Hvenær verða ungir menn fullorðnir?
Ég hlustaði á Bjarna Ben í Kastljósi í gærkvöldi og hef lesið eða hlustað á flest allt það sem hann hefur sagt eða eftir honum verið haft beint í fjölmiðlum, umVafninginn hans.
Samandregin niðurstaða er þessi:
Baksvið:
Eftir Benedikt Sveinssyni, föður Bjarna, er haft að hann sé fyrir þónokkru hættur beinum afskiptum af þeim fjármála- og fyrirtækjarekstri sem hann er aðili að. Hann hefur ekki tilgreint eftirmann, en rökrétt er að ætla að Bjarni sonur hans sé sá eftirmaður, þar sem hann tók forystusæti í stjórnum ættarauðsins. Þannig var Bjarni stjórnarformaður BNT, sem er eignarhaldsfyrirtæki N1 samsteypunnar.
Benedikt og Einar Sveinsson, bróðir hans, hafa lengi starfað saman í fjárfestingum og fyrirtækjarekstri. Þar á meðal eiga þeir bræður báðir markverða hluti í BNT og í nokkrum þeim lykilfyrirtækjum sem hlut eiga að Vafningsmálinu.
Þegar Bjarni seldi sinn hlut í BNT og hætti stjórnarþátttöku þar, tók Einar föðurbróðir hans við.
Bjarni átti aldrei nema lítinn hlut í BNT og engan annan hlut í Vafningi en í gegnum sinn litla hlut í BNT.
Atburðarás:
Snemma árs 2008 voru góð ráð orðin dýr. Þá var fjandakornið hvorki hægt að fá ný lán né framlengja lánum á erlendum mörkuðum. Með því móti höfðu menn fleytt sér í gegnum gjalddaga. Enn komu gjalddagar, en framlengingar fengust barasta ekki. Þá þurfti að borga allt grínið. Einhver Morgan Stanley gerði sumsé veðkall hjá fyrirtæki sem var í eigu þeirra Engeyjarbræðra og Mælstónbræðra, fyrir einni fúlgu af milljörðum. „Pay or die.“
Hvað ef ….?
Hvað hefði gerst ef þeir hefðu ekki borgað? Þá hefði samkrullskompaní tvíbræðralagsins farið á hausinn og Milestone líka. Bankarnir hefðu fallið eins og spilaborg á eftir. Sumsé, það óhjákvæmilega hefði gerst nokkrum mánuðum fyrr á því sögulega ári 2008.
Hvað ef ….?
Hvað ef hægt væri að finna fé til að redda málunum í augnablikinu? Hvað ef hægt væri að komast í digran sjóð? Púff, hvílík heppni, það var hægt! Mælstón átti Sjóvá og Sjóvá átti digran bótasjóð, sem hægt var að slæma krumlunni í. Til þess þurfti að vísu smá vafning….!
Einhverjir plottuðu, annars hefði þetta aldrei gerst. Einhverjir handlönguðu þótt þeir skildu ekki plottið, annars hefði þetta aldrei getað gerst.
Hvar var hann Bjarni okkar þá?
Var hann með í ráðum um það hvernig ætti að bjarga ættarauðnum? Var hann 12 ára gutti sem var sendur út í banka með bréf frá pabba?
Af hverju var hann Bjarni okkar gerður stjórnarformaður í BNT? Var það af því að hann þótt klókur stjórnandi með fjármálavit? Hefði svo verið, þá hefði hann örugglega verið hafður með í ráðum við gerð vafningsins góða. Var það til að láta á það reyna hvort hann væri klár stjórnandi ættarauðs, en hafði ekki sannað sig nóg til að vera tekinn inn í æðsta plottið? Eða, var það til að láta á það reyna hvort hann væri hæfur handlangari, sem spyrði engra óþægilegra spurninga? Var hann búinn að sanna sig í því hlutverki þegar ættarhöfðingarnir ákváðu að sparka honum upp í flokksforustuna í stað fjármálavafninganna?
Ég hallast að því síðarnefnda. Ég trúi Bjarna þegar hann segist ekkki hafa vitað hvurslags vafningar lágu að baki Vafningi. Ég held bara að hefði Bjarni sýnt af sér tilskylda forystuhæfileika og fjármálavit, hefðu ættarhöfðingarnir sett hann yfir það sem þeim var kærast, fjölsylduauðinn. En, því miður, hann hafði ekki þá hæfileika. Aftur á móti hafði hann sýnt sig í því að vera heiðarlegur handlangari og slíka menn þurfa valdaættir að hafa í stjórn síns pólitíska arms.
Þess vegna var Bjarni gerður að formanni Sjálfstæðisflokksins. Stjórnarformennskan í BNT var ekkert annað en þjálfunarbúðir í handlangarafaginu.
Soffía Sigurðardóttir
Ummæli (3)
Sævar // 4.2 2010 kl. 16:08
Þetta er mjög sannfærandi greining hjá þér, Soffía.
Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur // 4.2 2010 kl. 16:47
http://wms0a.straumar.is/xd/DavidOddson.wmv
Mín að telja afrek öll
ekki’ er nokkur vegur!
Ég hef ístru, ég hef böll
ég er guðdómlegur.
Mara // 4.2 2010 kl. 19:15
Ég er ungur og með pung
ég er slunginn refur,
ég hef mátað Mao Tse Tung,
ég er yndislegur.
Rita ummæli