Dofri Hermannsson

Virkjum hausinn – Verndum náttúruna

Kött?

26.1 2010 | 3 athugasemdir

Borgarfulltrúar – þeir sem nú sitja – og þeir sem verða kjörnir inn í borgarstjórn Reykjavíkur í komandi kosningum ættu að hafa verulegar áhyggjur af því ástandi, sem er að skapast í íslenskum kvikmyndaiðnaði. Og gera eitthvað í því.
Á liðnu kjörtímabili var unnið með hugtakið Reykjavík – kvikmyndaborg, sem reyndar rann út í sandinn þegar kreppan barði á dyr. Nafn höfuðborgarinnar er órjúfanlega tengt kvikmyndahátíðum á við Reykjavík Film Festival, sem ber hróður borgarinnar um víðan völl. Hingað koma erlendir ferðamenn, sem hafa séð borginni okkar bregða fyrir í íslenskum og erlendum kvikmyndaverkum, myndböndum, heimildamyndum, auglýsingum. En síðast og ekki síst, eru flest fyrirtæki í kvikmyndaiðnaði á Íslandi með heimilisfang í Reykjavík, starfsmenn þeirra greiða hingað skatta og skyldur. Einyrkjar og starfsmenn í iðnaðinum búa vel flestir einhvers staðar í Reykjavík og leggja á virkan hátt sitt af mörkum til að gera borgina okkar betri.

Hamarinn, Pegasus

Hamarinn, Pegasus

Kvikmynda og sjónvarpsiðnaður Íslands hefur slitið barnsskónum og til hefur orðið öflug iðngrein, þar sem þjálfaðir atvinnumenn sinna bæði skemmtun og upplýsingu. Reykvíkingar, sem og aðrir Íslendingar standa á þröskuldi nýrrar aldar – upplýsingaaldarinnar. Þar er þörf á vinnubrögðum, hugmyndafræði og tækini kvikmynda og sjónvarpsfólks til að ganga í verkin sem framundan eru og einnig hér eru tekjuskapandi tækifæri, innlend sem erlend.

Það skýtur því skökku við að bæði ríkisvald og ríkisútvarp virðast sameinast um að koma kvikmyndaiðnaði Íslands fyrir kattarnef, einmitt þegar vöxtur greinarinnar er virkilega að taka flug.
RUV hefur aldrei sinnt hlutverki sínu sem sprotavagga þess iðnaðar, sem er þó uppspretta þeirrar afurðar, sem RUV kerfið nærist á. Reykvískir unglingar, sem og aðrir íslendingar vita heilmikið um hversdagslíf borgarbúa í Beverly Hills eða Harlem. Við höfum hins vegar aldrei barið augum leikna þáttaröð, sem gerist meðal venjulegra Reykvíkinga í Breiðholti, Grafarvogi eða vestur í bæ. Hvað veldur?  Íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa á umliðnum árum sýnt fram á að hægt er að framleiða leiknar íslenskar þáttaraðir, sem njóta hylli áhorfenda. Reyndar er það sjónvarpsstöðin, sem ekki merkir sig sem útvarp/stöð allra landsmanna, sem hefur verið iðnari við þann kolann, þótt enginn sé þjónustusamningurinn um slíkt við ríkið á þeim bæ.

Af yfirlýsingum Ríkisútvarpsins mætti ætla að stærsti hluti útgjalda stofnunarinnar fari til kaupa á dagskrárefni frá íslenskum kvikmyndagerðarmönnum. En því fer reyndar fjarri ef grannt er skoðað.
Á síðasta ári hafði Ríkisútvarpið 4.4 milljarða á tekjuhliðinni. Á útgjaldahliðinni til innkaupa á íslensku efni fóru hinsvegar á bilinu 120 til 150 milljónir. Sem sagt ekki nema brotabrot af útgjöldum stofnunarinnar.
Á umliðnum árum hefur RUV m.a. talið sig gegna menningarhlutverki sínu til fulls með því að kaupa að jafnaði um það bil 25 heimildarmyndir á ári – fyrir ca. jafnmargar milljónir. Talan er sveiflukennd því á árunum 2007 og 2008 voru myndirnar annars vegar 19 og hins vegar 12 – og útgjöldin í  milljónum sömuleiðis.  Hver mynd kostar margfalt meira en það sem RUV greiðir fyrir vöruna.
RUV hefur svo greitt eftir geðþótta til framleiðenda íslenskra kvikmynda, á bilinu 2 – 4 milljónir fyrir sýningarréttinn. Framleiðslukostnaður hverrar myndar nemur tugum til hundruðum milljóna. Heldur ekki hér er hlutur RUV stór í heildarmyndinni. Ef svo að lokum er litið til þeirra þriggja beinu útsendinga, sem sérstaklega eru tilgreindar í niðurskurðaráætluninni, og allar tengjast skapandi iðnaði; Eddan, Gríman og Íslensku tónlistarverðlaunin – þá má geta þess að fagfélögin hafa að mestu sjálf staðið straum af kostnaði við þá dagskrárgerð – RUV hefur hins vegar hirt auglýsingatekjurnar.

Þegar litið er yfir þennan völl mætti að ósekju halda því fram að RUV hafi nærst á kvikmyndaiðnaðinum, en ekki öfugt. Áratug eftir áratug hefur íslenski kvikmyndageirinn lagt stofnuninni til dagskrárefni á spottprís.
Fjárhagslegir hagsmunir íslenskra kvikmyndagerðarmanna hafa aldrei legið í því að þeir hafi riðið feitum hesti frá kastalanum í Efstaleiti. Hagsmunir beggja aðila hafa verið tryggðir með ákveðinni samvinnu.
Samningur við RUV, hversu smánarlegur, sem hann hefur verið fjárhagslega, hefur opnað aðgengi að framleiðslufjármagni og samstarfsaðilum annars staðar frá – bæði innlendum og erlendum.

Ákvörðun RUV um að skera burt þær 150 milljónir, sem innkaupaseðill innlendrar dagskrárgerðar hefur hljóðað uppá getur varla verið af fjárhagslegum orsökum því einungis er um að ræða 3,41% af rekstrarfé sl. árs.
Lokun á íslenska kvikmyndaiðnaðinn hlýtur að stjórnast af öðrum hvötum en rekstrarlegum, þar sem um smápening er að ræða í heildarmyndinni uppá milljarða.
Því er kominn tími til að spyrja. Hvaða hvatir ráða hér för?

Flokkar: Óflokkað · Menning og listir · Stjórnmál og samfélag · Viðskipti og fjármál

Lykillinn að hamingjunni

22.1 2010 | 5 athugasemdir

Sjálfstæðismenn í borginni mega eiga það að þeim er sama hvaðan góðar hugmyndir koma. Þeir eiga það jafnvel til að taka tillögum minnihlutans svo vel að þegar nokkrir mánuðir eru liðnir eiga þeir ljúfar minningar um að hafa sjálfir lagt þær fram eins og sjá má í auglýsingu í nýjasta tölublaði Grafarvogsblaðsins.

Grafarvogsblað auglýsing

Grafarvogsblað auglýsing

Ingrid Bergmann sagði eitt sinn að lykillinn að hamingjunni væri góð heilsa og lélegt minni. Má til sanns vegar færa!

Flokkar: Óflokkað · Stjórnmál og samfélag