ekki heldur að reka hann ef hann lýsti sömu viðhorfum gagnvart t.d. börnum?
Ummæli frá Jón Frímann
Rituð: 2. mars, 2011, 15:21
Það má einnig benda á að þetta eru einnig þeir menn sem hafa að einhverju leiti talað sem mest gegn ESB aðild Íslands. Þó svo að það komi þessu máli ekkert við. Þá er nauðsynlegt að benda það að mínu mati hvar þessir menn standa í stjórnmálunum og hvaða hugmyndafræði þeir aðhyllast.
Páll Vilhjálmsson er einnig stjórnarmaður í Heimssýn og að ég held blaðamaður á Morgunblaðinu.
Óþverrinn hefur skotið víða niður rótum í íslensku samfélagi.
Ummæli frá ÁJ
Rituð: 2. mars, 2011, 15:22
Það hefur farið fram mikil umræða um það hvað sé leyfilegt að nota sem efni í húmor og sumir segja: allt þess vegna.
En hvar er húmorinn í þessum dæmum? Hver er brandarinn? Er það fyndið í sjálfu sér að tala um að nauðga konum? Ef hann segði: ég ætla að drepa Sóleyju, væri það líka fyndið? En: Sóley vill að ég ræni börnunum hennar og brenni húsið hennar? Þykir mönnum þetta fyndin setning?
Er hægt að skýra gamansemina fyrir okkur treggáfuðum?
Ummæli frá Einar Karl
Rituð: 2. mars, 2011, 15:39
Sérstök þessi tilvitnun í komment við frétt, ég eyði nokkrum tíma í að lesa fréttir og umræðu á netinu, ég kannast alls ekki við að það sé „alsiða að „grínast“ með hengingar, hálshögg, drekkingar“.
Man í svipinn eftir einum bloggara sem „grínaðist“ með það að forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir ætti að hljóta sömu meðferð og Mussolini. Flestum fannst það bæði ófyndið og ósmekklegt.
Ummæli frá Guðgeir Kristmundsson
Rituð: 2. mars, 2011, 16:11
Þeir upplýsast þá bara sem finnst það gott og blessað að börn okkar séu í læri hjá ofstækismanni líkt og BH hefur opinberað sjálfan sig.
Svo koma auðvitað vanvitarnir fram á sviðið og blanda pólitík og stjórnmálaheimspeki í þessa umræðu. Líkt og þegar ég heyrði mann sem vill meina að sannir hægri menn haldi með Ísrael í baráttunni við Palestínumenn og þ.a.l. vinstra’hyskið’.
Nú tel ég mig frekar til hægri í klassískum skilningi stjórnmálaheimspekinnar og hef ég háskólagráðu í þessum efnum. Fátt finnst mér sorglegra í pólitískri umræðu hér á landi hvað ‘hægri og vinstri’ hugtökin eru illa misnotuð af vanvitum til að þau henti ákveðnum málstað þess liðs sem sá hinn sami ákvað að fylgja.
Mér skilst nefnilega á sumum að maður sé einhverskonar „vinstridrulla“ ef maður tekur afstöðu gegn ofstækismönnum líkt og BH. Hér á Íslandi hefur aldrei verið góður skilningur manna á ‘hægri og vinstri’ í klassískum skilningi. Fólk er dregið í þessa dilka sí og æ, eftir því hvaða skoðun það hefur á hinum ýmsum málum. Að lokum, gefast þeir ósjálfstæðu upp og tyggja allt sem ofstækismennirnir sem þeir ákveða að fylgja segja hvaða afstöðu þeir eiga að taka. Í nafni hægri og vinstri.
Páll Vilhjálmsson var hér nefndur og í góðu tilefni. Hann enn og aftur staðfestir heimsku sína í þessu pistli sínum. Hann er á góðum stað í félagsskap ýmissa heimskustu manna Íslands sem kenna sig við Heimssýn. Og, eins og venjulega er pistill hans ásamt flestu sem kemur frá þessu Heimssýnarfólki, órökstutt, ofsafengið og súrrealískt. Að sjálfssögðu fylgir því líka hræðsluáróðurinn sem hefur virkað svo vel í heiminum síðastliðnu áratugi.
En, gott þykir mér ævinlega að enn sé til fullt af skynsömu fólki sem lætur ekki blekkjast og segja sér hvernig það á að hugsa í krafti ‘hægri og vinstri’. Fólk sem hefur sóma af uppeldi sínu og siðgæði og fordæmir vitanlega hugaróra ofstækismanna á borð við BH. Hvort sem það er ‘hægri eða vinstri’.
Ummæli frá Gunnar Hrafn
Rituð: 2. mars, 2011, 20:40
Hefði þetta gerst í Svíþjóð hefði manninum verið sagt upp á nóinu.
Það er enginn munur á því að, í nafni málfrelsis, segja að konur dreymi um að láta nauðga sér, eða að segja að gyðinga dreymi um að láta lífið í gasklefa.
http://sv.wikipedia.org/wiki/Hets_mot_folkgrupp
Hvað er eiginlega að á Íslandi? Manni fallast hendur við það að fylgjast með þessari „umræðu“. Hvað fær konu til að skrifa komment eins og Klara Rúnarsdóttir skrifar við þessa frétt á DV:
http://www.dv.is/frettir/2011/3/2/formadur-kennarasambandsins-afar-sorglegt/
Haha órökuðu feministarnir byrjaðir að væla?
Hann sagði þetta í gríni…en svo er annað mál að Sóley hefði öruglega bara ágætt af því að láta ríða sér …með valdi eður ei…dont care…
Hugsar fólk ekki áður en það lætur út úr sér svona vitleysu?
Þetta er enn eitt dæmið um það að á Íslandi er allt í gríni. Ísland er bara eitt risastórt grín þar sem öllum leyfist að segja hvað sem er við hvern sem er. Allt er þetta gert í nafni málfrelsis. Það er nú meira helvítis málfrelsið! Og ef fólki er bent á það að það hafi farið yfir strikið fer allt í háaloft og maður er sakaður um að hafa ekki kímnigáfu! Þetta er svo sikk að það hálfa væri nóg, ég er við það að gefast upp á því að hafa skoðanir á þessu þjóðfélagi. Ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur. Ég æli bráðum yfir skinheilagleikanum og virðingarleysinu.
Ummæli frá he
Rituð: 2. mars, 2011, 21:24
Það er ansi sláandi þessi tenging við Heimsýn og ESB-andstæðingana. Þeir slá skjaldborg um einn úr sínum hópi þar sem Baldur er.
Þeir hafa enda rekið sinn málflutning á þessu siðferðiplani — að engu máli skipti hvað þeir segi og hvað er satt og hvað er logið af því sem þeir segja. Svo rísa þeir allir upp til varnar sóðakjaftinum því innibirðis eru þeir sammála um að þeir sjálfir mega segja hvað sem er og um þeirra orð gildi ekkert siðferði.
Það er einnig merkilegt að Páll Vilhjálmsson á að heita Vinstri-Grænn og fv Alþýðubandalagsmaður en hefur verið síðan hann kom fyrst fram í sjónvarpi verið ákafasti aðdáandi Davíðs Oddssonar sem sögur fara af.
Ummæli frá Andrés Ingi
Rituð: 2. mars, 2011, 21:34
Hér bera menn ekki umburðarlyndisskoðanir annarra í þverpokum.
Ummæli frá hildigunnur
Rituð: 3. mars, 2011, 11:17
Andrés nei, enda getur umburðarlyndi verið verulega ofmetið stundum…
Gunnar Hrafn, þessi Klara er örugglega ekki til – einn skráður vinur á facebook, engar færslur, ekki neitt, myndi ekki vera hissa ef þetta væri Baldur sjálfur. Nema þetta sé nátttröll.
Ummæli frá Páll J.
Rituð: 5. mars, 2011, 15:08
Ég vil nú halda því til haga að húmor sem snýst um nauðganir, morð og aðra fráhrindandi hluti getur verið mjög skemmtilegur, ég myndi ganga svo langt að segja að það sé fólki nánast eðlislægt að grínast með hræðilega hluti.
En Baldur? Brandarar þurfa að hafa punchline. Annars eru þeir bara staðhæfingar.

Rita ummæli