Víða í borginni, einkum í eldri hverfum miðbæjarins, má sjá gömul hús standa niðurnídd misserum saman. Enga kröfu virðist vera hægt að gera til eigendanna um að þeir haldi húsunum við eða ljúki framkvæmdum sem byrjað hefur verið á.
Mörg þessara húsa eiga það sameiginlegt að hafa verið keypt af einstaklingum eða fjárfestingarfélögum sem ætluðu sér að græða á því að braska með eignirnar. Ætlun margra var að rífa húsin, byggja stærri hús á lóðinni og taka út hagnaðinn af auknu byggingamagni.

Sumir ku hafa jafnvel gengið svo langt að kaupa eitt hús, leigja það fólki sem ekki eru sérlega eftirsóknarverðir nágrannar með það í huga að kaupa nærliggjandi eignir þegar nágrannarnir væru farnir að sjá sitt óvænna vegna þróunarinnar í götunni.
Nú eru flestir þessara braskara á hausnum en húsin standa eins og brunnar eða brotnar tennur í annars fallegu brosi götunnar. Sum standa tóm með brotna glugga, í öðrum er búið að negla fyrir gluggana og í sumum hafast við einhvers konar leigjendur sem því miður vekja nágrönnum ugg um öryggi barna og efnislegra verðmæta.
Við þessu virðist borgin ekki eiga nein ráð. Það virðist nánast ómögulegt fyrir nágrannana að heimta úrbætur þó augljóslega beri þeir stóran skaða af nábýlinu við hin niðurnídd hús.
Klukkan 17 á morgun ætlum við að ræða þessi mál á fundi í Bankastræti 10, 2. hæð en þar verða nefnd dæmi um hús af þessu tagi og rætt af þekkingu um úrræði borgarinnar – eða öllu heldur skortinn á þeim – og hvað þarf til að breyta þessu ástandi. Endilega kíkið við, hlýðið á stutt erindi og takið þátt í umræðum á eftir.
Fésbókarar geta meldað sig á viðburðinn hér.
Dofri Hermannsson
Ummæli (7)
Margrét // 28.1 2010 kl. 23:44
GLATAÐUR borgarstjóri í skítugri, ljótri og ömurlegri borg. Hanna Birna veldur ekki hlutverki sínu og hefur aldrei gert.
Einar Guðjónsson // 29.1 2010 kl. 00:48
Einfaldast er auðvitað að leggja af fasteignaskattana og þá fá borgararnir aur í vasann til að sinna viðhaldi. Gamla leiðin að skatta upp í topp og fylla fyrir þá borgina af ónýtum úrræðalausum stjórum sem hvorki svara bréfum né síma og eru algjörlega án frumkvæðis nema fyrir sig sjálfa. Sú leið gengur klarlega ekki.
Braskvæðingin gekk út á að kaupa hús en múta svo embættis og stjórnmálamanni og fá í staðinn nýtt deiliskipulag og meira byggingarmagn.Þess vegna þarf að breyta lögum um deiliskipulag sem Borgarstjórn hefur misnotað ríkulega undanfarin ár.
Dofri Hermannsson // 30.1 2010 kl. 08:27
Á mjög góðum fundi um þessi mál í gær kom reyndar fram að borgin hefur heimildir til að beita dagsektum á eigendur húsa sem eru í niðurníðslu og óíbúðarhæf.
Þetta úrræði þarf að virkja því það er ólíðandi fyrir nágranna þessara húsa að þau séu látin draga allt nágrennið niður í svaðið og skapi stóra hættu t.d. á bruna.
Einar Guðjónsson // 30.1 2010 kl. 22:35
Dagsektir þarf að borga með peningum Dofri, þeir vaxa
ekki á trjánum. Dagsektir leiða bara til þess að Reykjavíkurborg eignast húsin upp í sektargreiðslur og ekki borgar Reykjavíkurborg neina skatta. Hin skattlögðu verðmæti verða til í raunheimum s.s. út á sjó, í frystihúsum og álverum ( 90% af tekjunum ). Þaðan velta verðmætin yfir til húseigenda, iðnaðarmanna og fleiri.
Einfaldasta ráðið er að afleggja fasteignaskatta, annað ráð til að koma í veg fyrir græðgiskaup á gömlum húsum og Hafnarsvæðinu er að taka skipulagsvaldið og deiliskipulagsvaldið frá Reykjavíkurborg. Láta lögin standa fyrir því sem þeim var ætlað að standa fyrir þ.e. deiliskipuleggja hverfi áður en þau verða til.
Kristján Sig. Kristjánsson // 31.1 2010 kl. 12:12
Fyrirspurn:
Nú vill lóðahafi byggja stórt, hann greiðir um kr. 50.000.- í hagræðingargreiðslu til flokksins fyrir hvern rúmmetra byggingarmagns. Íbúar eru ósáttir.
Ert þú tilbúinn að beita þér fyrir því að íbúasamtök svæðisins eigi kost á að kaupa samninginn af flokknum gegn sömu greiðslu, sem verði greidd td. á sjö árum án vaxta og verðbóta?
(samb. sjöáraendurgreiðsluregluna)
Margrét // 5.2 2010 kl. 13:41
Borgin er sóðalegri, skítugri og ljótari en nokkru sinni fyrr.
Alls staðar er rusl, fullar ruslatunnur og vanvirðingin er alger.
Vonandi er ekki svona sóðalegt heima hjá borgarstjóra.
Dofri Hermannsson // 5.2 2010 kl. 13:48
Bara til að taka af öll tvímæli – fasteignaskattar eru ekki vandamálið á bak við þessi niðurníddu hús. Sum þeirra eru í eigu moldríkra einstaklinga og langflest eiga það sammerkt að vera í eigu einstaklinga sem ætla að stórgræða á að rífa þau og byggja stærra.
Rita ummæli