„Svona gera menn ekki”, sagði Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra úr ræðustóli á Alþingi. Setningin varð samstundis fleyg. Mig minnir, að umræðan hafi verið um skattlagningu launa blaðburðarbarna, – upphæðir sem skiptu ríkið litlu, en börnin miklu.
Sá sem þetta skrifar gerir ævinlega athugasemd, þegar hann sér heilbrigt fólk leggja í stæði, sem eru sérmerkt fötluðum, og þar sem þeir einir mega leggja, sem hafa til þess sérstakt leyfi, sem skal vera sýnilegt við framrúðu bifreiðarinnar. Þessum athugasemdum mínum hefur oftast verið illa tekið. Í einu tilviki svo illa að það er ekki til frásagnar, en það er önnur saga , sem ef til vill verður sögð síðar.
Það er sérstaklega áberandi hvernig þessi stæði eru misnotuð við stórmarkaði eins og til dæmis Hagkaup í Garðabæ. Betra eftirlit þarf að hafa með því að reglum um þessi mál sé fylgt. Annað sem er líka áberandi það er hve lélegir til fótanna sumir stórjeppaeigendur eru. Nær undantekningarlaust er bílum lagt upp á gangstíginn, sem ætlaður er gangandi fólki með innkaupakerrur á leið úr versluninni út á bílastæðið. Oftar en ekki eru það ökumenn torfærujeppa,sem nenna ekki að ganga smáspöl af bílastæðinu að búðardyrum.
Þessar myndir voru teknar við Hagkaup í Garðabæ um síðustu helgi. Athyglisvert var samtalið við ökumann Nissan bifreiðarinnar. Þegar ég mundaði myndavélina spurði hann hann hvort ég væri eitthvað lasinn. Ég benti honum á að hann hefði lagt í stæði fyrir fatlaða. Þá sagði hann þessa eftirminnilegu setningu:„ Ég er ekkert lagður (svo!) hérna, ég er bara bíða eftir konunni”. Nenni ekki að rekja samtalið frekar. En, það sem upp úr stendur er: „Svona gera menn ekki”.


Eiður Svanberg Guðnason
Ummæli (26)
Eiður Svanberg Guðnason // 26.1 2010 kl. 23:02
Hér með er skorað á alla sem sjá „heilbrigt“ fólk misnota stæði ætluð fötluðum að birta myndir af sökudólgunum á netinu, eða hringja í lögregluna eða Bílastæðasjóð.
Hákon Jóhannesson // 26.1 2010 kl. 23:14
Mjög góð hugleiðing hjá þér og nauðsynleg áminning.
Málið er bara (því miður) að það er fólk innan um sem er nákvæmlega sama um nágrannann – og – þeir einstaklingar þurfa einmitt aðhaldið (tilkynninguna) sem þú nefnir
„Akstur sýnir innri mann“
Blixa Bargeld // 26.1 2010 kl. 23:23
Þetta er það sem vissar manngerðir alast upp við, frekju og tilllitsleysi, og sannast á samtali þínu við þennan félagsþroska hamlaða mann, með hinn meðvitað stækkaða óæðri enda, að það þýðir lítið að kenna gömlum hundum að sitja. Það þarf að tala við þá hrútshornum tveim!. Er hið eina sem svona hrokagikkir skilja!
Eiður Svanberg Guðnason // 26.1 2010 kl. 23:29
Tek undir þetta, Hákon. „Akstur sýnir innri mann“. Það opinberaðist mér, er ég sá fjármálagreifann á stóra svarta BMW-inum sínum margskipta um akrein á Hafnarfjarðarveginum áður en hann ók upp afreinina til vesturs heim til sín í Arnarnesið . Gaf aldrei stefnuljós ,enda var hann í símanum allan tímann. Líklega hefur hann verið, að tala um málefni Moggans og auðugu konunnar úr Eyjum, en ekki sá ég hann taka lýsi.
Mér fannst hann einhvernveginn vera persónugervingur hrunflokkanna.
Eysteinn Kristjánsson // 26.1 2010 kl. 23:44
Sammála að það þarf miklu virkara eftirlit með svona kauðum, sérstaklega á fjölförnum stöðum eins og Kringlunni.
Sjálfur er ég stundum með fatlaðra-merki í bílnum mínum því dótturdóttir mín er bundin við hjólastól, og þarf mikið brölt og tilfæringar við að hafa hana til fyrir verslunarleiðangur.
En stundum (reyndar allt of oft) þegar ég hef ætlað að leggja í þar til gerð og greinilega merkt stæði við anddyri Kringlunnar hafa verið þar risajeppar, ÁN MERKIS! …Síðan þegar maður kemur aftur klukkustund síðar, eru þeir ennþá þar, enginn sektarmiði undir rúðuþurrkunni eða neitt!
Hákon Jóhannesson // 26.1 2010 kl. 23:52
Já það er ótrúlegt sem maður sér.
Sumir sturta úr fullum öskubakkanum út um gluggann hjá sér. Hvað segir þetta um viðkomandi ?
Ég ávítti ungan mann um daginn fyrir að parkera á akrein plansins – fyrir utan skólann sinn. Honum fanst það alveg sjálfsagt – eðlilegasti hlutur í heimi – og taldi eðlilegast að siga löggunni á mig vegna þessarar „athugasemdar“ við Hans Hátign. Ég benti honum á að það væri hann sem væri lögbrjóturinn. Ekki var pilturinn hrifinn af því, en það er hans.
Myndirnar hjá þér eru frábærar því númerin blasa við
Þóra // 26.1 2010 kl. 23:56
Ég sá einu sinni fullfríska manneskju snara sér úr bíl sem hún hafði lagt í stæði fyrir fatlaða. Ég spurði hana hvort hún hafi ekki tekið eftir því að stæðið væri ætlað fötluðum þá svaraði hún glaðlega ; „Ég má þetta ég er með fatlað merki“ Má vera að hún hafi haft bílinn í láni og eitthvað misskilið réttinn en ég veit líka nokkur dæmi þess að sérstaklega eldra fólk hafi fengið merkið þó það þurfi ekkert sérstaklega á því að halda.
Það má líka hugsa sér að skipta handhöfum upp í flokka. Þá fengju þeir mest fötluðu bestu stæðin en þeir sem væru minna fatlaðir stæði örlítið fjær.
Margeir S. Þorsteinsson // 26.1 2010 kl. 23:59
Kannski er þetta fullfríska fólk sem leggur í stæði fatlaðra að æfa sig áður en það verður sjálft fatlað.
Kannski mun örlögin grípa inn í þannig að þetta fólk mun þurfa á svona stæðum að halda til frambúðar.
DROPLAUGUR // 27.1 2010 kl. 00:13
Gott hjá þér, Íslendingum vantar mun meiri aga og áminningar!!!!Allt í lagi að láta samskifta bjöllusauðina heyra það!!!
Gylfi Þór Gíslason // 27.1 2010 kl. 00:16
Gott hjá þér Eiður. Þetta fer einnig svakalega í taugarnar á mér, ef ég sé fullfrískt fólk leggja í stæði fatlaðra
Eiður Svanberg Guðnason // 27.1 2010 kl. 00:39
Þakka ykkur öllum góðar undirtektir.Ég var satt best að segja svolítið ragur við að birta myndirnar, en í raun er ekki um annað að ræða. Nú skulum við hefja herferð gegn þessum tillitslaus liði.
Getur ekki einhver tölvusnjall einstaklingur stofnað vefsíðu , þar sem hægt er að setja inn myndir af þeim sem misnota þessi stæði. Myndir þar sem númerin sjást vel og greinilega ásamt upplýsingum um hvar og hvenær myndin er tekin. Það er ekkert refsivert við það.
Örn Ingvar Ásbjörnsson // 27.1 2010 kl. 01:14
Varðandi orðin fleygu. Þau voru það svo sannarlega en algjörlega innihaldslaus. Sem blaðberi á þessum tíma trúði ég því að alvaldurinn sjálfur ætlaði að stoppa skattman Friðrik Sophusson í að seilast í tíuþúsund kallinn minn en ekkert slíkt gerðist þó að alvaldurinn hafi fengið gott PR-móment útúr þessu.
Tek að öðru leiti fyllilega undir megin innihaldið varðandi að skamma til hlýðni kjána sem leggja í stæði ætluð fötluðum.
Jón Stefánsson // 27.1 2010 kl. 01:26
Þetta er mjög þörf umræða. Eitt sinn var til vefsíða þar sem hægt var að senda inn myndir af bílum sem var ólöglega lagt eða lagt af fullkomnu tillitsleysi við náungann. Ef til vill er þessa vefsíða enn starfrækt.
En þú er oft að skrifa um málfar. Mig langar að gera athugasemd við eina setningu í þessu greinarkorni þínu. Mér finnst setningin og löng og eins er nokkrum orðum ofaukið.
-Sá sem þetta skrifar gerir ævinlega athugasemd, þegar hann sér heilbrigt fólk leggja í stæði, sem eru sérmerkt fötluðum, og þar sem þeir einir mega leggja, sem hafa til þess sérstakt leyfi, sem skal vera sýnilegt við framrúðu bifreiðarinnar-.
Mér finnst þetta fara betur svona:
-Sá sem þetta skrifar gerir ævinlega athugasemd, þegar hann sér heilbrigt fólk leggja í stæði sem eru merkt fötluðum. Þar mega þeir einir leggja sem hafa til þess leyfi sem skal vera sýnilegt við framrúðu bifreiðarinnar-.
Eiður – Finnst þér þetta ekki fara betur svona.
Kveðja
Jón Stefánsson
Þröstur // 27.1 2010 kl. 01:37
Ég byrjaði að lesa þetta blogg hjá þér þar sem þú byrjar á þeirri setningu “ Svona gera menn ekki “ Og þá hélt ég að þú værir að tala um flokksvin þinn hann Ásbjörn sem var í kastljósinu!!
Auðvitað gat það nú ekki verið.. Nú eru þið skörungar komnir á aldur og þá farið þið að eyða tíma ykkar að tala um fatlað stæði… Er það farið að skipta þig máli í dag?
Eiður Svanberg Guðnason // 27.1 2010 kl. 01:42
Jón Stefánsson, þetta er hárrétt hjá þér. Þin tillaga er betri, langtum betri.
Ásjörn er ekki flokksvinur minn og hefur aldrei verið. B kv ESG
Ísak Jóhannsson // 27.1 2010 kl. 08:17
Nú vann ég sem stöðuvörður og kann því margar sögur.
Þannig er að við ráðhúsið í Tjarnargötu þá eru 2 stæði fyrir fatlaða. Ég var að labbinu og fékk kall frá stjórnstöð að kíkja á það. Ég sé venjulegan bíl í stæði fatlaðra, svo ég set á hann miða. Svo daginn eftir er ég á sama stað og sé sama bíl aftur. Aftur fær hann miða, svo á miðvikudegi þá er hann enn þar. Þá kemur út kona og reynir að afsaka sig að hún hefði nú verið að koma úr uppskurði og yrði að leggja þarna. Hún slapp þó við 2.500 en svo er ég á labbinu meðfram Tjarnargötu og að Skothúsvegi þá er sami bíll og lagði í stæði fatlaðra lagt í stæði og allt í lagi með það en var ekki búin að borga í mæli. Þannig að þetta kostaði hana 6.500 bara á 3 dögum.
Fagna því og maður vonar að sú hækkun sem boðuð er á að leggja í stæði fatlaðra verið 10.000, fók ætti að læra vonandi.
Sölvi Kjerúlf // 27.1 2010 kl. 11:02
„Svona gera menn ekki“Ágætur frasi en það gleymist stundum að Friðrik Sófusson benti kurteisislega á, að það voru á þessum tíma landslög
að þessi háttur var hafður á,og að allir eiga að fara að landslögum,líka fjármálaráðherrann og líka Daðvíð Oddsson,sem er að ég held, afleitur lögfræðingur og enn lakari fjármálamaður,í báðum tilfellum stendu Friðrik honum langtum framar,og hefur alltaf gert.
Haraldsson // 27.1 2010 kl. 11:03
Sæll, ég á svona myndir í langa baner, hvernig stendur á því að löggan tekur ekki rúnt við stórmarkaðina og sektar þessa menn sem misnota stæðin.
Anna // 27.1 2010 kl. 11:28
Ég er svo illa innréttuð að mér hitnar um hjartaræturnar þegar ég sé stöðuverðina labba um hjá World Class í Laugum og sekta raðirnar sem leggja ólöglega þar. Þeir sem ekki geta labbað aðeins lengra en nokkra metra inn í líkamsræktarstöð frá bílnum ættu virkilega að hugsa sig um hvort þeir eigi að eyða tímanum þar innandyra yfir höfuð.
Andrés Ingi // 27.1 2010 kl. 12:44
Flott hjá þér!
Gerði einu sinni athugasemd við einn sem hafði lagt í stæði fatlaða fullfrískur maðurinn, og sagði við hann: „Heyrðu þú gleymdir hjólastólunum“ og ég fékk yfir mig bölv og ragn.
Ég ætla gera þetta aftur við fyrsta fækifæri.
Eiður Svanberg Guðnason // 27.1 2010 kl. 14:29
Einhverntíma mun ég segja ykkur söguna af því er ég gerði athugasemd við ungt fólk, sem henti rusli út um bílglugga. Það var merkilegt mál. Þau gáfu mér svo loforð, sem aldrei var staðið við að best ég veit.
Eiður Svanberg Guðnason // 27.1 2010 kl. 15:45
Hvar er heimasíðan, þar sem hægt er að birta svona myndir? Ef hún er til s kulum við kynna hana fyrir sem allra flestum. Áfram Ísland ,gegn
tillitslausum ökumönnum, sem ekki ættu að hafa bílpróf.
Eiður Svanberg Guðnason // 27.1 2010 kl. 15:49
Andrés Ingi, – ég hef líka heyrt sagt, – „ Á ég að lemja þig, helvítið þitt?“ Svo hef ég líka verið verið laminn og til eru lögregluskýrslur það mál.
Það liggur við að það sé bannað að hafa of ríka réttlætistilfinningu.
Eiður Svanberg Guðnason // 27.1 2010 kl. 17:23
Þarna voru að verki tveir piltar og annar með skilorðsbundinn dóm á bakinu. Ég veit hver hver ber ábyrgð á þeim.
Martin // 28.1 2010 kl. 10:14
Smávægileg athugasemd við þessi ummæli þín:
———-
27.1 2010 kl. 14:29
Einhverntíma mun ég segja ykkur söguna af því er ég gerði athugasemd við ungt fólk, sem henti rusli út um bílglugga. Það var merkilegt mál. Þau gáfu mér svo loforð, sem aldrei var staðið við að best ég veit.
———-
Þau unga fólkið? Nei, það gengur ekki!
Ég hef aldrei skilið hvernig orðin fólk (hk. et.) og krakkar (kk ft.) geta orðið hvorgukynsorð í fleirtölu.
Orðið krakkar verður alltaf karlkynsorð í fleirtölu þrátt fyrir að átt sé um hóp stúlkna og drengja.
Sigurður Helgason // 29.1 2010 kl. 13:01
Núna kom ég þessu á réttan stað!
Kærar þakkir fyrir þetta Eiður!
Segja má að þetta séu orð í tíma töluð. Þarna er brotið gróflega á rétti fatlaðra til að komast leiðar sinnar og sinna nauðsynlegum erindum. Það eru nefnilega sjálfsögð mannréttindi en reynslan hefur kennt konunni minni sem er fötluð að hún virðist ekki vera velkomin á alla staði. En það er athyglisvert að fólk skulli ekki hreinlega skammast sín fyrir að brjóta svona á meðborgurum sínum.
Rita ummæli