Mikið var um fallega kjóla & fallegt fólk á Óskarsverðlaunahátíðinni sem haldin var í 82. skipti í nótt. Hönnuðir á borð við Elie Saab, Dior, Chanel og Prada klæddu stjörnurnar sem skinu skært á þessu mikilvæga kvöldi.
Uppáhalds.
Rachel McAdams í Elie Saab.
George Clooney að kyssa sína spúsu.
Svo sæt.
Miley Cyrus og mamma hennar.
Myndir af öllum kjólunum eru komnar inn á facebook – 132 af Óskarsverðlaunahátíðinni sjálfri og 125 teknar í eftirpartýum Vanity Fair og Elton John. Njótið!
Skoðið þetta myndband af vor&sumarlínu Karl Lagerfeld fyrir Chanel 2010. Hér er verið að sýna öll glæsilegu og aðdáunarverðu smáatriðin.
Módelin stara bókstaflega inn í sálina á manni.
Ekkert smá flott!
Þessi fallegu orð voru látin falla um verk Karls:
„Completely and utterly the most shiny and beautiful masterpiece I’ve seen in a long time“.
Mikið öfunda ég þær stelpur í dag sem hafa þykkt & mikið hár. Aðalástæðan er sú að mér finnst fléttur alveg hrikalega flottar! Sumarið 2010 ætlar t.d. ekki að gefa neitt eftir fyrir síðasta sumri og flétturnar verða allsráðandi.
Lausa hliðarfléttan er orðin mjög vinsæl.
„Dutch milkmaid-braid“
Flott að poppa fléttuna upp með efni.
Með því verður hún nær því að vera líkt og blómakrans.
Fiskifléttan er líka að koma gríðarlega sterk inn.
Mér finnst endarnir á þessari geggjaðir!
Engin teygja.
Svo er líka spurning um að vera bara aðeins öðruvísi:
Það er mikið búið að tala um blómakransana undanfarið.
Þetta verður ábyggilega æðislegt þegar byrjar að vora.
Sem er ekki að fara að gerast í dag allavega! Snjór, snjór, snjór.
En það er mjög auðvelt að búa til einn svona blómakrans.
Sumir vilja hafa þá stærri – eins og þennan sem Abby Lee er með hér að ofan, en þá er bara um að gera að fá sér stærri blóm og kannski stærri spöng.
Það má líka finna ýmsa víra og annað í föndurbúðunum.
En gerum einn lítinn & krúttlegan!
Það sem þú þarft:
Þunna plastspöng
Gerviblóm með stilkum
2 metra af svörtum flauelsborða
Límbyssu
Skæri
Skref 1 Byrjaðu á því að festa gerviblómin á spöngina með límbyssunni.
Skref 2
Nú getur þú vafið borðanum þétt utan um spöngina
(og stilkana sem þú límdir niður).
Límdu borðan niður um leið og þú vefur.
Mundu að hafa nægan borða – og jafnan – til að geta bundið hann fyrir aftan höfuðið.
Bjútí!
Annars eru fullt af stelpum að búa til blómakransa og selja á Etsy - þær nenna ábyggilega að gera einn svona handa þér og senda yfir hafið!
Reyndar gegn ágætis gjaldi.
Í gær fékk ég boð um að gerast aðdáandi að æðislega fallegum kögurhálsmenum á facebook, hönnun sem kallar sig Fresh Fringe Design. Þegar ég fór í gegnum myndirnar var ég gjörsamlega heilluð! Þvílíkt bjútí :)
Það er íslensk stelpa sem heitir Þórfríður sem gerir þessi hálsmen og gerir hún aðeins tvö til þrjú alveg eins. Sem er bara æðislegt!
Hálsmenin geta líka gert einfalda kjóla svo flotta!
Alveg æðislega flott hálsmen! Afsakið, en ég er með orðið æðislegt á heilanum. En það orð er líka æðislegt.
Þið getið skoðað fleiri hálsmen og nálgast allar upplýsingar með því að ýta [hér].
Það eru margar stjörnur sem ákveða að hanna sína eigin línu en gera svo ekkert meira en hana eina. Victoría Beckham er hins vegar sú stjarna sem hefur virkilega sýnt okkur að þetta sé það sem hún hefur áhuga á og að hún hafi þessa tilskyldu hæfileika sem hönnuðir þarfnast.
Í gær, 14. febrúar, frumsýndi Victoría sína fjórðu línu. The Guardian gaf það út að með þessari línu hefði hún stimplað sig inn í tískuheiminn til æviloka. Línan fékk innblástur sinn af ‘1940 „femme fatale“ og litirnir eru hugmynd af litum sem notaðir voru í teiknimyndum Dick Tracy, sem við sjáum meðal annars í sægrænu og fagurrauðu kjólunum.
Victoría sagði sjálf að hún væri enn að læra og þyrfti alltaf að bæta sig fyrir hverja línu. Hennar draumur væri samt að eignast sína eigin búð og hún vonar að sá draumur verði að veruleika innan fimm ára.
Hér má líta á línu Victoríu. Endilega tjáið ykkur & segið hvað ykkur finnst.
Sólgleraugun eru einnig hönnuð af henni.
Ég væri til í þennan. Samt svolítið peysulegur.
Mér finnst þessi æðislegur á litinn!
Sætur kokteil-kjóll.
Mér finnst áferðin á þessu efni mjög töff…
Flottur!
Ágæt lína – afslappaðri en venjulega, líkt og hennar eigin stíll.
Sjómennskan já. Loksins ætlar þetta „trend“ að komast almennilega í tísku.
Í vor og sumar verður mikið um liti eins og dökkbláan, rauðan og hvítan – enda er trendið sem kallast „nautical“ á enskri tungu orðið mjög vinsælt. Ég hlakka rosalega til að fara að sjá meira af því í búðum, sérstaklega hálsmenum, eyrnalokkum, armböndum – ásamt pilsum og hvítum jökkum. Ég elska þetta trend ef það er rétt sett saman. Vá, hvað sumarið verður fallegt!
Svo fín!
Hvítur jakki finnst mér vera endalaust fallegur. Ég elska hvítt!
Með gullhnöppum takk!
„Boyfriend Blazer“ ætlar því ekki að detta úr tísku, heldur þróast úr þessum svarta yfir í hvíta og dökkbláa.
Sætir eyrnalokkar
Akkerishálsmen eru svo flott! Og eyrnalokkar líka. Nú sit ég hér glöð með mína í eyrunum.
…og flott RayBan sólgleraugu til að fullkomna útlitið!
Það verður svo gaman þegar sólin fer að hækka á lofti!