Soffía Sigurðardóttir

blogg á eyjan.is

Af hlutlausu og upplýsandi jafnræði

20.12 2009 | 19:02 | 3 ummæli

„Ætlar þú að biðjast afsökunar?“ er sú spurning sem æ oftar er borin upp af fréttamönnum.

Ætlar þú að biðjast afsökunar á því sem þú gerðir, gerðir ekki, sagðir, sagðir ekki, hugsaðir, hugsaðir ekki, sagðir frá, eða þagðir yfir?

Standa fréttamenn sig í því að upplýsa almenning? Stinga þeir undir stól einhverri vitneskju sem máli skiptir? Hvað þarf hún að skipta miklu máli til að það skipti máli að hún komi fram?

Nenna þeir eða hafa þeir kunnáttu til að setja sig inn í flókin mál og að setja þau fram á upplýsandi og auðskiljanlegan hátt?

Gæta fréttamenn óhlutdrægni og jafnræðis í fréttum af mönnum og málefnum?

Á léleg fréttamennska einhvern þátt í hvernig tókst að byggja upp aðdraganda bankahrunsnis á Íslandi? Eða því hvaða upplýsingar fólk hefur um forsögu, samtímaatburði og úrræði í því máli öllu?

Veik sjálfsmynd, sjálfsréttlætingarþörf og vankunnátta í að greina hismi frá kjarna, er afleitt upplegg í fréttamennsku. Hvað voru þeir fréttamenn og enn frekar fréttastjórar eiginlega að hugsa sem sögðu fréttina af því að Ögmundur hefði verið undir áhrifum áfengis í þingstörfum?

Ætluðu þeir að gæta jafnræðis milli Ögmundar og Sigmundar Ernis? Allavega vísuðu þeir til þess síðarnefnda í „frétt“ sinni. Fyrst sagt var frá því að Sigmundur hefði delerað, þvoglumæltur og þreyttur, í ræðustól Alþingis og þrætt fyrir áfengisneyslu sína í sólarhring á eftir; þá þarf að segja líka frá því að Ögmundur hefði sagt að hann hvorki héldi ræður né gæfi viðtöl eftir að hafa neytt áfengis, þótt í litlu mæli væri, – af því að hann hafði greitt atkvæði eftir að hann drakk!

Ætluðu þeir að vera upplýsandi? Þjóðin þarf að vita hvort Alþingsimenn eru allsgáðir í vinnunni. Hvað mega þeir þá vera undir miklum áfengisáhrifum til að greiða aðkvæði, tala í ræðustól eða veita viðtöl? Sama viðmið og við stjórn ökutækis?  Einn bjór, tvö léttvínsglös, þrjá sjússa eða ekkert af þessu? Hvað má líða langur tími síðan? Er hófdrykkja fyllerí? Er ekkert til sem heitir hófdrykkja, bara lítið eða mikið fyllerí?

Ætluðu þeir að gæta hlutleysis? Svona: Við segjum bara frá, en dæmum ekki. Kalli þetta á dóma almennings er það ekki okkur að kenna. Það er ekki fréttamönnum að kenna að fólk misskilur fréttir þeirra. Slíkt hefur ekkert með val þeirra eða framsetningu á fréttaefni að gera. Það er ekki fréttastofunni að kenna að fólk haldi að eitthvað hljóti að vera fréttnæmt við það sem við segjum frá í fréttum. Það er ekki fréttamönnum að kenna að fólk haldi að þegar fréttamenn sjá þörf á sér frétt um það að maður hafi neytt áfengis þá hljóti hann að hafa verið fullur!

Þessi Ögmundarfyllerísfrétt Kastljóssins sýndi mér ráðvillta fréttamenn sem féllu á fréttamannaprófinu – og það í beinni!

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (3)

  •   Kristín Björg // 20.12 2009 kl. 19:25

    Þau skutu svo langt yfir markið þarna að með ólíkindum er. Nokkuð til í að þarna hafi þau fallið á fréttamanna prófinu í beinni. En nú verður spennandi að sjá viðbrögð RÚV. Hvað gerist á þeim bænum?

  •   tverhaus // 20.12 2009 kl. 19:58

    Hmm.. maður veltir því fyrir sér hvort að RÚV geri Ögmundi sama greiða og Jórunni og taki fréttina út, þar sem hún er ósmekkleg og greinilega illa unninn… auk þess er þetta ekki blaðamennska heldur ótrúlega lágkúruleg misnotkun á ríkisfjölmiðli.

  •   Steinn Sk. // 20.12 2009 kl. 21:38

    En hafið þið tekið eftir því hversu dugleg náhirðin í Sjálfstæðisflokknum er að verja Ögmund vegna þessa broslega vínmáls Kastljóssins?

    Þeir telja sig þurfa meira á honum að halda í þeirri viðleitni að fella ríkisstjórnina.

    Jafnvel Hólmsteinn froðufellir af smeðjulátum.

    Vonandi lætur Ögmundur þetta ekki hafa áhrif á sig. Hann gæti endað eins og Ólafur F. Magnússon ef hann lætur ginnast…

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):