Eiríkur Jónsson

blogg á eyjan.is

FALL FACEBOOK – FYRSTA VÍSBENDING!

6.4 2011 | 13:14 | 3 ummæli

Á meðan allt lék í lyndi. Tóti og ég.

Tóti vinur minn er hættur á Facebook.

Einn sá fyrsti sem byrjaði og maðurinn sem kynnti mig fyrir veraldarvefnum.

„Ég var orðinn þreyttur á þessu og held að betra sé að fara bara í heitu pottana,“ segir hann.

„Með því að hætta á Facebook er ég að bæta líf mitt og hreinsa tilveruna.“

Brotthvarf ofsafacebooksinna eins og Tóta gæti verið fyrsta vísbending um fall Facebook.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (3)

  •   Andrés Jónsson // 6.4 2011 kl. 13:42

    Ég finn til með honum. Hlýtur að vera að fara í gegnum hrottaleg fráhvörf. Vonandi lýsir hann eldraun sinni á badabing.is

  •   Tóti sjálfur // 6.4 2011 kl. 14:46

    Í fljótu bragði virðist þetta nú vera mun auðveldara en til dæmis að hætta að reykja og drekka. Og ég er nú vantrúaður á að hægt sé að finna fyrir fráhvörfum frá þeirri froðufellandi heimsku sem Facebook er löðrandi í þessa síðustu og verstu daga í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.

  •   Zdeini // 6.4 2011 kl. 22:41

    Góðar geidur ganga fyrztar fyrir björg…

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og tveimur? Svar: