Fyrrum ráðherra delerar
Því það heitir að delera þegar menn tala tómt rugl sem á sér ekki neina stoð í raunveruleikanum. En semsagt. Einar Kristinn Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra, heldur úti bloggsíðu á moggablogginu þar sem hann skrifar um mál nímenninganna sem ákærðir eru fyrir „árás“ á Alþingi. Svo virðist sem sem Einar, sem var ásamt Össuri Skarphéðinssyni kallaður sem vitni verjanda í málinu, finnst honum hann þurfa að tjá sig um málið, svona til að vera alveg viss um að það fari enginn að halda að hann sé einhverskonar stuðningsmaður nímenninganna.
Einar byrjar á að staðhæfa að lögreglumenn og þingverðir hefðu afstýrt því að Alþingi yrði „hertekið“ 8. des 2008:
Það voru lögreglumenn og þingverðir sem afstýrðu því að Alþingi yrði hertekið 8. desember árið 2008. Atburðirnir á þingpöllunum þann dag voru aðeins upphafið. Átökin þar voru ekki hörð. Þingverðir og lögregla komu tiltölulega fljótlega til skjalanna og afstýrðu frekari látum. Það gerðu þeir með lagni og festu, sem dugði þarna.
Í kjölfarið gerðust aðrir atburðir og þeir miklu alvarlegri. Í stigaganginum þar sem almenningur fer um á leið sinni á þingpalla urðu háskalegir atburðir. Þar urðu átökin mjög hörð. Grímuklæddir einstaklingar reyndu að yfirbuga þingverði og lögreglu og þeir ollu meiðslum. Þar var mikil alvara á ferðum og því nauðsynlegt að láta þá sem ábyrgð bera axla ábyrgð fyrir dómstólum.
Um það snúast réttarhöldin yfir nímenningunum.
Þessi lýsing er út í hött. Eins og kom fram við réttarhöldin var enginn – ekki einn einasti úr þessum 30 manna hóp – vopnaður. Hvorki lögregla né þingverðir gátu borið vitni um að gestirnir hefðu borið með sér neitt sem hefði verið hægt að nota sem vopn. Engar heimildir eru heldur um að neinn úr hópnum hafi hótað líkamlegu ofbeldi. Ákæruvaldinu hefur ekki heldur tekist að sýna fram á að hópurinn hafi haft neinar ráðagerðir um að „hertaka“ Alþingi. Einar er hér einfaldlega að skálda upp hluti.
En hann heldur áfram:
Ef ekki hefði komið til ákveðin og fagmannleg framkoma lögreglu og þingvarða er augljóst mál að ofbeldisfólkið hefði ruðst inn á Alþingi. Þvi var afstýrt og fyrir það ber að þakka. Lögregla og þingverðir stóðu sig frábærlega vel.
Eitt af því sem helst stóð upp úr í réttarhöldunum var einmitt hversu ófagmannlega lögregla gekk fram. Enginn þeirra lögreglumanna sem voru á staðnum gat sagt hver hafði stýrt aðgerðum lögreglunnar. Enginn. Varla er það til marks um mikla „fagmennsku“. Allir – líka lögreglumennirnir – hafa lýst ástandinu sem svo að það hafi ríkt „kaos“ og vitni hafa lýst því hvernig lögregla öskraði og æpti. Ragnar Aðalsteinsson lýsti því sem svo að lögreglan hefði verið „dýróð“. Ekki er það heldur til marks um „fagmennsku“.
Því miður getum við ekki séð upptöku af þessum atburðum, því þó þeir hafi átt sér stað í andyri Alþingis, og þó að þeir hafi verið teknir upp á myndband, sá skrifstofa skrifstofustjóra Alþingis, eða þingverðir á hans vegum, til þess að myndbandið eyddist. Varla er það heldur til marks um mikla „fagmennsku“.
Þvert á móti.
Og enn heldur Einar áfram:
Árás á löggjafarsamkomu þjóðríkis er mjög alvarlegt mál. Það er forkastanlegt þegar reynt er að gera lítið úr því. Þegar þingmenn reyna að gera lítið úr þessu atviki er það aldeilis makalaust og þeim auðvitað til háborinnar skammar. Þetta er mjög alvarlegt mál.
Þetta er rétt. Auðvitað á ekki að gera lítið úr árás á löggjafarsamkomu þjóðríkis. En það má deila um hvort það sé „árás“ þegar hópur óvopnaðra manna hyggst neyta stjórnarskrárvarins réttar síns að heimsækja áhorfendapalla þings.
En hvaða rök hefur Einar fyrir því að hér hafi verið á ferð „árás“? Jú, hann vill meina að einhverjar „veikburðar dyr“ hafi næstum brotnað.
Eins og ég hef þegar lýst hér í síðasta bloggi þá mátti ekki miklu muna að mannfjöldi, sem var sýnilega í vígamóð. réðist inn um veikburðar dyr sem skilur að stigaganginn upp á þingpalla og ganginn fyrir framan þingsalinn. Þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum.
Það sem gerðist þann 8. desember 2008 var tilraun til árásar á Alþingi. Sem betur fer var þeirri árás hrundið.
Eins og margsinnis kom fram við réttarhöldin var erindi fólksins að komast á áhorfendapalla Alþingis – ákæruvaldið lagði ekki fram nein gögn sem bentu til annars. Enginn úr hópnum vissi af þessari veikburða hurð sem leiddi inn í Alþingi, ekki að það skipti neinu máli: EKKERT – nákvæmlega ekkert – í málflutningi ákæruvaldsins studdi við þá staðhæfingu að hér hafi verið á ferð skipulögð aðgerð og að markmið hennar hafi verið að „hertaka“ Alþingi.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér málið nánar mál nímenninganna þmt. vitnisburð lögreglumanna sem staðfesta að það hafi enginn lögreglumaður hafi vitað hver var við stjórn, er bent á uppskrift af öllum réttarhöldunum sem finna má á síðunni rvk9.org.
Fært inn 22. janúar, 2011 undir Íslensk stjórnmál.
Ummæli: 8
| Facebook
Ummæli
Ummæli frá Helgi Jóhann Hauksson
Rituð: 23. janúar, 2011, 3:10
Afhverju kemur þetta blogg ekki lengur fram á blogglista Eyjunnar yfir fyrst nýtt og svo sem nýlegt neðar á listann. – Þetta t.d. er efni sem ætti ríkt erindi við alla.
Ummæli frá Þorsteinn Úlfar Björnsson
Rituð: 23. janúar, 2011, 14:55
Er það möguleiki að einhver taki Einar Kristinn alvarlega?
Ummæli frá Sigurður Þór Guðjónsson
Rituð: 23. janúar, 2011, 15:32
Mbl. is vísar á bloggfærslu Einars eins og á eitthvað sem skipti máli.
Ummæli frá jón
Rituð: 23. janúar, 2011, 17:55
Þessi bloggfærsla Einars stangast allgjörlega á við vitnisburð hans í málinu:
Ragnar: Varð vitnið óttaslegið þennan dag?
Einar K: Nei, ég get ekki sagt að ég hafi verið óttasleginn. Ég sat þeim megin í þingsalnum að ég var fjærst áhorfendastúkunni og var ekki óttasleginn, ég hef velt fyrir mér hvort mér hafi verið brugðið, þarna var þingið rofið og auðvitað var þetta mjög óvenjulegur atburður en mér var ekki brugðið í þeim skilningi að ég fylltist ótta en auðvitað var mér brugðið.
Ummæli frá Gunnar Skúli Ármannsson
Rituð: 23. janúar, 2011, 21:29
Það er nánast móðgun við heilbrigða skynsemi að ætlast til þess að maður trú því að 20-30 óvopnaðir einstaklingar hertaki þingið. Þingmenn og starfsmenn hefðu auðveldlega getað rekið þau út án áðstoðar, þvílíkt rugl.
Ummæli frá stefán benediktsson
Rituð: 23. janúar, 2011, 23:23
Honum var svo brugðið að hann fékk radarsjón. Upplifði bæði það sem fór fram inni i þingsal og á ganginum fyrir framan þingsalinn, þegar „litlu munaði að mannfjöldi ryddist inn um veikburða dyr sem skilja að stigaganginn upp á þingpalla og ganginn fyrir framan þingsalinn.“
Ummæli frá Balzac
Rituð: 24. janúar, 2011, 1:20
,,veikburða“ dyr, ekki ,,veikburðar“
Ummæli frá Balzac
Rituð: 24. janúar, 2011, 1:24
,,ég hef velt fyrir mér hvort mér var brugðið … en auðvitað var mér brugðið“ segir þingmaðurinn í sömu setningunni :)
Rita ummæli