Soffía Sigurðardóttir

blogg á eyjan.is

Blaðafulltrúi D-listans í Árborg

18.12 2009 | 15:59 | 1 ummæli

Dagskráin, héraðsfréttablað sem gefið er út á Selfossi, náði aldeilis að verða fyrst með frétt á bls 14 í jólablaði sínu sem kom út í gær, fimmtudag 17. desember:

Fulltrúi D-listans í bæjarráði Árborgar lagði fram eftirfarandi tillögu á fundi ráðsins 17. desember að sparnaði til að fjármagna þær stöður starfsmanna á leikskólunum, sem hefur verið sagt upp störfum og hafa valdið því að biðlistar eru á leikskólana:

 

Síðan koma gæsalappir, tilagan og gerinargerð og gæsalappir lokast. Undir stendur MHH, sem er ritstjóri og helsti blaðamaður blaðsins. Nú mætti halda að blaðamaðurinn MHH hafi fundið þessa bókun í fundargerð bæjarráðs. Gallinn á þeirri söluskýringu er bara sá að blaðið var prentað og komið á netið á miðvikudegi, áður en fundurinn fór fram á fimmtudeginum 17. des.

Það er sjálfsagt að blað birti greinar frá bærjarfulltrúum, m.a. þar sem þeir kynna tillögur sem þeir hyggjast flytja í bæjarráði. En að blaðamaður birti slíkt fyrirfram sem frétt af fundi sem hefur þá ekki verið haldinn, er fráleit blaðamennska. Góður blaðamaður hefði beðið með sjálfstæða frétt þar til eftir fundinn, þótt ekki væri nema til að geta getið um sjónarmið allra aðila, sem fram komu á fundinum. Slíkt er jú blaðamennska. Hitt er blaðafulltrúamennska. Er MHH orðinn blaðafulltrúi D-listans í Árborg?

Í stuttu máli, þá er burðarásinn í tillögu D-listans að ná megi að stórum hluta upp í kostnað við að taka fleiri börn inn á leikskóla bæjarins, með því að bæjarstjórinn afsali sér biðlaunum að loknum bæjarstjórnarkosningum í vor. Svo reikna þeir út hvað þeir foreldrar myndu borga í útsvar sem kæmust á vinnumarkaðinn ef þeir bara kæmu börnunum á leikskóla. Þar sem það dugar ekki til, er stungið upp á lækkuðu starfshlutfalli millistjórnenda í vinnu hjá bænum, til að brúa bilið.

Það fer D-listanum í Árborg afskaplega vel að fjalla um laun og biðlaun bæjarstjóra. Þeir réðu eina flokkssystur sína sem bæjarstjóra í upphafi síðasta kjörtímabils, með rétti til heils árs biðlauna. Svo reyndust þeir sjálfir svo leiðinlegir í samstarfi að samstarfsflokkur þeirra (Framsóknarflokkurinn) flúði frá þeim með æluna uppí koki. Nýr meirihluti sagði bæjarstjóranum þeirra upp greiddi honum síðan biðlaun í 12 mánuði.

Úr varð að Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, var ráðin bæjarstjóri, en meirihlutann skipa fulltrúar S, B og V lista. Til að taka við bæjarstjórastöðunni sagði Ragnheiður sig frá framboðslista Samfylkingarinnar til Alþingiskosninga, sem þá var verið að ganga frá.

D-listaliðið hefur sífellt pönkast á Ragnheiði fyrir það að hún sé að tvöföldum launum, bæði sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúi. Samt voru heildarlaun hennar ívið lægri en fyrirrennara hennar, en það er launasamsetningin, að lækka bæjarstjóralaunin á móti bæjarfulltrúalaununum, sem D-listinn er sífellt af kvarta yfir. Nú hefur Ragnheiður óskað eftir leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi frá 1. jan til 31. mars og varamaður hennar tekið sæti í hennar stað. Áfram gegnir hún starfi bæjarstjóra, en heildarlaun hennar munu lækka sem nemur því að hún fær ekki laun sem bæjarfulltrúi á þessum tíma. Mun það fullnægja réttlæstiþörf D-listans? Eða á varamaður hennar kannski að vera launalaus í því starfi? Þarf kannski engan annan bæjarfulltrúa í hennar stað? Hefði D-listinn þá ekki getað sent einn sinna manna heim í launalaust leyfi á meðan flokkssystir þeirra var bæjarstjóri?

Svo er það þetta með launalækkun millistjórnendanna. Þetta hljómar kannski flott fyrir þá sem ekki vita betur. En það þarf ekki öflugt tóneyra til að heyra falska tóninn í konsertmeistaranum. Hann á að vita það að nú þegar þrengt hefur að fjárhag sveitarfélagsins er búið að lækka laun allra yfirmanna sem ekki eru á taxtalaunum stéttarfélaga. Laun þeirra hafa verið lækkuð án þess að vinnuskylda þeirra hafi verið lækkuð líka, þ.e. þeir skila sömu, og stundum meiri, vinnu fyrir lægri laun. Laun bæjarstjórans voru lækkuð mest. Auk þess hefur ekki verið ráðið í nokkrar stöður sem hafa losnað, heldur störfum þeirra verið skipt niður á aðra starfsmenn. Það eru kaldar kveðjur D-listans til þessa starfsfólks að láta eins og það sé einhverjar afætur á bæjarbúum.

Þar sem launakostnaður er 70% af heildarútgjöldum bæjarfélagsins hefur ekki farið hjá því að þurft hafi að spara þar til að ná fram sparnaði í rekstri bæjarins. Því hefur verið eitthvað um uppsagnir á yfirvinnu og starfshlutfalli og stundum heilu störfunum meðal annarra starfsmanna, en þar kemur alltaf til minnkað starf á móti lægri launum.

Svo sátu bæjarfulltrúar D-listans hjá við afgreiðslu á gjaldskrártillögum. „Ha? Ekki ég!“-afstaða.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (1)

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):