STUTT

MILLISÍTT

LITAÐ

STUTT

MILLISÍTT

LITAÐ

→ 1 ummæliFlokkar: Hár| Facebook .
Það þarf ekki að kosta annan handlegginn að eiga fallegt heimili. Fyrst og fremst finnst mér fallegt heimili einkennast af þrifnaði & í annan stað góðum hugmyndum.
Mér finnst því fallegt heimili EKKI þurfa að einkennast af einhverju rándýru dóti. Það er vel hægt að láta það líta út fyrir að vera ferlega dýrt, bara með því einu að kunna að velja réttu hlutina og láta þá passa saman.
Hér eru nokkrar vörur frá Ikea, Rúmfatalagernum og Ilvu sem mér finnst vera glæsilegar og gætu vel kostað góðan skildinginn – en gera það ekki.

Ikea
Lampi 1.590 kr.-/2.690 kr.-
eftir því hvaða stærð hann er.
Rúmfó
Púði 1.495 kr.-

Rúmfó
Púði 995 kr.-

Ilva
Vintage glas 345 kr.-

Ikea
Stór bastkista 9.900 kr.-

Ikea
3 ilmkerti 295 kr.-/495 kr.-
Verð fer eftir áferð.

Ikea
Stóll 19.950 kr.-/9.950 kr.- ef hann er ólitaður

Ilva
Mjólkurglas 295 kr.-

Ikea
Lampi 1.590 kr.-/2.690 kr.-
eftir því hvaða stærð hann er.

Ikea
Silfurkertastjaki 1.590 kr.-

Ikea
Púði 1.490 kr.-

Ikea
Loftljós 695 kr.-/795 kr.-
eftir því hvaða stærð það er.
→ 4 ummæliFlokkar: Heimili| Facebook .


Váááááá!


Uppáhalds.





→ 8 ummæliFlokkar: Tíska| Facebook .
Ég ákvað að gera eitthvað sniðugt áðan, fór og keypti svartan borða & breytti skónum mínum. Ég elska þessa hælaskó mína, en mér fannst eins og venjulegu reimarnar mættu alveg fjúka og eitthvað pæjulegra koma í staðinn.

Fyrir

Eftir
Er miklu ánægðari með þá svona.
Til að borðinn byrji ekki að rakna upp, þá notaði ég kveikjara og bræddi endana.
Ég ákvað svo að prófa að gera eina slaufu og setja aftan á venjulega svarta hælaskó sem ég á. Afsakið hvað þeir eru sjúskaðir, þeir eru frekar mikið notaðir.
Það er líka hægt að setja slaufuna framan á skóna eða jafnvel á hliðina.

Þetta er ótrúlega pæjulegt & mjög auðvelt að gera þetta í þokkabót.
Allir ættu því að geta „pimpað“ skóna sína örlítið!
→ 12 ummæliFlokkar: DIY| Facebook .
Eins og margir vita hefur tískuvikan í París staðið sem hæst undanfarna daga. Christian Dior kynnti þar haust- & vetrarlínu sína ásamt fleiri hönnuðum.














→ Rita ummæliFlokkar: Tíska| Facebook .
Þessi ísskál er fullkomin hönnun.



Mikið langar mig í þessa í búið.
→ 5 ummæliFlokkar: Heimili · Hönnun| Facebook .
Ég gerði færslu um þessar tvær systur einhverntíman í fyrra. Kristin og Kayla heita þær og eru orðnar vel fræg krútt á veraldarvefnum, ekki skrýtið – þær gleðja svo ótrúlega mikið!
Þetta verður því gleðifærsla, enda leiðindaþriðjudagur sem þarf að bæta!


Mottu mars!





Híhí!



Be happy!
Þið getið svo skoðað gömlu færsluna [hér] og þar eru tenglar inn á bloggið þeirra.
→ 4 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .
Mikið var um fallega kjóla & fallegt fólk á Óskarsverðlaunahátíðinni sem haldin var í 82. skipti í nótt. Hönnuðir á borð við Elie Saab, Dior, Chanel og Prada klæddu stjörnurnar sem skinu skært á þessu mikilvæga kvöldi.

Uppáhalds.
Rachel McAdams í Elie Saab.

George Clooney að kyssa sína spúsu.
Svo sæt.

Miley Cyrus og mamma hennar.
Myndir af öllum kjólunum eru komnar inn á facebook – 132 af Óskarsverðlaunahátíðinni sjálfri og 125 teknar í eftirpartýum Vanity Fair og Elton John. Njótið!
→ 4 ummæliFlokkar: Frægt fólk · Menning og listir · Tíska| Facebook .
Ég þrái svo almennilega birtu í íbúðina mína.
Sá þessa íbúð á Skönaheim síðunni, þar er margt rosalega fallegt sem við kemur heimilum – sérstaklega skandinavískum heimilum.
Mér finnst hún yndisleg!
Gólfin eru svo fín.
Og bækurnar.
Og flygillinn.
Frábært útsýni.
Ferskt loft.
Fyrir marga gæti þessi íbúð verið of björt og sumir kalla hana litasnauða.
Hér er önnur íbúð sem er ansi skemmtileg, staðsett í Belgíu.
Frekar retró. Ekki minn stíll, en samt sem áður flott!

Langar pínulítið í bleiku myndina…


Þessi er meira hipp og kúl en hin er rómantískari.
Hvor er flottari að ykkar mati?
P.s. Óskarsverðlaunin eru í kvöld/nótt og myndir af kjólunum koma sjóðandi heitar inn á facebook á morgun!
→ 10 ummæliFlokkar: Heimili| Facebook .
Skoðið þetta myndband af vor&sumarlínu Karl Lagerfeld fyrir Chanel 2010. Hér er verið að sýna öll glæsilegu og aðdáunarverðu smáatriðin.
Módelin stara bókstaflega inn í sálina á manni.
Ekkert smá flott!
Þessi fallegu orð voru látin falla um verk Karls:
„Completely and utterly the most shiny and beautiful masterpiece I’ve seen in a long time“.





Skínandi fallegt!
→ 4 ummæliFlokkar: Tíska| Facebook .