Firring Sigurðar Líndal
Sigurður Líndal prófessor skrifar grein í Fréttablaðið um helgina sem er að mörgu leiti ágæt. Í greininni rekur Sigurður þær hættur sem lýðræðinu stafar af óheftu ráðherravaldi, og undrar sig yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa ákveðið að gerast helsti talsmaður útþenslu framkvæmdavaldsins á kostnað dómsvalds, og löggjafarvalds.
En svo finnur Sigurður sig einhverra hluta vegna knúinn til að gæta jafnræðis og gagnrýna líka þá sem gagnrýnt hafa valdabrodda Sjálfstæðisflokksins fyrir þetta sama valdabrölt, nefnilega almenning þessa lands sem hefur mótmælt vanhæfni og ábyrgðarleysi stjórnvalda síðustu vikur og mánuði. Og þar lendir herra prófessorinn í alveg hreint stórfurðulegri rökflækju og -leysu:
En fátt stendur þó lýðræðinu meira fyrir þrifum en ofurvald afþreyingariðnaðarins. Áhrif hans birtast ekki sízt í firringu þannig að menn losna úr tengslum við umhverfi sitt og berast inn í sýndarveruleika. Nýjustu birtingarmyndir hennar eru pottlokaglamur undir stjórn rokkara og rappara, sem leyst hefur rökræðuna af hólmi og þá er stutt í að bareflin taki við af sleifunum. Með þessu er forsendum lýðræðisstjórnarhátta hafnað. Við þessu má bregðast með almennri upplýsingu sem stuðlað geti að gagnrýnni hugsun. …
Semsagt: Mótmæli síðustu vikna eru einhverskonar birtingarmynd firringar afþreyingariðnaðarins? Af hverju? Vegna þess að „rokkarar og rapparar“ „stjórni“ mótmælunum?! Ég geri ráð fyrir að Hörður Torfason sé „rokkarinn“ en hvaða „rapparar“ hafa „stjórnað“ þessum mótmælum? Mér er sagt að Erpur hafi komið fram á einhverjum fundi. Ætli Sigurður sé að vísa til þess?
Þar fyrir utan hafa þessi mótmæli öll helst einkennst af því hversu sjálfsprottin þau eru. Mótmælendum hefur ekki verið smalað, og hvað þá „stjórnað“. Hlutverk Harðar Torfasonar hefur verið það eitt að standa fyrir vikulegum mótmælafundum, og að halda því fram að hann hafi með einhverjum hætti „stjórnað“ mótmælunum er fráleitt og lýsir frekar algjöru skilningsleysi á ástandinu í samfélaginu. Ég get allavegana vottað að mér var ekki fjarstýrt af einhverjum rokkurum eða röppurum þegar ég mætti á mótmælafundi.
Firring prófessorsins er þó skárri en Ríkisfrelsisvarnarinnar sem ímyndar sér að Vinstri grænir hafi með einhverjum hætti „stjórnað“ mótmælunum.
Og þó. Kannski er munurinn á skilningsleysi þeirra ekki ýkja mikill, og jafnvel að prófessorinn komi verr út úr samanburðinum en bloggarinn, því það er þó örlítið trúverðugra að stjórnmálaflokkur gæti „stjórnað“ mótmælum að þessu tagi en að miðaldra popparar og ímyndaðir rapparar geti gert það.
En hvað um það. Það er löng og góð hefð fyrir því að menntamenn lýsi yfir áhyggjum af „afþreyingariðnaðinum“. Fræðimenn Frankfúrtskólans, og lærisveinar Adorno og Horkheimer töldu afþreyingariðnaðinn einmitt einhverja helstu ógn lýðræðisins, enda væri hann í grunnin fasistískur og andlýðræðislegur, svæfði lýðræðið og kynnti undir passívitet þegnanna sem létu sér standa á sama um alvarleg og mikilvæg samfélagsmál en gleymdu sér í yfirborðskenndri afþreyingu. Týndu sér í sýndarveruleika. En ógnin af afþreyingariðnaðinum, að þeirra mati, var sá að fólk yrði passíft og leyfði ríkisvaldinu að þróast í fasistískt kúgunartæki.
Mótmælin síðustu vikna sýna svo ekki verður um villst að íslenska þjóðin er ekki sofandi og lætur ekki allt yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust. Afþreyingariðnaðinum virðist því ekki hafa tekist að drepa áhuga íslendinga á lýðræðinu. Þar með hefur enn og aftur verið sýnt fram á að svartsýni Frankfúrtskólans hafi verið óþarflega mikil.
Svo er það þessi makalausa „og þá er stutt í að bareflin taki við“ röksemdafærslu? Með samskonar lógík gæti ég staðhæft að að „það sé stutt í gasklefana“ þegar lögreglan úði piparúða á mótmælendur, og þar með að viðbrögð lögreglunnar við mótmælendum „sanni“ með einhverjum hætti að ríkisstjórn Geirs H Haarde hafi stefnt að fasísku einræði á Íslandi. Nú, eða að „það sé stutt í svartlista, bókabrennur og hugsanalögreglu“ þegar virtir lagaspekingar og háskólaprófessorar fara að saka skemmtikrafta um að „stjórna“ mótmælum.
En auðvitað er Sigurður Líndal ekki að hvetja til þess að ríkisvaldið komi á hugsanalögreglu til að hafa nánar gætur á „rokkurum og röppurum,“ þó hann virðist telja slíka menn alvarlegustu ógnunina við lýðræðið, og auðvitað var Geir ekki að undirbúa fasískt valdarán, þó að lögreglan hafi stundum tekið full harkalega á mótmælendum.
Og AUÐVITAÐ var aldrei stutt í að mótmælendur legðu frá sér pottana og sleifarnar og tækju upp kylfur! Og það vita allir sem hafa fylgst með þessum mótmælum eða tekið þátt í þeim. Ruglið í Gísla Frey skýrist auðvitað af ídeólógískri blindni og flokkspólítískri vænisýki. Ég held að ruglið í Sigurði byggist frekar á firringu og þekkingarleysi á mótmælunum og raunverulegu ástandi í samfélaginu. Fílabeinsturninn hafi byrgt honum sýn niður á Austurvöll?
Sigurði segir nefnilega að með hávaðaframleiðslu sinni, pottaglamri, hafi mótmælendur hafnað forsendum lýðræðisstjórnarhátta sem eru að hans mati rökræða, byggð á almennri upplýsingu:
…pottlokaglamur undir stjórn rokkara og rappara, sem leyst hefur rökræðuna af hólmi og þá er stutt í að bareflin taki við af sleifunum. Með þessu er forsendum lýðræðisstjórnarhátta hafnað. Við þessu má bregðast með almennri upplýsingu sem stuðlað geti að gagnrýnni hugsun.
Sigurður virðist ekki skilja að almenningur í landinu fór ekki að berja potta fyrir utan Alþingishúsið fyrr en það var orðið ljóst að stjórnvöld hefðu engan áhuga á að upplýsa borgarana um ástandið, aðgerðir sínar eða fyrirætlanir og höfðu hafnað allri rökræðu. Nú, og jafnvel lýst því yfir á þóttafullan hátt að borgarar sem voguðu sér að mótmæla væru ekki fulltrúar þjóðarinnar.
Mótmæli almennings eru ekki ógnun við lýðræðið. Mótmæli almennings eru ógnun við þaulsetu ráðamanna í valdastólum, óheft vald stjórnvalda og áminning til þeirra að þau þiggja vald sitt frá fólkinu. Mótmæli eru birtingarmynd þess að almenningur í landinu er vakandi og gagnrýninn á stjórnvöld og láta ekki allt yfir sig ganga, og því sönnun þess að lýðræðið er ekki dautt með þjóðinni.
Fært inn 10. febrúar, 2009 undir Bloggar.
Ummæli: 14
| Facebook
Ummæli
Ummæli frá Jakob Andersen
Rituð: 10. febrúar, 2009, 21:36
Motmæli og gagngrýnin hugsun heyra ekki nauðsýnlegt saman. Og það er nú bara ágæt. Fólk stjórnast vonandi líka af tilfininga: Reiði, rétlætiskennd og .s.frv.
Ummæli frá Friðrik Tryggvason
Rituð: 10. febrúar, 2009, 21:55
Það er ágætis regla að ef menn skrifa með Z árið 2009 þá skal maður nálgast þá með varúð.
Ummæli frá Eyþór Gunnarsson
Rituð: 10. febrúar, 2009, 22:24
Takk Maggi fyrir að standa vaktina og hrekja bullið. Það er stórköstleg þörf fyrir beittar skynsemisraddir einsog þína!
Ummæli frá Árni
Rituð: 10. febrúar, 2009, 22:33
Rokkarar og rapparar eru kannski sá hópur íslendinga sem hefur verið í jákvæðri útrás. Jákvæð ímynd íslendinga í útlöndum er ekki síst þeim að þakka. Held nú að þau megi láta sínar skoðanir í ljós. Karlinn virðist hafa mjög skerta dómgreind hvað þetta varðar.
Ummæli frá Mundi
Rituð: 10. febrúar, 2009, 22:44
Ég man eftir að hafa lesið: „rokkarinn Frosti Logason og rapparinn Erpur Eyvindarson létu sig ekki vanta á mótmælin“
en ef hann á við þá þykir mér hann vera farinn að seilast ansi langt.
Ummæli frá Máni Atlason
Rituð: 10. febrúar, 2009, 22:57
Það sem ég held að Sigurður vilji gagnrýna er að „menntuð rökræða“ hefur að einhverju leyti vikið fyrir upphrópunum og glamri. Það má segja að það sé ákveðin afturför sem orðið hefur að að það sem kalla má „menntaða rökræðu“ hefur að einhverju leyti vikið fyrir öðru í pólitík á undanförnum áratug eða svo og hún vigtar minna í umræðunni en áður. Þannig skil ég hann a.m.k.
Það má prófa að velta fyrir sér hvað gerist ef annars vegar umsjónarmenn þáttarins 70 mínútur fara í framboð og hins vegar Sigurður Líndal. Hvort framboðið fengi fleiri atkvæði? (Þetta er að vísu öfgafullt dæmi, en þetta er pælingin með ofurvald afþreyingariðnaðarins).
Ummæli frá AH.
Rituð: 11. febrúar, 2009, 1:09
Nú sama menntaða rökræða og hefur verið mjög skilvirkt þögguð niður einmitt af flokksbróðursforkólf, eða drekkt í hósíanna-jóðli drengjakórs hans?
Ég er hjartanlega sammála að pottaglamrið sé merki um að lýðræðið sé meira vakandi á íslandi frekar en hitt. Var svo effektíft að frómur Sigurður vaknaði meira að segja upp við dogg „.zzzz..zz… ha-svei! lízt mér á!“ Þótt hann virðist eitthvað stúrinn yfir því skulum við bara vona að hann dotti ekki aftur og beri merki menntaðrar rökræðu alla þá leið sem það þarf að berast.
Ummæli frá Ingvar
Rituð: 11. febrúar, 2009, 5:05
FÍLABEINSTURN… fílabeinsturn… bara nettur fílabeinsturn heldriborgarans og menntamannsins… personulega finnst mér fyrirbaerid fílabeinsturn ávalt fallega dekadent og úrkynjad…
Takk Maggi fyrir ad halda theim stadreyndum til haga !
Bloggid thitt ásamt Nei! er thad allra besta á Íslandi nútímans !
Ummæli frá Raggi Bjarna
Rituð: 11. febrúar, 2009, 7:16
„Menntud røkræda“ hefur aldrei i alvøru verid notud i landsstjornun Islands nema tha helst til ad halda einmitt almenningi fra umrædunni og akvardanatøkunni.
Mvh. RB
Ummæli frá Davíð R. Gunnarsson
Rituð: 11. febrúar, 2009, 14:15
Plís, plís, taktu fyrir pistilinn: „Skjöldur gegn skálmöld“ sem var að birtast á AMX eftir Friðbjörn Orra Ketilsson. Ég hló, grét og öskraði á sama tíma en á erfitt með að koma þeim tilfinningum í orð. Ég er þó ekki frá því að mér hafi orðið líkamlega illt við lesturinn.
Ummæli frá Þroftur
Rituð: 11. febrúar, 2009, 14:42
Ummæli Sigurðar Líndals um mótmælin eru óskiljanleg og sérstaklega í ljósi þess að þegar upp úr sauð og allt varð sem verst á milli mótmælenda og lögreglu stóð meirihluti mótmælenda upp og varði lögregluþjóna. Þá kom „appelsínugula búsáhaldabyltingin“ til sögunnar. Sem sagt að ofbeldið ágerðist ekki heldur tók lang stærsti hluti mótmælenda sig til og gaf út skýra yfirlýsingu með aðgerðum sínum að mótmæli skulu vera friðsamleg. Sýndu það í verki.
Ég vona heitt og innilega Magnús að þú takir þess grein og þennan höfund og sléttir úr honum í hnitmiðaðri gagnrýni þinni.
http://eyjan.is/goto/svansson/
Þegar maður les svona bull þá veit maður ekki hvort maður á að hlæja eða gráta. Ef svona skrif eru ekki hreinn og klár fasismi þá veit ég ekki hvernig slík skrif eru. Það er með ólíkindum að til skuli vera einstaklingar á Íslandi sem framreiða skoðanir sínar með þessum hætti. Hvað bærist í heilabúi fólks sem skrifar svona þvælu?
Ummæli frá freedomfries
Rituð: 11. febrúar, 2009, 16:44
Sæl og takk!
Ég las þennan foringjadýrkunarpistil þessa „Friðbjarnar Orra“ sem okkur er talin trú um að sé alvöru maður en ekki brandari… Og ég veit ekki alveg hvað maður á að segja. Þetta er brandari.
Nei, umræðan um mótmælin hefur sýnt að lýðræðinu á Íslandi stendur mjög raunveruleg ógn frá ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins, sem virðist í alvörunni aðhyllast þessar vitfirrtu ranghumgyndir um að hér hafi átt sér stað einhver ofbeldisfull bylting, að valdabroddar Flokksins séu í lífshættu og að allt sé þetta einhvernveginn runnið undan rifjum Vinstri grænna.
En það er mjög gott að þessir bjálfar skuli nú vera tilbúnir til að sýna okkur hvaða mann þeir hafa að geyma og hvaða stjórnmálaskoðanir þeir raunverulega aðhyllast. Þá vitum við í það minnsta hvaða menn við eigum að óttast.
Ummæli frá Rómverji
Rituð: 13. febrúar, 2009, 22:31
Sigurður Líndal er þarfur maður. Eg em aðdáandi hans.
Hann á bara eitthvað bágt með popp og poppmenningu. En á því bágti var líka Ríkisútvarpið sjónvarp reist.
Það sem Sigurður leggur til verður yfirleitt til góðs. Honum er ekki vært í Sjálfstæðisflokknum lengur. Það er góðs viti.
Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.
Ummæli frá freedomfries
Rituð: 14. febrúar, 2009, 0:08
Rómverji – sammála. Ég hef yfirleitt verið sammála Sigurði Líndal. Og var ánægður með flestallt í þessari grein. Nema auðvitað þessa einu málsgrein sem var með endemum vitlaus. Mér finnst að ef maður á annað borð er að blogga eftir ákveðnum reglum og halda úti árásum á ákveðna tegund af vitleysu geti maður ekki farið að fara í of mikin mannamun.
Það eru hugmyndirnar og röksemdafærslurnar sem maður er í stríði við, ekki einstaklingarnir, hvað þá allt sem þeir hafa sagt eða gert.
Rita ummæli