Ég vildi að fleiri verslanir á Íslandi væru með heimasíðu. Þá er ég að tala um heimasíðu þar sem hægt er að skoða vörurnar sem til eru í búðinni hverju sinni (verð, stærðir & fleira) og jafnvel panta vörurnar heim að dyrum. Margt mælir með því, en einnig gegn því. Æj, ég nenni ekki að væla.
Ég missti mig aðeins í að skoða verslanir hérna á Íslandi, þ.e. þeirra heimasíður og svo erlendar heimasíður þeirra. Ég vona bara að þær vörur sem ég sá þar séu komnar í búðir hérna heima – eða komi fljótlega! Ég þyrfti því að fara í góða skoðunarferð þegar tími gefst til.
Mig langar til að deila með ykkur nokkrum fallegum hlutum sem ég sá.
Sumar verslanir komu mér stórlega á óvart! Sá t.d. EKKERT flott á Oasis-síðunni en rosalega margt fallegt á Dorothy Perkins-síðunni! Langaði svo náttúrulega í allt úr Allsaints. Hehe.

Mjög fallegur bolur frá Allsaints. Elska svona rómantískt mynstur!

GS skór – Again & Again – 22.990 kr.-

Belti frá Allsaints.

Fallegur blómakjóll frá Dorothy Perkins.


Skór frá Bianco – Líka hægt að fá flatbotna með svona fiðrildi, þeir eru rosa krúttlegir.

Megaflott „sinfóníu“-vesti frá Allsaints.

Dorothy Perkins bolir – Ó svo flottir litir!

Vero Moda kjóll

Taska frá Accessorize. Mig langar í þessa!

Æðislegt armband með úri!
Accessorize.

Pallíettubolur úr KISS. 8.990 kr.-
Finnst hann æðislega flottur!

Kjóll úr KISS. 9.890 kr.-

Blúndukjóll úr KISS. 9.890 kr.- (held samt að hann sé uppseldur)

Biker-leðurjakki úr KISS. 14.990 kr.-

Dorothy Perkins gollur.

Eyrnalokkar úr Accessorize.
Algjörar dúllur.

Geðveikar leggings úr Debenhams!
Dorothy Perkins. Æðislegir! (grenj, engir skór hjá þeim á Íslandi held ég)

Armbönd úr Dorothy Perkins. Shiny!

Dorothy Perkins
Úr & hálsmen.
Vantar svona!

Jakki með tvöföldum vösum – Warehouse.
Rosa flottur!

Eyrnalokkar úr Accessorize.

Sólgleraugu úr Accessorize.
Ég elska svo fjólublá sólgleraugu!

Warehouse-vesti.
Flott!


Topshop – dúllur.
Allt fallegt, eins og lítið lag :)
Eyrún Eva Haraldsdóttir



Ummæli (10)
Karen Daða // 30. jan. 2010 kl. 15:13
Allt mjög flott já! :) og ég er sammála, væri til í að fleiri verlsanir væru með heimasíðu þar sem hægt er að skoða hvað er til og hvað er væntanlegt.
En tók eftir að flotti Pallíettubolurinn (svartur) sem er frá KISS… ég á svona bol, sem er reyndar ekki svona aðsniðinn og síður og hann keypti ég í HM í haust, pallíettumynstrið er alveg eins…hmmm.. hehe fannst ég verða að koma því að :)
Gyða Kristjáns // 30. jan. 2010 kl. 16:17
ÉG ER ÁSTFANGIN! váá þessi fjólublái með blómunum úr Dorothy er einum of flottur :)
Sif S // 30. jan. 2010 kl. 17:47
Allt saman geggjað… :)
Brynhildur // 30. jan. 2010 kl. 17:54
vá hvað mig langar mikið í blómakjólin!!!
Kristrún // 30. jan. 2010 kl. 20:20
Hvar er Dorothy Perkins aftur?
birna // 30. jan. 2010 kl. 22:12
dorothy perkins kemur einstaka sinnum með skó, og þeir kosta ekki annan handlegg – vinkona min keypti sér geeeðveika þar í haust og kostuðu rúmar 10þús eða svo !! :)
-vona að þau fái allavega blómabolinn
Eyrún // 31. jan. 2010 kl. 12:46
Dorothy Perkins er í Smáralind, við hliðina á Topshop.
Hófí // 31. jan. 2010 kl. 21:54
Má til með að benda á eina rosalega flotta síðu hjá íslenskri búð. Það er http://www.gkreykjavik.is. Mjög flott síða sem sýnir allt sem er til í búðinni og hvaða stærðir eru til. Mæli með henni!*
Eyrún // 31. jan. 2010 kl. 22:19
Glæsó :)
Ég hef aldrei skoðað þessa síðu áður. Fann rosa sætan kjól á henni: http://www.gkreykjavik.is/images/detailed/_MG_24253.jpg :)
Tanja! // 1. feb. 2010 kl. 12:33
Vá, þegar ég fór síðast í Dorothy Perkins sá ég ekki þessu flottu föt! Það var ekkert spes sem ég sá þar þá því miður!
Rita ummæli