Ég tók þessa mynd af því ég veit af eigin raun að þeir sem taka ákvarðanir í umferðar- og skipulagsmálum eru sjaldséðir gestir í strætó og mér varð hugsað til þess hvað þessir farþegar myndu taka mikið pláss í Ártúnsbrekkunni einir í bíl. Svarið er um 600 metrar eða frá Húsgagnahöllinni og niður að Elliðaám.
Það er áhugavert fyrir fólk sem vill spara peninga í borgarkerfinu að velta fyrir sér hvað kostar annars vegar að reka strætó og hins vegar hvað kostar að reka óþarflega margar akreinar, mislæg gatnamót og allt hitt sem fylgir óþarflega mikilli umferð einkabíla.
600 m í Ártúnsbrekkunni
27.1 2010 | 18:38 | 2 ummæli
Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag
|
Facebook
Efnisorð: Ártúnsbrekka, bílar, einkabíll, gatnamót, Grafarvogur, leið 6, samgöngur, sipulag, Strætó, umferð
Dofri Hermannsson
Ummæli (2)
Arnar // 27.1 2010 kl. 20:09
Góður punktur.
Fólk sem býsnast yfir hálftómum vögnum utan annatíma ætti að skoða risaumferðarmannvirkin á sama tíma.
Ég hef stundum velt því fyrir mér sem sparnaðarráði að í stað þess að breikka götur megi breyta heilu æðunum inn og út úr íbúðahverfum í einstefnugötur, hálf tími í eina átt og svo næsti hálftími í hina áttina. Ökumenn myndu svo hafa tímatöflu rétt eins og þeir sem nú reyna að nota almenningssamgöngur og er að mati sveitarstjórna ekki of gott að bíða í hálftíma og upp í klukkutíma eftir að komast leiðar sinnar úr sínu hverfi.
Samúel T. Pétursson // 27.1 2010 kl. 21:01
Þú gleymir nú bílastæðunum Dofri, sem er líklega alveigamesti þátturinn þegar kemur að skökku fjármagnsstreymi milli landnotkunar og samgangna. Þáttur sem, ef leiðréttur yrði, myndi líklega sópa ansi mörgum hlössum inn í almenningssamgöngur svo ekki þyrfti að byggja strá af nýjum umferðarmannvirkjum í margar aldir. Það verður hins vegar líklega aldrei leiðrétt nema að litlu leyti, þannig að búðu þig undir fleiri slaufur.
Rita ummæli