Það er bæði einfaldara og flóknara en maður heldur að taka þátt í netkosningunni í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Kjörstaður í netheimum opnaði á miðnætti þriðjudag og er opinn til kl. 18 á laugardag, en þá lýkur prófkjörinu.
Ég og konan mín, við mættum á kjörstað í netheimum, galvösk og héldum að þetta væri nú ekki mikið mál, enda erum við bæði tölvuglögg og vön að umgangast hvað sem er í gegnum netið. En við duttum í fyrsta pyttinn, sem var að byrja nákvæmlega öfugt á ferlinu. Og því ákvað ég að gera smá leiðbeiningabækling handa ykkur, sem ætlið að kjósa mig í prófkjörinu – og muna – að það er 2.-3. sætið, sem ég stefni á.
Skref 1.
Fara inn á www.xs.is og smella á prófkjör 2010, eins og myndin hér sýnir.
Skref 2. Nú opnast nýr gluggi þar sem þú smellir á „Opna netkosningu“ og athugar að pop-up sé leyft.
Skref 3. Nú ertu beðin að skrá inn kennitöluna þína, svo kerfið geti sent staðfestingu í heimabankann þinn.
Skref 4. Frá glugganum, sem nú birtist og sést hér fyrir neðan getur þú smellt á merki heimabankans þíns. Heimabankinn opnast í nýjum glugga og þú finnur upplýsingar um lykilorð að kosningunni undir „upplýsingar“ – „rafræn skjöl“. Þú sækir upplýsingarnar með því að smella á sækja hnappinn – opnar skjalið og þá blasir við 10 stafa lykilorð. Nú kemur þú til baka í gluggann hér fyrir neðan og slærð inn lykilorðið.
Skref 5. Kjörseðillinn opnast. Þú velur minnst 4 og mest 8 og setur í þá röð, sem þér fellur best.
Takk kærlega fyrir þátttökuna í prófkjörinu.





Dofri Hermannsson
.
Rita ummæli