Dofri Hermannsson

Virkjum hausinn – Verndum náttúruna

Húsin í bænum

28.1 2010 | 7 athugasemdir

Víða í borginni, einkum í eldri hverfum miðbæjarins, má sjá gömul hús standa niðurnídd misserum saman. Enga kröfu virðist vera hægt að gera til eigendanna um að þeir haldi húsunum við eða ljúki framkvæmdum sem byrjað hefur verið á.

Mörg þessara húsa eiga það sameiginlegt að hafa verið keypt af einstaklingum eða fjárfestingarfélögum sem ætluðu sér að græða á því að braska með eignirnar. Ætlun margra var að rífa húsin, byggja stærri hús á lóðinni og taka út hagnaðinn af auknu byggingamagni.

Sumir ku hafa jafnvel gengið svo langt að kaupa eitt hús, leigja það fólki sem ekki eru sérlega eftirsóknarverðir nágrannar með það í huga að kaupa nærliggjandi eignir þegar nágrannarnir væru farnir að sjá sitt óvænna vegna þróunarinnar í götunni.

Nú eru flestir þessara braskara á hausnum en húsin standa eins og brunnar eða brotnar tennur í annars fallegu brosi götunnar. Sum standa tóm með brotna glugga, í öðrum er búið að negla fyrir gluggana og í sumum hafast við einhvers konar leigjendur sem því miður vekja nágrönnum ugg um öryggi barna og efnislegra verðmæta.

Við þessu virðist borgin ekki eiga nein ráð. Það virðist nánast ómögulegt fyrir nágrannana að heimta úrbætur þó augljóslega beri þeir stóran skaða af nábýlinu við hin niðurnídd hús.

Klukkan 17 á morgun ætlum við að ræða þessi mál á fundi í Bankastræti 10, 2. hæð en þar verða nefnd dæmi um hús af þessu tagi og rætt af þekkingu um úrræði borgarinnar – eða öllu heldur skortinn á þeim – og hvað þarf til að breyta þessu ástandi. Endilega kíkið við, hlýðið á stutt erindi og takið þátt í umræðum á eftir.

Fésbókarar geta meldað sig á viðburðinn hér.

Flokkar: Óflokkað · Stjórnmál og samfélag