Eiríkur Jónsson

blogg á eyjan.is

HÓLMSTEINN OG GAY PRIDE – DRÖG AÐ FRÉTT!

2.8 2011 | 15:57 | 29 ummæli

Hringdi í Hannes Hólmstein og spurði hvort hann ætlaði að vera í búning á Gay Pride um næstu helgi.

„Þú hringdir fyrir tíu árum og spurðir nákvæmlega sömu spurningarinnar,“ svaraði hannes Hólmsteinn og bætti við:

„Þú mátt hafa það eitt eftir mér að ég tek ekki þátt í samkvæmisleikjum Eiríks Jónssonar.“

Svo spjölluðum við Hannes um nýju bókina hans, grúskið á Landsbókasafninu, sumarið og lífið almennt.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (29)

  •   Loori // 2.8 2011 kl. 16:33

    Stórkarlalegt af þér að sparka í Hannes Hólstein , Eiríkur !
    En það þykir bara fyndið nú til dags, … koma svo allir að sparka í Hannes, allir að sparka í Hannes…

  •   Páll Gestsson // 2.8 2011 kl. 16:35

    Ætlar Hómlsteinn að deyja í skápnum. Ömurlegt líf.

  •   Páll Gestsson // 2.8 2011 kl. 16:37

    Þetta spark er mótvægi við sparkið í Árna Johnsen eftir þjóðhátíð.

  •   Einar Marel // 2.8 2011 kl. 18:15

    Nei þarna er Loori vel falinn að venju. Auðvitað, hér þarf ekki að gefa upp sitt rétta nafn.

  •   Gummi // 2.8 2011 kl. 18:16

    Ég hélt að Hannes væri úr skápum.

  •   Addi // 2.8 2011 kl. 18:24

    Hvað ætli barnaherbergið sé stórt? Allt fullt af fugladriti?

  •   Tómas // 2.8 2011 kl. 18:39

    „Endaþarmur íslenskrar blaðamennsku“ titillinn á ennþá vel við…

  •   Halldór Carlsson // 2.8 2011 kl. 18:44

    gott svar hjá Hannesi, þér kemur það ekkert við

  •   Páll Gestsson // 2.8 2011 kl. 18:54

    Það geta flestir svarað fyrir sig, ef á reynir. Hannes Hólmsteinn er ekki heimskur, en stundum svolítið vitlaus, kannski of oft.

  •   Halldór Carlsson // 2.8 2011 kl. 19:43

    nei. Hannes er naívur, og lifir í eigin hugmyndaheimi sem oft er alvarlega á skjön við raunveruleikann. en hann er ekki vitlaus (hvað sem það nú líka þýðir líka) – færslan hjá Eiríki er það frekar – en hei: Eiríkur gefur sig svosem ekkert út fyrir að vera neinn annar en hann er :)

  •   Snorri Sturluson // 2.8 2011 kl. 21:42

    Hannes er ekki vitlaus. Langt frá því.

    En hann gerir sig stundum sekan um heimsku.

  •   Snorri Sturluson // 2.8 2011 kl. 21:50

    Þegar á allt er litið er svar hans við spurningu Eiríks

    dálítið heimskulegt þó það sé snjallt.

  •   Mapplethorpe // 2.8 2011 kl. 21:58

    Guess Snorri feels the other guy could have said:

    „Sure. And you’re welcome to join me dressed as my bitch.“

  •   Guðmundur // 2.8 2011 kl. 21:59

    Ógeðslega lágkúrulegar persónulegar árásir. Athyglisvert hvernig hver lepur eftir öðrum.

  •   Snorri Sturluson // 2.8 2011 kl. 22:20

    Hvaða vitleysa, Guðmundur.

    Það er bara verið að benda á að kannski

    hefði verið klókt af Hannesi að vera hortugur.

  •   Anna María Sverrisdóttir // 2.8 2011 kl. 23:35

    Eiríkur. Hvernig sem hverjum og einum líkar við Hannes er kynhneigð hans, hans mál einsog sumt er þitt persónulega mál. t.d. kynhneigð þín og margt fleira. Það fer ótrúlega, svakalega og ömurlega í taugarnar á mér þegar prívatmál fólks eru notuð á þennan hátt og þá er alveg sama hvort það er kynhneigð eða eitthvað annað. Seint verð ég talin til aðdáenda Hannesar en það er til óskráð regla meðal siðaðra manna sem segir að við lofum fólki að hafa sín persónulegu mál í friði, sérstaklega ef maður veit að það vill hafa þau í friði. Mér sýnist af nægu að taka til að dúndra rækilega á Hannes og engin þörf á að nota svefnherbergisvenjur hans eða aðrar persónulegar venjur til þess að koma honum í varnarstöðu.
    Mér sýnist þú Eiríkur minn, þurfir að skoða eigin persónulegu mál rækilega.

  •   Eysteinn Jónsson // 3.8 2011 kl. 00:20

    Það er merkilegt hversu líkur ritstíll Eiríks Jónssonar er nafnlausu kommentaskrifurunum „Snorri Sturluson“ og „Mapplethorpe“: Hversu margir slíta setningar með þessum hætti á milli lína? Annað hvort á Eiríkur aðdáendur sem hafa tekið upp ritstíl hans, eða hann situr sjálfur og kommentar undir dulnefni á eigin blogg. Ég veit ekki hvort er undarlegra.

  •   Guðmundur Andri Thorsson // 3.8 2011 kl. 08:24

    Mér finnst þetta blogg oft soldið gott en þessi færsla finnst mér ekki skemmtileg, nema svar HHG er ágætt. Þetta er of nærgöngult. Of mikið verið að hía á mann fyrir það hver hann er og hvernig.

  •   hilmar // 3.8 2011 kl. 10:34

    Eiríkur Jónsson
    …hefur víða komið við í fjölmiðlum þannig að eftir hefur verið tekið.

    Hmmm….Ég skil..

  •   Snorri Sturluson // 3.8 2011 kl. 10:36

    Eysteini Jónssyni dettur ekki í hug að Snorri Sturluson

    eigi aðdáanda sem tekið hefur upp ritstíl hans.

    Ætli það sé ekki undarlegast.

  •   Snorri Sturluson // 3.8 2011 kl. 10:40

    Og reyndar hélt ég, Guðmundur Andri,

    að Gay Pride væri hvatning til þess að

    vera sá sem maður er, hvort sem enginn

    eða allir hía á mann.

  •   Eysteinn Jónsson // 3.8 2011 kl. 12:07

    Eiríkur Jónsson, þú ert sorglegur maður.

  •   Páll Gestsson // 3.8 2011 kl. 13:10

    Anna María.
    Sýnist þér að „Gay Pride“ fólk sé með kynhneigð sína út af fyrir sig þegar það lúsast niður Laugaveg, hálfberrassað einu sinni á ári ?

  •   Halldór Þorðarson // 3.8 2011 kl. 14:16

    Nú finn ég tilfinningu sem ég hef aldrei fundið áður. Ég hef samúð með Hannesi.

  •   hilmar // 3.8 2011 kl. 14:27

    Já Halldór. Maður hélt ekki það væri á eins manns færi að skapa slíka tilfinningu gagnvart HH.

    En þegar subbuskapurinn er nógu massívur og lágkúran í réttu hlutfalli, eins síðuhafa tekst hér með glamúr, þá opnast nýjar leiðir…..

  •   Snorri Sturluson // 3.8 2011 kl. 19:57

    Jú, kannski er Eiríkur Jónsson sorglegur maður og kannski er hann alveg tragískur maður.

    En ég þekki hann ekki og get ekkert um það sagt.

    Hann er þó ekki sorglegur vegna neins sem hann gaf út í þessari færslu.

    Tíu ár síðan hann spurði síðast.

    Hann er semsagt ekki að þýfga manninn um þetta í hverri viku.

    En gott og vel. Þetta er einkamál. Hann varðar ekkert um það.

    Á hitt ber að líta að kannski finnst fréttamanninum hann mæla fyrir munn þeirra sem telja að réttindi séu brotin á samkynhneigðum.

    Og að þeim sem sjaldan telja eftir sér að leggja inn gott orð fyrir baráttu gegn hvers kyns kúgun

    mætti þá renna blóðið til skyldunnar.

  •   Hrefna // 3.8 2011 kl. 21:14

    Aumt er að sparka í einhvern fyrir kynhneigð hans en aumast af öllu að sitja á frétt um landsþekktan „miðil“ sem misnotar barnunga drengi.

    Sé ekki hvernig einhver sem gerir bæði getur horfst í augu við sjálfan sig í spegli.

  •   Sighre // 3.8 2011 kl. 22:57

    Hvaða viðkvæmni er þetta má ekki spyrja Hannes hvort hann ætli að klæða sig eitthvað upp fyrir Gönguna.
    Ekki tengi ég það við kynhneigð Hannesar sem ég hef ekki hugmynd um hver er og er líka slétt sama.
    Svar Hannesar er skemmtilegt. En kannski að Eiríkur hefði bara átt að vera svolítið grand á því og bjóða Hannesi með sér í Gönguna.
    Það hefði þá verið um eitthvað að spjalla í Netheimum á eftir.

  •   Hafsteinn Árnason // 8.8 2011 kl. 01:03

    Hver er tilgangurinn með þessu? Það er naumast hvað það á að ganga langt í að leggja Hannes í einelti. Þetta er orðið heldur ósmekklegt.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og fimm? Svar: