Palin og svindlmiða-gate

Það hefur verið gert mikið úr því að Obama notist við skrifaðar ræður – og að hann nýti sér nýjustu tækni þegar hann les ræður, þ.e. „teleprompters“. Þetta hefur hægripressunni Bandaríkjunum þótt merkileg sönnun þess hverskonar léttvigtarbjáni Obama sé. Svona sérstaklega í ljósi þess hverskonar hugsuði og snillinga hægrivængurinn hefur telft fram. Stjórnspekinga og -skörunga eins og Söru Palin.

Palin notast ekki heldur við skrifaðar ræður – eins og ætti að vera deginum ljósara af samhengislausum orðræðum eins og þessari…

En Palin þarf samt líka að nota minnispunkta – svona til að muna hvað það er sem hún ætlar að tala um. Ýmsar útgáfur af þessu myndbandi, sem sýnir Palin að svara spurningum á einhverskonar landsfundi tepokalýðsins sem haldinn var nú um helgina, hefur farið sem eldur í sinu um internetið:

Það lítur út eins og Palin sé að gægjast í lófann á sér… Og á fréttaljósmyndum af fundinum má greinilega sjá að Palin hefur skrifað minnispunkta í lófann – og það má meira að segja lesa hvað það var sem Palin taldi sig þurfa minnispunkta til að gleyma ekki:

palin_cheat_sheet

Muna að tala um „Energy, tax cuts, Lift American Spirits“… Bob Cesca:

She needed a cheat sheet to remember „energy“ and „budget tax cuts?“ What the bloody hell? These are her two big things and she needed them scrawled on the palm of her hand?

Konan ræður ekki við þrjú einföld slagorð? Mér fallast eiginlega hendur. En þetta skýrir allavegana af hverju allar ræður hennar eru fáránlega samhengislaus samtíningur af slagorðum.



Ummæli

Ummæli frá Einar Örn
Rituð: 7. febrúar, 2010, 16:39

Þetta er ótrúlega fyndið. Magnað að hún geti ekki einu sinni þulið upp þessi innihaldslausu slagorð.

Ummæli frá freedomfries
Rituð: 7. febrúar, 2010, 21:27

„fucking retarded“…

Ummæli frá Þorvarður
Rituð: 8. febrúar, 2010, 5:11

Hún er skilgreind sem „fucktard“ per Urban Dictionary. Annars hef ég verið að bíða eftir færslum frá þér varðandi tepokasamkunduna í TN. Hef lítinn tíma haft til að fylgjast með og svo verð ég svo helvíti argur ef ég heyri í þessu fólki. Hlustaði þó á bút af ræðu annars trúðs, Tom Tancredo, þar sem hann viðraði uppáhalds viðfangsefni sitt, innflytjendur. Og salurinn tókst á loft í hrifningarfrygð…

Ummæli frá Viðundur
Rituð: 8. febrúar, 2010, 15:32

Nýjasta nýtt; Palin vill að Bandaríkin lýsi yfir stríði á hendur Íran sem fyrst

Rita ummæli





Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og sjö? Svar: