Morðfýsn sveitavargsins

Fyrst ísbirnir, og nú sauðkindur? Ég legg nú ekki í vana minn að skrifa um íslensk mál, en mér fannst þessi frétt Vísis um dýraútrýmingaráhuga vestrirskra bjúrókrata alveg hreint stórmerkileg:

Smölun á villtu fé sem hefst við í kringum fjallshrygginn Tálkna verður reynd í dag á vegum Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Landið er afar erfitt yfirferðar og hefur þurft að skjóta það fé sem ekki næst til. Deilt er um það hvort þetta er nauðsynlegt en samkvæmt dýraverndunarlögum er lausaganga sauðfjár ekki leyfileg yfir veturinn af mannúðarástæðum. Það fé sem tekst að smala verður fært til slátrunar.

Síðan segir í fréttinni að hér sé á ferð meir en hálfrar aldar gamall stofn íslenskra „villisauðkinda“ sem hafi áður staðið af sér lokalausnatilraunir útsendara ríkisvaldsins á Vestfjörðum:

Ólafur Gunnbjarnarson, fyrrverandi fulltrúi í fjallskilanefnd þar vestra, segir að á Tálkna og svæðinu þar í kring séu að öllum líkindum um tuttugu kindur. Þær eru hluti af villtum fjárstofni sem hefur hafst þarna við frá því um 1950 en nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að útrýma honum af fyrrgreindum ástæðum. „Síðast þegar þetta var gert var féð skotið og hræin voru skilin eftir á víðavangi.“ Alls voru 23 kindur skotnar árið 2004.

„Rökin fyrir þessum árásum eru þau að ekkert megi vera til sem heitir villt sauðfé,“ segir Ólafur. „Ég er hins vegar á þeirri skoðun að það eigi að láta stofninn vera.“

En talsmenn útrýmingar halda þí vitaskuld fram að á bak við að aðgerðir þeirra sé ekkert annað en botnlaus manngæska þeirra og dýraást:

Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir að lögin séu skýr og sveitarfélögunum sé gert að koma fénu af svæðinu. Bæði hafi sýslumaður og héraðsdýralæknir krafist þess. Hann efast um að hægt sé að leyfa fénu að vera. Hann vilji ekki til þess hugsa að féð svelti í hel eða hrapi af klettum í vondum veðrum.

Nú verð ég að viðurkenna að ég hef aldrei áður heyrt af því að það væru „villikindur“ á Íslandi, að hreindýrin væru ekki eina tegund villtra stórra spendýra hér á landi. Og samanburðurinn við hreindýrin er ekki svo fráleitur, því líkt og þessar kindur eru þau innflutt og eiga frá náttúrunnar hendi ekkert erindi í íslenskri náttúru, en virðast dafna ágætlega. Líkt og kindurnar, því ef þær hafa lifað í nærri sex áratugi og staðið af sér minnst eina geryðingarárás sýslumanns þá hljótum við að geta sagt að þær hafi sannað sig.

Í ljósi þess hverskonar dálæti Íslendingar hafa á sauðkindinni finnst mér að við ættum öll að standa um þessar villikindur, sem glæsta fulltrúa íslenskrar þjóðarímyndar, villtrar náttúru og þrautseigju. Og í fyllri alvöru: Það hlýtur að vera hægt að selja hugmyndina um villikindina í landkynningu? Geta Vestfirðingar ekki gert þessar villikindur að auglýsingatrikki í „menningartengdri ferðamennsku“? Getum við ekki stofnað einhverskonar samtök til verndar hinni íslensku villikind?



Ummæli

Ummæli frá Anna
Rituð: 27. október, 2009, 13:36

Þessi mannúðarrök um að það sé betra að skjóta dýrin en leyfa þeim að deyja á annan hátt hljómar mjög svo undarlega. Mér finnst reyndar að þetta fé ætti að fá að vera án hirðis lengur en ég skil að dýralæknar vilji ekki hafa þessi dýr vappandi um upp á mögulega smitsjúkdómahættu.

Ummæli frá freedomfries
Rituð: 27. október, 2009, 13:40

Aaah… ég var ekki búinn að fatta þennan vínkil! „Fé án hirðis“ – ætli Pétur Blöndal sé þá á bak við þessa aðgerð?

Ummæli frá Andri Haraldsson
Rituð: 27. október, 2009, 13:53

Kannski er þessi villifénaður í galdrakukli.

Auðvitað miklu mannúðlegra að skjóta skepnur en leyfa þeim að lifa í náttúrunni. Ættum að fara mikinn á alþjóðlegum ráðstefnum og krefjast að frumskógarlögmálið verði tekið til endurskoðunar. Ella verði Amazonia et. al. sprengt með kjarnavopnum. Ómannúðlegt að láta þetta viðgangast.

Ummæli frá Tryggvi
Rituð: 27. október, 2009, 14:09

þessi aðgérð sýnir okkur vald embættismanna sem svo aftur vilja að náttúruval sé í þeirra hendi

Ummæli frá Bjarni Kjartansson
Rituð: 27. október, 2009, 15:19

Þessar kindur eru ekkert á leið að drepast.

Þegar ég var í sveitastjórn á Tálknafirði (við íahldsmenn í Dé-inu höfum verið með hreinan meirihluta lengst af eftir að Sovét stimpillinn fór af) var það skipun frá Dýralæknisembættinu fyrir sunnan, að allt fé í Tálnanaum skyldi drepið og það urðað.

Senda skyldi hausa suður til rannsókna á hvort þau væru ekkiundirlögð af Riðu.

Ekkert dýrana voru með Riðu og svo vel tókst til, að ekki tókst að drepa allann stofninn.

Þeta fé átti að urða og brenna en eitthvað fór á diska manna sem störfuðu við ,,slátrunina“ ljúffengt kjöt og skrokkarnir vöðvamiklir og ekki til nokkur merki vannæringar-öðru nær.

Þetta er bull í skriffinnum í Rvík en ekki úr heimamönnum.

Miðbæajíhaldið
fyrrum Vestfjarðaíhald

Ummæli frá Magnús
Rituð: 27. október, 2009, 16:09

Böl vestfirðinga hafa verið möppudýr í Reykjavík sem allt þykjast vita betur en „sveitavargurinn“.

Ummæli frá freedomfries
Rituð: 27. október, 2009, 17:29

Þá treystum við á „sveitavarginn“ að standa uppi í hárinu á Reykjavíkurvaldinu og standa vörð um íslensku villikindina!

Ummæli frá HF
Rituð: 27. október, 2009, 17:33

Alveg ótrúlegt rugl!
Trúa dýralæknar því að riðuveikt fé geti gengið sjálfala á fjalli á vestjfjörðum allan ársins hring?
Séu þeir svo einfaldir að halda það gætu þeir látið fella tvær til þrjár rollur og rannsakað þær.
Nei það á að skjóta fyrst og spyrja svo, útrýma stofninum.
Þetta er einhver frumstæðasta hvöt mannsins að drepa það sem hann þekkir ekki.

Ummæli frá Jón H. Eiríksson
Rituð: 27. október, 2009, 17:59

Góður pistill fyrir utan fyrirsögnina minn kæri! Gjaldfellir greinina þar sem hún lýsir fordómum og óþarfa alhæfing sem í þessum orðum fellst.

Ég er nokkuð viss um að ekki sé hægt að sanna eignarhald sitt á þessu fé. Nema ef vera skyldi einstaka kind. Og ef það er svo þá sé ég ekki að hér sé um raunverulega lausagöngu að ræða!!

Þessar kindur lifa fyrir utan lögin. Einhver ætti að benda byssuglöðum embættismönnum fyrir vestan á þá staðreynd.

Mikið óskaplega er það óráðið að vaða í skittirí á þessu fé. Hreindýr hrynja reglulega niður á veturna vegna fæðuskorts og ekki er fárast yfir því. Svoleiðis er bara náttúran. Það er kallað náttúruval.

Það á að leyfa þessum villistofni að vera. Hlúa frekar að honum og þegar hann stækkar of mikið fyrir Tálkna og svæðið þar í kring leitar hann niður og þá kemur hann sjálfkrafa fram í öðrum rekstri sem fer fram á svæðinu á hverju ári.

Ummæli frá Jón H. Eiríksson
Rituð: 27. október, 2009, 18:03

Sé á kommentum hér að ofan að fyrirskipanir koma að sunnan um útrýmingu á þessu fé. Ef svo er þá eiga heimamenn að segja þeim að halda K.J. Vestfirðingar eru nú þekktari að öðru en láta einhver möppudýr að sunnan stjórna sér!!!

Koma svo Vestfirðingar. Stoppa þetta rugl.

Ummæli frá freedomfries
Rituð: 27. október, 2009, 18:11

Ekkert í frétt Vísis/Fréttablaðsins benti til annars en að það væru heimamenn sem stæðu fyrir þessari útrýmingarherferð – en eins og ég sagði örlítið ofar þá eru það virkilega góðar fréttir að þetta sé allt runnið undan rifjum einhverra Reykvíkinga og að heimamenn séu engan veginn hrifnir af þessu.

Ég vona svo sannarlega að það verði komið í veg fyrir að þessar kindur verði drepnar – fullkomlega að óþörfu að því er virðist. Nema til þess að fara eftir bókstaf laganna. Ef yfirvöld hafa áhyggjur af því að það sé ílla haldið yfir veturinn hlýtur að vera ódýrara að fóðra þær eitthvað en að vera að halda úti þyrlu með skyttu til að drepa þær. Eitthvða kostar að leigja þyrluna og borga skyttunni laun?

Er ekki hægt að setja þrýsting á einhvern til að stöðva þessa vitleysu, þó ekki væri nema bara í sparnaðarskyni?

En semsagt – ég hafði „sveitavarginn“ fyrir rangri sök í þessu máli, og er mjög ánægður með að hafa haft á röngu að standa.

Ummæli frá Ingvar Jón Bates Gíslason
Rituð: 28. október, 2009, 0:10

Maggi, að þú skulir fórna ritstjórnarstefnunni fyrir íslenskar sauðkindur… Það er eitthvað verulega heillandi og sjúklega býrokratískt við þessa herför, hvað við erum komin langt í burtu frá upphafinu… nema þetta sé illur fyrirboði uppá veturinn framundan…

Ummæli frá nn
Rituð: 28. október, 2009, 4:37

Má ekki setja kvóta á þetta eins og hreindýrin?
Tryggvi Þór og Mishkin væru flottir saman, standandi yfir rollu sem leiðsögumaðurinn þeirra skaut fyrir þá.

Ummæli frá Pétur Maack
Rituð: 28. október, 2009, 9:32

Þessi hreindýravinkill er skemmtilegur, menn hafa ekki séð sérstök mannúðarrök fyrir því að slátra öllum hreindýrastofninum á hverju hausti.

Riða ku geta smitast (fræðilega) með hreindýrum en ég held að dæmi þess séu ekki þekkt. Samt eru þau ekki felld.

Skemmtilegt tvist á málið er svo að fyrir westan virðist vera í gangi áróður fyrir því að fá hreindýr á Vestfirðina, sjá hér:
http://www.facebook.com/group.php?gid=39122239359
þá hlýtur að mega spyrja hvers vegna sömu „mannúðarrök“ eiga ekki að gilda um hreindýr og rollurnar?

Smá viðbót:
Þetta er haft eftir sveitarstjóranum:
Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir að lögin séu skýr og sveitarfélögunum sé gert að koma fénu af svæðinu. Bæði hafi sýslumaður og héraðsdýralæknir krafist þess. Hann efast um að hægt sé að leyfa fénu að vera. Hann vilji ekki til þess hugsa að féð svelti í hel eða hrapi af klettum í vondum veðrum.

Með þessum rökum ættum við í raun að þurrka út alla villta dýrastofna enda er hræðilegt til þess að hugsa að tugir þúsunda rjúpna, svartfugls og fleiri vesalings lítilla málleysingja svelti í hel á hverjum vetri.

Ummæli frá frikkki
Rituð: 28. október, 2009, 11:06

eru smá fordómar í fyrirsögnini? hmmmmm…….

Ummæli frá Bjarki
Rituð: 28. október, 2009, 15:44

„Sveitavargurinn“ er alltaf tilbúinn að benda á það að allt vont komi frá möppudýrum í Reykjavík. Í þessu tilfelli sýnist mér samt af öllu að sökin liggi nú helst hjá sveitarstjórninni á staðnum. Það að „lögin séu bara svona“ er ömurlegur fyrirsláttur af hálfu bæjarstjórans og mig grunar að „kröfur“ sýslumanns og héraðsdýralæknis um þessa helför séu mjög orðum auknar.

Rita ummæli





Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og sex? Svar: