Um Erlu Ósk

Ég heiti Erla Ósk Ásgeirsdóttir og er fædd og uppalin í Stykkishólmi svokallaður Hólmari. Ég er mjög stolt og ánægð að hafa alist upp á þessum fallega stað, umkringd frábæru fólki. Ég er með BA-gráðu í stjórnmálafræði og er meistaranemi í stjórnsýslufræðum (MPA) við Háskóla Íslands. Í dag starfa ég hjá markaðsdeild Landsbankans. Ég er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og sit tímabundið inni á Alþingi fyrir Birgi Ármannsson sem er í barneignarleyfi. Einnig hef ég verið virk í félagsstörfum, ég sit í stjórn Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Ég var formaður Heimdallar árin 2006-2008 og hef átt sæti í Miðstjórn flokksins og stjórn SUS. Ég hef setið í stjórn Landssambands Sjálfstæðiskvenna, ásamt því að vera formaður Politicu, félags stjórnmálafræðinema, formaður Ása, félags ungra sjálfstæðismanna af landsbyggðinni búsettra á höfuðborgarsvæðinu og formaður Sifjar, félags ungra sjálfstæðismanna í Stykkishólmi, auk fjölda annarra starfa.

Skiptinemadvölin á Ítalíu

Þegar ég var 17. ára ákvað ég að nauðsynlegt væri fyrir mig að kanna heiminn aðeins betur og sjá hvernig lífið væri utan Stykkishólms. Eftir að hafa verið bitin af ferðabakteríunni fór ég sem skiptinemi til Treviso á Ítalíu árið 1994. Þar dvaldist ég í góðu yfirlæti í tæpt ár hjá Bottazzo fjölskyldunni, sem er mér mjög kær. Ég gekk í ítalskan skóla og lærði að tala ítölskuna reiprennandi.

Akranes og stúdentsárin

Að dvöl minni lokinni flutti ég á Akranes og gekk í Framhaldsskóla Vesturlands (FVA). Þar átti ég frábær ár, bjó meðal annars á heimavist og spilaði körfubolta með meistaraflokki ÍA og þjálfaði frábæra litla krakka í frjálsum íþróttum hjá íþróttafélaginu Skipaskaga. Ég útskrifaðist með stúdentspróf árið 1998 af tungumálabraut.

Ferðamálaskóli Íslands

Í beinu framhaldi var stefnan tekin á Ferðamálaskóla Íslands, en þar tók ég alþjóðlegt próf í ferðamálafræðum eftir tæplega eins árs nám. Námið var skemmtilegt og ég eignaðist þar mjög góðar vinkonur.

Heimsklúbburinn

Eftir að hafa útskrifast sem ferðaráðgjafi fór ég að vinna hjá Heimsklúbbi Ingólfs og Príma, Ingólfi Guðbrandssyni, ferðamálafrömuði. Það var sannkallað ævintýri. Ég fékk að ferðast sem fararstjóri um draumalandið Ítalíu og heimsækja alla staðina sem mig hafði dreymt um. Reyndar fór ég líka til Tælands sem var frábær lífsreynsla.


Skemmtiferðaskipin tvö og heimsreisan

Ég stoppaði stutt hjá Heimsklúbbnum og fór að vinna á skemmtiferðaskipi sem þerna fyrst á The Seabourn Sun árið 2000 (www.seabourn.com/ ) og svo á The World 2002 (www.residensea.com/ ). Þessi tæpu tvö ár mín um borð í skemmtiferðaskipum voru draumi líkust. Fyrra skipið fór í heimsreisu og ég hef komið til vel flest allra landa sem liggja við strönd. Það var sannarlega erfitt að hætta þessu lífi, en ég sá fram á að þetta væri ekki það sem mig langaði að gera í framtíðinni.

Reykjavík og Háskóla Íslands

Eftir þessi frábæru ævintýri ákvað ég að setjast á skólabekk – nú harðákveðin í hvert skyldi stefna. Ég hóf nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þremur árum seinna með BA- próf upp á arminn. Á þessum tíma tók ég þátt í allskonar félagsstörfum; var formaður Politicu, félags stjórnmálafræðinema og stúdentaráðsliði fyrir hönd Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við HÍ. Árið 2002 unnum við meirihluta í Stúdentaráði Háskóla Íslands með fjórum atkvæðum eftir 11 ára setu í minnihluta. Eftir að hafa setið meira og minna í Stúdentaráði í tvö ár tók ég við sem framkvæmdastjóri Stúdentaráðs til eins árs.

Meira Háskólanám
Nú eftir að hafa klárað stjórnmálafræðina dreif ég mig í meistaranám í opinberri stjórnsýslu (MPA). Ég á bara eftir að skrifa ritgerðina til að fá þá gráðu.

Kína og utanríkisþjónustan
Ég var svo heppin af fá starfsnemastöðu í Utanríkisráðuneytinu árið 2005 og fór að vinna í sendiráði Íslands í Kína í hálft ár. Með því rættist gamall draumur og tíminn leið alltof fljótt. Þar lærði ég ótal margt og upplifði hluti sem mig hafði ekki órað fyrir.

Landsbankinn
Undanfarin ár hef ég unnið í markaðsdeild Landsbankans. Samhliða því hef ég sinnt ýmsum félagsstörfum, var formaður Heimdallar 2006-2007, sat í stjórn SUS og í Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og var formaður Fjölskyldunefndar Sjálfstæðisflokkisins. Ég sit í Atvinnumálanefnd flokksins í dag og hef verið varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins frá því 2007 og sit nú tímabundið á Alþingi.

Áhugamálin í hnotskurn
Áhugamálin eru stjórnmál og fólk almennt, en ég er mikill körfuboltaaðdáandi og reyni að fara á alla leiki Snæfells frá Stykkishólmi, en jafnframt stunda ég fjallgöngur og sjósund af kappi.

Rita ummæli

You must be logged in to post a comment.