Ég tók þessa mynd af því ég veit af eigin raun að þeir sem taka ákvarðanir í umferðar- og skipulagsmálum eru sjaldséðir gestir í strætó og mér varð hugsað til þess hvað þessir farþegar myndu taka mikið pláss í Ártúnsbrekkunni einir í bíl. Svarið er um 600 metrar eða frá Húsgagnahöllinni og niður að Elliðaám.
Það er áhugavert fyrir fólk sem vill spara peninga í borgarkerfinu að velta fyrir sér hvað kostar annars vegar að reka strætó og hins vegar hvað kostar að reka óþarflega margar akreinar, mislæg gatnamót og allt hitt sem fylgir óþarflega mikilli umferð einkabíla.
Færslur í flokknum: 'Lífstíll'
600 m í Ártúnsbrekkunni
27.1 2010 | 2 athugasemdir
Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag
5. hver býr í Grafarvogi
25.1 2010 | 9 athugasemdir
Nú er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki eiga neinn borgarfulltrúa í Grafarvogi þar sem 5. hver Reykvíkingur býr. Tveir ágætir menn buðu sig fram en hvorugur fékk nægilega góða kosningu til að komast í öruggt sæti. Reyndar ekki einu sinni á topp 10.
Þetta hlýtur að vera Sjálfstæðismönnum umhugsunarefni því þeir vita sem er að Grafarvogsbúar kunna vel að meta það sem vel er gert fyrir hverfið. Þetta hef ég líka fundið með mjög skýrum hætti á þessu kjörtímabili. Á sama hátt er eftir því tekið í Grafarvogi þegar hverfið á sér ekki málsvara á vettvangi borgarstjórnar.
Að þessu leyti er Grafarvogur um margt sérstakt hverfi. Hverfisvitund er mikil, samstaða íbúa sterk og hverfið hefur oft verið í fararbroddi með ýmsar nýjungar. Þar var t.d. fyrsta þjónustumiðstöð borgarinnar opnuð og íbúasamtökin í Grafarvogi spiluðu stórt hlutverk í samráðshópi um lausn á deilu um legu Sundabrautar.
Hverfisráð Grafarvogs hefur líka verið öflugt og þar hafa pólitískir andstæðingar staðið saman um framfaramál hverfisins. Ég nefni sem dæmi Græna samgöngustefnu í hverfum borgarinnar sem meirihlutinn í Umhverfis- og samgönguráði hafði svæft tvisvar þegar Hverfisráðið ákvað einróma að taka þá hugmynd upp á sína arma – til hagsbóta fyrir allt hverfið.
Að mínu mati verða borgarfulltrúar að endurspegla allt samfélag borgarinnar. Þótt miðborgin sé sameign okkar allra og mikilvægt að hún blómstri er ekki gott að sá hópur sem er valinn til að stýra borginni sé of einsleitur og búi þar allur á sama hektaranum. Það er eðlileg krafa að stjórnendur borgarinnar þekki hana alla af eigin raun.
Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag
Burt með skutlið
24.1 2010 | 12 athugasemdir
Sumt er hægt að leysa með því að hugsa öðruvísi. Í Reykjavík fara foreldrar 300 þúsund skutlferðir með börn í frístundir í hverjum mánuði. Foreldrar eyða í skutlið rúmlega 100 þúsund klukkustundum og um 170 milljónum á mánuði. Þetta er stór hluti af óþarfri, mengandi og hættulegri umferð í hverfum borgarinnar.
Í myndbandinu reiknum við einungis út hvað skutlið kostar miðað við 92 kr. á km. sem er opinber tala frá skattstjóra og notuð við kostnaðarútreikninga þegar fólk notar bílinn sinn fyrir vinnustað.
Ekki er tekið með í myndbandsútreikninginn, vinnutap eða önnur skutltengd útgjöld. En þegar betur er að gáð er gífurlegur beinn kostnaður við skutl hjá hverri og einni barnafjölskyldu. Sama gildir um samfélagslegt tap. En þessu er hægt að breyta!
Hugsið málið – horfið á myndbandið – Sendið það endilega áfram til vina og vandamanna.
www.dofrihermannsson.is
Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag
Græn orka til spillis
19.1 2010 | 2 athugasemdir
Kosningarnar í vor verða að snúast um framtíðina og frambjóðendur verða að hafa eitthvað fram að færa um hana. Verða að sýna fram á hvernig við getum haldið áfram að eiga gott líf og hvernig er hægt að gera það betra þrátt fyrir samdráttarskeið.
Atvinnumál eru grundvallaratriði og Reykjavíkurborg þarf að bæði að gera meira og að gera aðra hluti til að efla atvinnu í borginni.
- Af hverju er t.d. Orkuveita Reykjavíkur búin að lofa allri grænni orku í fyrirsjáanlegri framtíð til starfsemi suður með sjó?
- Af hverju er orkan seld til iðnaðar sem skapar fæst störf og minnstan virðisauka á hvert megawatt?
- Af hverju hefur Reykjavíkurborg ekki markað sér stefnu um orkunýtingu þar sem þeim er boðið best sem skapa flest störf og mestan virðisauka?
- Af hverju nýtir Reykjavíkurborg sér ekki þá einstöku aðstöðu að vera einn helsti framleiðandi grænnar orku, laðar til sín grænan iðnað og skapar með því Reykjavík alþjóðlegan sess sem græn höfuðborg?
Á Lálandi í Danmörku snéri sveitarfélagið vörn í sókn með því að marka sér skýra stefnu um græna orkuframleiðslu og iðnaðaruppbyggingu. Síðan þá hefur fjöldi erlendra fyrirtækja og rannsóknaraðila leitað þangað með sínar rannsóknir og framleiðslu og fjöldi nýrra grænna starfa hefur orðið til.
Á Íslandi er fjöldi fyrirtækja að hasla sér völl í grænum iðnaði, hér eru nokkur nefnd á nafn en þau eru mikið fleiri. Reykjavíkurborg ætti að setja sér metnaðarfull markmið í sjálfsögðum framfaramálum t.d. um að koma bílaflotanum á vistvænt innlent eldsneyti og laða til sín erlenda fjárfesta með grænni orkustefnu þar sem grænn iðnaður sem skapar mörg störf og mikinn virðisauka í landinu yrði settur efst á forgangslistann.
Kíkið við á: www.dofrihermannsson.is
Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag · Viðskipti og fjármál
Þetta vil ég gera
14.1 2010 | 11 athugasemdir
Það er nóg af fólki að tala um landráð, svik, kúgun og drápsklyfjar. Það þarf enga hjálp frá mér. Með þessum orðum er ég ekki að gera lítið úr þeim vanda sem þjóðin er í, öðru nær.
Ég er hins vegar sannfærður um að við verðum að fara að tala með jákvæðum formerkjum um það hvernig við ætlum að snúa vörn í sókn, finna og nýta okkur ný tækifæri til að skapa störf og hvernig við getum áfram átt hér gott líf. Þar vil ég beita mér og þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér í 2.-3. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor.
Nýsköpun í atvinnulífinu þarf ekki að vera bundin við þröngan hóp svokallaðra sprotafyrirtækja. Í ferðaþjónustu, matvælageiranum, hönnun og annarri listtengdri starfsemi búa ótal tækifæri til nýsköpunar, nýrra starfa og nýrra tekjustofna. Með nýjum lögum um endurgreiðslu á rannsóknar- og þróunarkostnaði skapst möguleikar hjá gríðarlegum fjölda fyrirtækja að taka nú gamlar og góðar hugmyndir upp úr skúffum og hrinda þeim í framkvæmd. Reykjavíkurborg á að koma til móts við fyrirtæki sem gera slíkt.
Skipulag borgarinnar á að miðast við þarfir fólksins og fjölskyldnanna. Ekki verður við það unað að sameiginleg verðmætum borgarbúa svo sem gömlum húsum og torgum sé fórnað fyrir skammtímagróða handhafa byggingarréttar. Verktakar eiga að taka að sér verk, ekki ráða lífi íbúa og starfsemi fyrirtækja. Þessu verður að breyta.
Hjá barnafjölskyldum fer of mikill tími og kostnaður í að skutla börnum í frístundir eftir skóla og börn foreldra sem ekki hafa aðstöðu til að skutlast búa ekki við sama rétt til að njóta frístunda. Þessu þarf að breyta með því að samræma betur skólastarfið, frístundastarfið og almenningssamgöngur innan hverfa borgarinnar.
Í öllum hverfum borgarinnar er möguleiki á grænum svæðum til útivistar, heilsuræktar og leikja fyrir fjölskyldurnar í Reykjavík. Við eigum að standa vörð um þau verðmæti sem felast í þessum svæðum og lítt snortnum náttúrusvæðum í nágrenni borgarinnar svo sem á Ölkelduhálsi.
Við verðum líka að ganga af sömu virðingu um miðborgina sem er ekki einkaeign þeirra sem eiga húsin við göturnar heldur sameiginleg eign allra borgarbúa. Við eigum að búa þannig að miðborginni að þar blómstri mannlíf alla daga allan ársins hring. Til þess verðum við að búa til meira pláss fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur innan miðborgarinnar.
Hrunið og kreppan hafa valdið almennri vantrú á pólitík og pólitíkusum. Til að byggja upp traust í samfélaginu þarf betri pólitík sem grundvallast á samráði við íbúa og beinu lýðræðu við lykilákvarðanir. Stjórnmálin í nærumhverfinu eru góður vettvangur til að hefja slíka endurreisn.
Vissulega erum við með vindinn í fangið og mörg stór mál óleyst en þess heldur er mikilvægt að rísa á fætur, horfa á björtu hliðarnar frekar en að mála skrattann á vegginn, leita tækifæranna frekar en að einblína á mistökin.
Það vil ég gera og bið um stuðning Samfylkingarfólks í 2.-3. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor.
Fylgstu með og leggðu mér lið, það væri vel þegið:
Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Menning og listir · Stjórnmál og samfélag · Viðskipti og fjármál · Íþróttir


Dofri Hermannsson