Soffía Sigurðardóttir

blogg á eyjan.is

Markmið ríkisstjórnarinnar

27.1 2010 | 00:50 | 4 ummæli

Sem betur fer er flest fólk þannig gert að það er tilbúið að leggja á sig talsvert erfiði til að ná því markmiði sem það æskir eftir.

Langflest gerum við okkur líka grein fyrir að það efnahagshrun sem varð hér á landi í október 2008, verður ekki tekið út með sældinni. Við gerum okkur grein fyrir því að þetta kostar og mun kosta okkur blóð, svita, tár og pening. Ég er líka viss um að við séum mjög mörg reiðubúin að kosta til blóði, svita, tárum og peningum til að ná …..

…ná….

Ha?

Ná hverju?

Hvert er markmiðið?

Er eithvert gagn að því að ég sé blóðrissa?

Færist ég eitthvað nær markmiðinu með öllu mínu sveitta streði?

Heyrir einhver þegar ég græt?

Koma aukin fjárútlát mín í góðar þarfir?

Kæra Jóhanna!

Hvert er markmið ríkisstjórnar þinnar?

Ég hef lesið stjórnarsáttmálann og 100 daga áætlunina. Hundrað dagarnir eru löngu liðnir og fátt eftir ógert á listanum. En ég veit ekki hvað ríkisstjórnin ætlar að gera á næstu 100 dögum og enn síður hver áform hennar eru til lengri framtíðar en það. Þaðan af síður veit ég hvernig blóð mitt, sviti, tár og peningar falla inn í áætlunina að því markmiði.

Kæra Jóhanna.

Ef mér líkar markmið þitt, þá skal ég gefa þér blóð, kófsveitt vinda tár úr tíu vasaklútum og borga hverja mína krónu í skatta.

En….

Hvert er markmiðið?

….

A – a – a !!!

Ekki svara mér með frasa eins og: Norræn velferðarstjórn!

Ég vil skýrari svör!

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (4)

  •   Jón Ottesen // 27.1 2010 kl. 10:13

    Markmið Jóhönnu og xS eru:

    1. Halda völdum.
    2. ESB aðild.
    3. Halda völdum.
    4. Láta ESB redda þessu fyrir okkur. (Þegar það verður orðið of seint)
    5. Halda völdum.

  •   Sævar // 27.1 2010 kl. 12:19

    Þetta ICESAVE klúður ætlar að reynast þessari þjóð algjör frystikista.

  •   Karl // 27.1 2010 kl. 15:10

    1. Halda völdum
    2. Sinna eigin hagsmunum.
    3. Sinna hagsmunum flokksins.
    4. Koma félögum sínum í stjórnir fyrirtækja sem ríkið hefur nú yfirtekið.
    5. Þurrka út millistéttina.
    6. Hækka skatta.
    7. Auka forræðishyggju.
    8. Ná fram hefndum.

  •   Heiða // 9.2 2010 kl. 23:00

    Ég veit að markmiðið er að byggja upp betra þjóðfélag eins og hægt er að sjá með að lesa ný lög um viðskipti og semja um okkar skuldir þannig að við ráðum við þær Og passa að þeir sem brotið hafa lög þurfi að svara og jafnvel bæta fyrir gerðir sínar.
    mannréttindi hafa þegar verið aukin sem dæmi.

    En ég er sammála að framtíðarsýnin þarf að vera skýrari, held það sé það sem þau eru að reyna að fá út úr þjóðfundum um allt land – búa til stefnu fyrir ísland með íslendingum
    En það má gera be

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):