Dofri Hermannsson

Virkjum hausinn – Verndum náttúruna

600 m í Ártúnsbrekkunni

27.1 2010 | 2 athugasemdir

Ég tók þessa mynd af því ég veit af eigin raun að þeir sem taka ákvarðanir í umferðar- og skipulagsmálum eru sjaldséðir gestir í strætó og mér varð hugsað til þess hvað þessir farþegar myndu taka mikið pláss í Ártúnsbrekkunni einir í bíl. Svarið er um 600 metrar eða frá Húsgagnahöllinni og niður að Elliðaám.Leið
Það er áhugavert fyrir fólk sem vill spara peninga í borgarkerfinu að velta fyrir sér hvað kostar annars vegar að reka strætó og hins vegar hvað kostar að reka óþarflega margar akreinar, mislæg gatnamót og allt hitt sem fylgir óþarflega mikilli umferð einkabíla.

Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag

5. hver býr í Grafarvogi

25.1 2010 | 9 athugasemdir

Nú er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki eiga neinn borgarfulltrúa í Grafarvogi þar sem 5. hver Reykvíkingur býr. Tveir ágætir menn buðu sig fram en hvorugur fékk nægilega góða kosningu til að komast í öruggt sæti. Reyndar ekki einu sinni á topp 10.

Þetta hlýtur að vera Sjálfstæðismönnum umhugsunarefni því þeir vita sem er að Grafarvogsbúar kunna vel að meta það sem vel er gert fyrir hverfið. Þetta hef ég líka fundið með mjög skýrum hætti á þessu kjörtímabili. Á sama hátt er eftir því tekið í Grafarvogi þegar hverfið á sér ekki málsvara á vettvangi borgarstjórnar.

Grafarvogsbörn

Grafarvogsbörn

Að þessu leyti er Grafarvogur um margt sérstakt hverfi. Hverfisvitund er mikil, samstaða íbúa sterk og hverfið hefur oft verið í fararbroddi með ýmsar nýjungar. Þar var t.d. fyrsta þjónustumiðstöð borgarinnar opnuð og íbúasamtökin í Grafarvogi spiluðu stórt hlutverk í samráðshópi um lausn á deilu um legu Sundabrautar.

Hverfisráð Grafarvogs hefur líka verið öflugt og þar hafa pólitískir andstæðingar staðið saman um framfaramál hverfisins. Ég nefni sem dæmi Græna samgöngustefnu í hverfum borgarinnar sem meirihlutinn í Umhverfis- og samgönguráði hafði svæft tvisvar þegar Hverfisráðið ákvað einróma að taka þá hugmynd upp á sína arma – til hagsbóta fyrir allt hverfið.

Að mínu mati verða borgarfulltrúar að endurspegla allt samfélag borgarinnar. Þótt miðborgin sé sameign okkar allra og mikilvægt að hún blómstri er ekki gott að sá hópur sem er valinn til að stýra borginni sé of einsleitur og búi þar allur á sama hektaranum. Það er eðlileg krafa að stjórnendur borgarinnar þekki hana alla af eigin raun.

www.dofrihermannsson.is

www.facebook.com/Dofri.Hermannsson

Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag

Lykillinn að hamingjunni

22.1 2010 | 5 athugasemdir

Sjálfstæðismenn í borginni mega eiga það að þeim er sama hvaðan góðar hugmyndir koma. Þeir eiga það jafnvel til að taka tillögum minnihlutans svo vel að þegar nokkrir mánuðir eru liðnir eiga þeir ljúfar minningar um að hafa sjálfir lagt þær fram eins og sjá má í auglýsingu í nýjasta tölublaði Grafarvogsblaðsins.

Grafarvogsblað auglýsing

Grafarvogsblað auglýsing

Ingrid Bergmann sagði eitt sinn að lykillinn að hamingjunni væri góð heilsa og lélegt minni. Má til sanns vegar færa!

Flokkar: Óflokkað · Stjórnmál og samfélag