Instyle magazine birti nýlega á heimasíðu sinni 10 leiðir til að líta betur út á myndum. Mér fannst það afar skemmtileg lesning, þannig að ég ákvað að þýða þetta uppá grínið.
1. Sumir segja að myndavélin bæti kílóum á mann. Ef þú vindur upp á búkinn, snýrð annarri öxlinni að myndavélinni og hinni frá henni, þá lítur þú út fyrir að vera grennri. Þetta segir Patti Wood, sérfræðingur í líkamstjáningu.
2. Berja-varalitur með smá gljáa lítur vel út á öllum. Þeir sem velja “nude“ lips (mattann lit) eiga það á hættu að verða eins og lík þegar flassið lendir á þeim. Þetta á sérstaklega við þá sem eru með mjög ljósa húð.
3. Reyndu að taka myndir (eða láta taka myndir af þér) sem fyrst á þeim viðburði sem þú ert á. Helst áður en þú skellir í þig 3., 4., eða 5. glasi af víni. Þá hefur þú meiri stjórn á öllu. Það skiptir engu máli hversu mikið flass myndavélin gefur frá sér, augun á þér munu alltaf líta syfjulega út eftir nokkra drykki.
4. Vertu náttúruleg. Hár sem hefur smá hreyfingu kemur mun betur út á mynd og er kynþokkafyllra. Sparaðu að nota milljón hárvörur, þær sjást nefnilega alveg ágætlega vel á mynd.
5. Myndavélin segir auðvitað eitthvað. Myndavélar þurfa hins vegar ekki að vera flóknar þó þær séu góðar. Cannon G er t.d. auðveld í notkun og krefst ekki sérfræðings.

Canon G11 kostar reyndar fúlgur fjár hér á landi. Ekki nema 129.000 kr.
Ég á reyndar mjög góða litla SONY Cyper-shot myndavél sem ég keypti á tæp 24. þúsund fyrir nokkrum árum. Hún tekur mjög skýrar myndir.

6. Ýttu andlitinu aðeins fram. Það er mjög hallærislegt á meðan því stendur en það lætur andlitið líta út fyrir að vera grennra og felur undirhökur!
7. Rökkrið er besti tími dagsins til að taka myndir af fólki úti. Lýsingin er mjög góð í þeim aðstæðum til að láta þig líta vel út. Sólin varpar minni skugga niður, svo þú endar ekki með poka undir augunum á myndum. Sólin lýsir líka upp svæðið undir augunum og þú lítur út fyrir að vera unglegri.

8. Þó það sé mjög fallegt að vera með uppljómaða húð, þá getur of mikill ljómi verið truflandi. Þetta segir Troy Jensen sem segir að punkturinn yfir i-ið sé að setja gljálausan farða á eins og Clinique Pore Minimizer Instand Perfector á hliðar nefsins, enni og höku. Það gerir ljómann náttúrulegri.

9. Í stað þess að segja „cheese“ – prófið að segja „money“. E-ið í endann lætur munnvikin vísa upp og hrukkurnar í kringum augun láta brosið líta út fyrir að vera ósvikið. Prófið bara!
10. Skoðaðu myndir af þér. Á hvaða myndum lítur þú best út? Er hægri hliðin betri?

Fleiri atriði eru til. Eins og til dæmis að taka myndir ofan frá, í svarthvítu og fleira. Lumið þið á einhverju?





Eyrún Eva Haraldsdóttir



Ummæli (13)
Eyrún // 28. jan. 2010 kl. 13:48
Gleymdi einu – Photoshop ;)
RakelR // 28. jan. 2010 kl. 13:48
sniðugt!:)
Ég ætla að punkta þetta allt niður hjá mér og vera reddí fyrir framan myndavélina á næsta djammi;)
Tinna Björg Kristinsdóttir // 28. jan. 2010 kl. 13:55
haha nú prófa örugglega allir þetta „money“-dæmi á sjálfum sér :o)
en góð ráð! ;o)
Brynja // 28. jan. 2010 kl. 13:57
Hahah…en skemmtileg tips! :)
Þórdís H // 28. jan. 2010 kl. 13:59
SNILLDAR ráð!!! ætla svo að tileinka mér þau þannig hægt verði að taka almennilegar myndir af mér á Kollunni;)
Margrét // 28. jan. 2010 kl. 14:05
Fyrirsætur og fólk vant myndavélum, dregur djúpt inn andann svo brjóstkassinn þenst aðeins út, andlitið liftist upp og virðist grennra. og maður verður beinni í baki.
Algert must að teygja úr hálsinum!!!!! :)
Máni Atlason // 28. jan. 2010 kl. 14:48
Eitt gott trikk sem hefur reynst mér vel er að vera alltaf fáránlega flottur, þá lítur maður betur út á mynd :D
(þetta er grín…)
Eyrún // 28. jan. 2010 kl. 17:58
Mjööööög góð ábending Máni ;)
Ingunn // 28. jan. 2010 kl. 18:39
veit nú ekki allveg með þetta allsaman;)
Svana // 28. jan. 2010 kl. 19:10
næs :)
Helgus // 28. jan. 2010 kl. 20:46
Ég nota alltaf sama trix og Máni….klikkar ekki….hehe. Annars ágætis ábendingar!
Gyða // 29. jan. 2010 kl. 16:55
Góðar ábendingar! :D
Kjartan // 29. jan. 2010 kl. 21:13
Ég reyni bara að forðast myndavélar…
Rita ummæli