Dofri Hermannsson

Virkjum hausinn – Verndum náttúruna

5. hver býr í Grafarvogi

25.1 2010 | 12:10 | 9 ummæli

Nú er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki eiga neinn borgarfulltrúa í Grafarvogi þar sem 5. hver Reykvíkingur býr. Tveir ágætir menn buðu sig fram en hvorugur fékk nægilega góða kosningu til að komast í öruggt sæti. Reyndar ekki einu sinni á topp 10.

Þetta hlýtur að vera Sjálfstæðismönnum umhugsunarefni því þeir vita sem er að Grafarvogsbúar kunna vel að meta það sem vel er gert fyrir hverfið. Þetta hef ég líka fundið með mjög skýrum hætti á þessu kjörtímabili. Á sama hátt er eftir því tekið í Grafarvogi þegar hverfið á sér ekki málsvara á vettvangi borgarstjórnar.

Grafarvogsbörn

Grafarvogsbörn

Að þessu leyti er Grafarvogur um margt sérstakt hverfi. Hverfisvitund er mikil, samstaða íbúa sterk og hverfið hefur oft verið í fararbroddi með ýmsar nýjungar. Þar var t.d. fyrsta þjónustumiðstöð borgarinnar opnuð og íbúasamtökin í Grafarvogi spiluðu stórt hlutverk í samráðshópi um lausn á deilu um legu Sundabrautar.

Hverfisráð Grafarvogs hefur líka verið öflugt og þar hafa pólitískir andstæðingar staðið saman um framfaramál hverfisins. Ég nefni sem dæmi Græna samgöngustefnu í hverfum borgarinnar sem meirihlutinn í Umhverfis- og samgönguráði hafði svæft tvisvar þegar Hverfisráðið ákvað einróma að taka þá hugmynd upp á sína arma – til hagsbóta fyrir allt hverfið.

Að mínu mati verða borgarfulltrúar að endurspegla allt samfélag borgarinnar. Þótt miðborgin sé sameign okkar allra og mikilvægt að hún blómstri er ekki gott að sá hópur sem er valinn til að stýra borginni sé of einsleitur og búi þar allur á sama hektaranum. Það er eðlileg krafa að stjórnendur borgarinnar þekki hana alla af eigin raun.

www.dofrihermannsson.is

www.facebook.com/Dofri.Hermannsson

Flokkar: Óflokkað · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag | Facebook
Efnisorð: , , , , , , , , , , , , , ,



Ummæli (9)

  •   Jón Guðmundsson // 25.1 2010 kl. 13:09

    Mafíuhópurinn sem sumir kalla Sjálfstæðisflokkinn hefur í gegnum tíðina aðallega boðið fram miðaldra karla í gráum jakkafötum og slæðukerlingar sem klappstýrur.

  •   Bjarni Kjartansson // 25.1 2010 kl. 13:37

    Það er nú ekki nein sérstök þörf á, að menn búi í einhverju sérstöku hverfi, til að skilja havað þarf að gera í því tiltekna hverfi.

    Ég hef búið bæði í Hlíunum og Miðbænum en skil þó nokkuð vel, hvar skóinn kreppir í úthverfunum.

    Ég býst við, að svo se´, bæði um mína flokksmenn sem þína.

    Miðbæjaríhaldið

  •   OK // 25.1 2010 kl. 13:38

    „…því þeir vita sem er að Grafarvogsbúar kunna vel að meta það sem vel er gert fyrir hverfið.“ ? Hvað þýðir þetta? Að aðrir Reykvíkingar séu vanþakklátir og kunni ekki að meta það sem gert er fyrir hverfi þeirra?

  •   Pétur Henry Petersen // 25.1 2010 kl. 14:27

    Dofri, hér veltir þú upp athyglisverðum hlut. Flestir borgarfulltrúar sýnist mér búa í einbýlishúsum í 101, taka aldrei strætó og eyða engum tíma með fjölskyldunni nema á 17.Júní/sumardaginn fyrsta til að veiða atkvæði (/dash kaldhæðni). Segjast svo vera fulltrúar almennings.

    Svo ekki sé nú talað um launin, ekki deila þeir þar kjörum með almenningi. Því segi ég fjölgum borgafulltrúum og lækkum laun þeirra :)

  •   Hörður Halldórsson // 25.1 2010 kl. 14:31

    Þetta getur skipt máli 101 og í nágr. virðast fá stærstu og verðmætustu póstanna í ríkisframkvæmdum.Háskólana .nýja Landspítalann .Snobbtónlistahöllina o sv, frv.Eins og úthverfin 109_113 fá bara vöruskemmur og rúmfatalagera.Landspítalinn er sérkapítuli út af fyrir sig en Keldur,Iðnvogar eða jafnvel Vífilstaðir í Garðabæ hefðu verið mun betri kostir. En 101 mafían virðist ráða.

  •   Tómasha // 25.1 2010 kl. 15:33

    Ragnar Sær hefur verið varamaður í Borgarstjórn fyrir Sjálfstæðismenn (eins og þú veist). Félagið í Grafarvogi hefur verið duglegt við að koma athugasemdum á framfæri, ég held að Grafarvogurinn hafi ekki fengið síðri þjónustu eftir því hvort það var 100 daga meirihluti eða aðrir meirihlutar hafi verið við völd í Reykjavík.

    Í ljósi þess hversu mikilvægan þú telur Grafarvoginn vera, undar ég mig á því að þú skulir ákveða að vera með kosningamiðstöð þín í 101. Ber það vott um það mikivægi sem þú ert að tala um?

  •   Hjörtur J. Guðmundsson // 25.1 2010 kl. 20:42

    Einhvern veginn held ég að það sé nauðsynleg forsenda að borgarfulltrúar séu búsettir í Grafarvoginum til þess að reynast hverfinu vel þó það sé vitanlega ekki verra. Það hefur allavega ekki verið raunin til þessa mér vitanlega.

    Hjörtur,
    Grafarvogsbúi.

  •   Dofri Hermannsson // 25.1 2010 kl. 23:24

    Kæri Tómas, félagi í hverfapólitíkinni í Grafarvogi og ágæti sjálfstæðismaður. Ég sakna þess að hafa ekki séð þig í Leið 6 þegar ég hélt þar kosningafund og bauð öllum frítt í strætó frá Hlemmi upp í Spöng og til baka. Þar hefðum við getað rætt sambandsleysi aðalborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins við hverfisráðið t.d. þegar við fréttum það á skotspónum að til stæði að færa Björgun upp í Gufunes, þegar Vatnstankurinn á Hallsteinshöfða var rifinn og þegar knýja átti Hallsveg í gegn þrátt fyrir loforð um annað.
    Ég vil ekki lasta góðan vilja varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins en aðalborgarfulltrúarnir taka bara alls ekki nóg mark á athugasemdum þeirra. Langt í frá.

  •   Grafarvogsíhaldið // 26.1 2010 kl. 15:36

    Jón, ég vil ekki taka undir tilvísun þína í Mafíuna, en ég kannast ekki við að hafa séð hvorki Gísla Martein né Geir Sveins í gráum jakkafötum. Ekki þekki ég skilgreiningu orðsins „slæðukerlingar“ en ég efast um að það eigi við Hönnu Birnu, Áslaugu, Þorbjörgu Helgu, Jórunni, Hildi eða Mörtu. Hins vegar var ákveðnum „körlum í gráum jakkafötum“ hafnað í þessu prófkjöri svo trú þín á Sjálfstæðisflokkinn kann að verða einhver.
    Það má vel að vera, Bjarni, að þú skiljir allt sem viðkemur úthverfum og litlum skóm. Kjörnir fulltrúar í ráðhúsinu gera það hins vegar ekki fyrr þeim er bent á það. Eðlilega eiga þeir erftitt með að gera sér grein fyrir því hvernig púlsinn slær svo fjarri þeirra daglega umhverfi.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):