Ég fékk til mín þrjá bandaríska prófessora í heimsókn í dag á Alþingi frá Lehigh university. Þessi háskóli og afburðanemendur á hans vegum hafa á undanförnum árum tekið fyrir ákveðið land og gert fjölþætta rannsókn í samstarfi við The Martindale Student Associates programm á opinberri stefnu landsins í helstu málaflokkum. Þegar rannsókninni er svo lokið er efni hennar gefið út í skýrslu sem kallast e. Perspectives on Business and Economics.

Síðastliðið ár var Nýja Sjáland fyrir valinu og þar voru eftirfarandi viðfangsefni rannsökuð og gefin út í skýrslu:

Þessir prófessorar voru einmitt í þessum erindagjörðum í dag en þeir hafa áhuga á láta úrvalsnemendur sína rannsaka Ísland.  Nemendurnir munu koma til Íslands og dveljast hér í skamman tíma til að afla sér upplýsinga um viðfangsefni sitt. Gert er ráð fyrir að rannsóknin sem verður margþætt muni m.a. og jafnvel að einhverju leiti snúast um eftirfarandi þætti:

  1. Sjálfbæra þróun
  2. Heilbrigðiskerfið
  3. Jarðvarma og endurnýjanlega orkugjafa
  4. Stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslandi
  5. Samfélagsleg viðbrögð við krísu
  6. Greining á bankahruninu
  7. Menntakerfið
  8. Þjóðerniskennd varðveitt í tónlist (e.Nationalism Preserved in Music)
  9. Staða gjalmiðilsins (e. Currency Volatility)
  10. Evrópusambandið ofl.

Það verður spennandi að sjá niðurstöður þessara rannsókna.

Rita ummæli

You must be logged in to post a comment.