Borgarfulltrúinn glaðbeitti, sem varði öllum síðasta vetri við nám í borgarfræðum í Skotlandi, fer mikinn á bloggi sínu í dag um svifryks- og umferðarvandann í Reykjavík. Þar tíundar hann afrek sín og gerir lítið úr störfum R-listans eins og vænta mátti. Útúrsnúningarnir, rangfærslunar og sjálfshólið er alveg eftir bókinni og samkvæmt forskrift lærimeistara Hannesaræskunnar.
Borgarfulltrúinn sakar R-listann um að hafa með aðgerðum til að takmarka bílaumferð á árunum 1994-2006 tvöfaldað bílaumferð í höfuðborginni. Nær væri þó að segja að bílaumferðin hafi tvöfaldast ÞRÁTT FYRIR aðgerðir R-listans. Borgarfulltrúinn veit fullvel að stór hluti vandans var Sjálfstæðisflokkurinn í borginni sem stóð dyggan vörð um einkabílinn, barðist hatramlega á móti bílastæðagjöldum, talaði Strætó niður við hvert tækifæri og reyndi allt sem hann gat til að skapa andstöðu við aðgerðir þáverandi meirihluta. Ekki virðist hann telja að einn einasta bíl af bílaaukningunni megi rekja til nágrannasveitarfélaga borgarinnar, sem flest voru undir stjórn Sjálfstæðisflokksins – verndara einkabílsins og gjaldfrjálsra stæða. Borgarfulltrúinn sjálfumglaði dregur fjöður yfir eigin sök en gleymir um leið að nefna að núverandi minnihluti hefur stutt hann í ýmsum nauðsynlegum en óvinsælum málum. Til dæmis hækkun bílastæðagjalda sem borgarfulltrúinn hefur skjálfandi á beinunum látið embættismenn borgarinnar leggja fram tillögur um af ótta við óvinsældir. Hvílík djörfung!
Borgarfulltrúanum er tíðrætt um svifrykið sem allir vita að er mikill skaðvaldur. Hann tíundar þó engin afrek sín á því sviði og fyrir því er góð ástæða. Þau eru engin. Um 55% svifryks eru malbiksagnir vegna nagladekkja. Samfylkingin flutti strax í upphafi kjörtímabilsins tillögu um að láta rannsaka samfélagslegan kostnað af notkun þeirra með það í huga að þeir sem velja að vera á nöglum borgi raunkostnað vegna notkunar þeirra. Þar skyldi ekki bara horft til slits á götum, óþrifa og slysahættu heldur einnig heilsutjóns barna og fullorðinna. Ekkert var gert með þessa hugmynd fyrr en Samfylkingin komst í meirihluta. Þá var verkefnið sett af stað. Of stuttu síðar tók borgarfulltrúinn aftur við stjórn ráðsins og síðan þá hefur verkefnið frestast og frestast og frestast. Engar niðurstöður voru tiltækar haustið 2007, engar haustið 2008 og enn eru engar niðurstöður komnar haustið 2009. Frestunaráráttan virðist rótgróin.
Borgarfulltrúinn kemur aðeins inn á þá ánægjulegu þróun að fjölgað hefur í strætó eftir að nemakortin voru tekin upp. Af alkunnri smekkvísi lætur hann auðvitað hjá líða að tala um fjölmargar tillögur minnihlutans í þessu efni. Hann minnist einnig á nauðsyn þess að þétta byggð en lætur þess ógetið að rifja upp harða baráttu Sjálfstæðisflokksins fyrir „drauminum um Húsið á Sléttunni“ eða sjálfsögðum rétti hvers reykvíkings að fá úthlutað lóð fyrir sérbýli. Það er gott að geta gleymt hinu liðna.
Í lok bloggfærslunnar má sjá kunnuglega rangfærslu úr bókunum og ræðum borgarfulltrúans undanfarin misseri um að hjólastígar hafi 20 faldast að lengd frá 2006. Það verður þó að virða við borgarfulltrúann að hann hefur tekið inn leiðréttingu undirritaðs á því orðalagi og bætt inn orðinu „sérstökum“. Borgarfulltrúinn hefur hingað til látið þess ógetið að þarna á hann bara við sérstaklega byggða hjólastíga en undanskilur viljandi þau hundruð kílómetra sem R-listinn lagði af göngu- og hjólastígum um alla borg.
Borgarfulltrúinn hefur það sem af er kjörtímabilinu beitt sér mjög fyrir afar kostnaðarsamri lagningu sérstaks hjólastígs frá Ægisíðu upp Fossvogsdal. Þetta leit ekki illa út þegar árið var 2007 en síðan þá hefur sú spurning orðið æ áleitnari hvort ekki sé hægt að gera meira fyrir peninginn með því einmitt að fylgja fordæmi R-listans og búa til sérmerktar hjólaleiðir í því gatnakerfi sem þegar er til. Líklega finnst borgarfulltrúanum það þó ekki nógu spennandi í samanburði við að fá að klippa á borða á nýjum sérbyggðum hjólastíg.
Niðurlagið er kunnuglegt. Borgarfulltrúinn talar af eins mikilli hógværð og honum var gefin um verk sín sem hljóðláta byltingu. Sorrí, en hér hefur ekki orðið nokkur bylting og það sem borgarfulltrúinn hefur komið í verk hefur ævinlega verið kynnt með trumbuslætti. Það er reyndar merkilegt að borgarfulltrúinn þegir alveg um það eina sem hann getur virkilega þakkað flokki sínum í þróun umferðarmála. Hrunið.
Eftir 18 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins, aðför að því sem uppnefnt var „eftirlitsiðnaðurinn“, þensluhvetjandi stóriðjuframkvæmdir, einkavinavæðingu bankanna, afnám bindiskyldunar, 90% húsnæðislánin, illa tímasettar skattalækkanir og hagstjórn sem vann markvisst gegn þeirra eigin stefnu í peningamálum hrundi spilaborgin. Ein af afleiðingunum var sú að í fyrsta sinn í árafjöld hefur dregið úr bílaumferð í borginni. Borgarfulltrúinn knái hefði með fullum rétti getað eignað sér og sínum heiðurinn af því.
Dofri Hermannsson
Ummæli (22)
Loori // 15.10 2009 kl. 15:32
Borgarfræðingurinn glaðbeitti segirðu, er það ekki skárra en fýlupúkinn þú. Börn fyllast skelfingu er þau sjá vinstri fýluna leka niður þitt fúla andlit.
Kristín // 15.10 2009 kl. 15:38
Loori sannleikanum er hver sáreyðastur!
Loori // 15.10 2009 kl. 15:42
Kristín! hefurðu lesið bloggfærsluna hans Gísla Marteins?
Kristín // 15.10 2009 kl. 16:06
Já!
Ólinn // 15.10 2009 kl. 16:12
Já nú er hrunið Gísla Marteini að kenni…
þessi pistill er enn ein staðfestingin á að
enginn munur er á D(riti) eða S(kít)
Guðmundur 2. Gunnarsson // 15.10 2009 kl. 16:29
Mikið óskaplega ætlar nú nýliðunin í stjórnmálaflokkunum að misheppnast illilega.
Loori // 15.10 2009 kl. 16:29
…og lest þú það úr skrifum hans Gísla Marteins að
„Þar tíundar hann afrek sín og gerir lítið úr störfum R-listans eins og vænta mátti. Útúrsnúningarnir, rangfærslunar og sjálfshólið er alveg eftir bókinni og samkvæmt forskrift lærimeistara Hannesaræskunnar.“
…sorry ég get ekki lesið þetta úr skrifum hans Gísla Marteins! held að þetta verði til í sjúkum hugarfylgsnum hans Dofra og svo er það augljóst að hann þolir ekki frjálslynt, glaðlegt og eðlilegt fólk.
Dofri Hermannsson // 15.10 2009 kl. 16:44
Væri nokkuð óafsakanleg frekja að fara fram á að hin(n) glaðlega og málefnalaga Loori skrifi undir nafni?
Loori = shining.illumination@hotmail.com | 213.190.107.148
Loori // 15.10 2009 kl. 16:52
nei
Guðmundur 2. Gunnarsson // 15.10 2009 kl. 16:54
Dofri. Hverju veldur að þú telur þig vera þess umkominn að birta e-mail föng þeirra sem treysta þér fyir slíkum, og er það talið eðlilegt af ritsjóra Eyjunnar.is ?
Vænti þess að þú gefir upp reglur þær sem ykkur bloggurum ber að hafa í heiðri og smþykkið þegar síða er stofnuð, og ef þú veist ekki hverjar þær eru að þú kynnir þér þær hjá þeim sem eiga að gæta hagsmuna lesenda sem bloggara, og birtir hér.
Veit ekki betur en að hverjum er frjálst að skrifa á svarkerfi síðna undir dulnefni, og með endæmum hrokafull ef það hentar ekki síðuhöfundum, sem ég sting uppá með fullri virðingu að leggi niður skrif ef þeir treysta sér ekki til að virða þær reglur sem gilda þar um.
Dofri Hermannsson // 15.10 2009 kl. 17:01
Mér finnst sjálfsögð krafa að menn sem hafa uppi stór orð í kommentakerfi á annarra manna síðum geri það undir nafni.
Ef þeir hafa eitthvað bitastætt að segja sem þó krefst dulnefnis er þeim velkomið að senda mér tölvupóst – undir nafni – þar sem þeir útskýra það.
Kommentakerfi á ekki að vera griðarstaður fyrir fólk sem vill skjóta úr launsátri. Menn eiga standa á bak við sín orð en ekki skýla sér bak við dulnefni. Annars eru margir verri en Loori.
Gísli Baldvinsson // 15.10 2009 kl. 17:10
Góður pistill, Dofri.
Þetta er að stefna út úr skrifum nafna míns inn í athyglisverða umræðu. Sjálfur sendi ég viðkomandi tölvupóst ef ég td. eyði ummælum. Menn verða að gæta orða sinna, hér sem annars staðar.
Morten Lange // 15.10 2009 kl. 17:14
Gott að þessi mál séu til umfjöllunar, en leitt að sjá hvernig bæði Gísli Marteinn og Dofri láta póltitiskt karp yfirskyggja verkefni framtíðar.
Ég vil annars þakka ykkur báðum fyrir ykkar framlagi, í átt að heilbrigðara samgöngur. Við þurfum fleiri sem eru vakandi og þora að ganga á móti gömlum (bíla)straumum, eins og þið, Dofri og Gísli Marteinn, ekki færri.
Morten Lange // 15.10 2009 kl. 17:17
Ég tel annars einsýnt að búið sé að sýna fram á að utblásturinn úr bílum, ekki síst ílla stilltum dísilvéklum sé það sem er lang hættulgast með svifrykið, ekki malniksrykið sem tengist nöglum. Margbúinn að blogga um þetta, og tala við sérfræðinga hérlendis og erlendis. Engu að síður er rík ástæða til að leggja gjöld á nagladekkjum, og helst sem fyrst.
Guðmundur 2. Gunnarsson // 15.10 2009 kl. 17:27
Þú svarar engu með að birta e-mail fang viðkomandi nafnleysingja.
Sóðaskrif dæma sig sjálf, og sjálfsagt að einhverjum reglum er fylgt beggja megin í þeim efnum, og eðlilegast að ritsjórn sjái um að hreinsa til. Þið verðið að gera ykkur grein fyrir að enginn hefur neytt ykkur til að ónáða okkur lesendurna, og ef ekki má ná upp eðlilegum skoðanskiptum, þá er miðillinn ónýtur, og hvort að skotið er fast undir nafni eða ekki, á ekki að skipta máli ef menn fara eins að eftir sömu reglum.
Hef sjálfur verið ítrekað ritskoðaður af pólitískum síðum eins og Gunnari Axel, Andrési og ofl. pólitískum spunatrúðum og jafnvel texti klipptur til, en NB. aðeins af hörðum Samfylkingarmönnum, fyrir það eitt að vera ósammála þeim án nokkurs skítkasts, (lít á það sem hrós) er með slíkum eindæmum og Eyjunnar til háborinnar skammar, og ætti að vera til þess að henda síðuhöldurum ætti að henda út fyrir að falsa umræðuna og gera hana að helelúja samkomu Samfylkingarinnar.
Iðulega ef eftir er gengið bera þeir við að hugsanlega er skrifin ekki undir réttu nafni. Slíka bloggara á Eyjan að losa sig við, sem og þeim sem gefa ekki kost á rökræðum yfirleitt. Mörður, Röggi og Tryggvi Herberts eru til fyrirmyndar, og sér í lagi að taka ekki eftir skítkastinu sem á þeim dynur á stundum. Þeir sem slíkt stunda dæma sig sjálfir. Lesendur eiga að vera á ábyrgð ritsjórnar en ekki vera einhverjir svarendur uppá pólitísks punts valdir inn ef skoðanir falla vel í síðuhaldara. Full kommúnískt fyrir minn smekk.
Afsakaðu útúrdúrinn og bkv.
Morten Lange // 15.10 2009 kl. 17:50
I staðinn fyri að karpa um hver gerði mistök, skulum við horfa fram á veginn. Draga inn lærdóm frá öðrum löndum og aðlaga að íslenskum möguleikum. ( Nei ekki að íslenksum veruleika, því hann að miklu leiti sýndarveruleiki, líka þegar kemur að samgöngu í þéttbýli )
Eitt dæmi : Kíkið á World Streets, til dæmis greinar eins og þessum :
http://newmobilityagenda.blogspot.com/2009/10/car-free-daays-2-thursday-breakthrough.html
http://newmobilityagenda.blogspot.com/2009/10/portsmouth-britains-first-twenty-is.html
http://www.copenhagenize.com/2009/10/copenhagenizes-christmas-wish-list-2009.html
http://www.vtpi.org/tdm/index.php#incentives
( Haug af greinum… um hvernig maður getur ýtt undir heilbriðgðum samgöngum með hagrænum hvötum)
Ólafur // 15.10 2009 kl. 19:41
Þetta er hárrétt hjá Dofra. Hrunið er jámönnum Sjálfstæðisflokksins að kenna. Þeim sem leyfðu þessum mönnum að komast upp með hvað sem er og tala þeirra máli meðan þeir bæði þverbrutu lög reglur og stálu eignum þjóðarinar.
Svo er spurning um að þessir aumingjar í Samfylkingunni í Reykjavík láti Gísla Martein skila milljónunum sem hann þáði í laun frá okkur borgarbúum meðan hann var í námi. Helvítis fokking fokk.
Svo fer það mikið fyrir brjóstið á mönnum að talað sé nafnlaust? Ég minni nú á það að menn voru reknir miskunarlaust úr vinnu þegar Sjálfstæðislfoockur réði hér fyrir að segja hluti sem ekki voru vinsælir. Lagðar niður stofnanir. Fréttamönnum meinað að koma upp í þyrlur. Eins og þær væru einkaeign yfirstjórnar landhelgisgæslu.
Málefnin // 15.10 2009 kl. 20:29
Fín grein.
m // 16.10 2009 kl. 01:37
Þakka vel skrifaða grein, Dofri. En samt – ég mun kjósa Gísla Hannes án þess að blikna!
Ormurinn // 16.10 2009 kl. 11:08
Ég get bara tekið undir þessa grein Dofra.
Ég las bloggið hans Gísla Marteins og fannst niðurstaða hans um að mengunina væri að rekja til R-listans frekar lásí.
Annars leiðst mér mikið þegar flokksmeðlimir eru að endalaust að bauna hver á annan hvort sem það er í borgar eða landsbyggðarpólitík.
Stjórnmálamenn gleyma því nefnilega alltof oft að þeir eru ekki í vinnu hjá flokkunum heldur hjá almenningi. Almenningur hefur engan áhuga á því að vita hvað er hverjum að þakka/kenna heldur skiptir máli að kjörnir fulltrúar vinni að því að auka hag almennings ekki að því að vinna næstu kosningar.
Dofri Hermannsson // 16.10 2009 kl. 13:46
Takk fyrir mörg góð komment. Ég tek undir með Orminum og öðrum sem réttilega segja að sennur af þessu tagi á milli stjórnmálamanna og -flokka eru ekki sérlega skemmtilegar.
Lýðræði er vandmeðfarið. Það krefst þess að kjósendur fylgist vel með öllum málum og hafi gott minni. Raunin er sú að kjósendur hafa lítinn tíma til að kynna sér allt sem gengur á og auðvelt er að hafa áhrif á minnið með því að endurskrifa söguna.
Þegar sömu rangfærslunar eru hafðar uppi aftur og aftur líkt og borgarfulltrúinn Gísli Marteinn Gíslason hefur stundað er ekki hægt að láta þeim ósvarað. Ég vona að borgarfulltrúinn sjái að sér svo ekki verði þörf á fleiri svona pistlum.
Gummi H. // 16.10 2009 kl. 18:49
Heyrðu Dofri,
getur þú svarað einu hérna, þar sem þú talar nú máli flokks sem bestur er að gjamma og verstur er að framkvæma, ég væri núna til í að fá aftur pistil frá þér um málefni sem þú skrifaðir svo ákaflega stoltur um (http://dofri.blog.is/blog/dofri/entry/151851/), störf án staðsetningar, nú vinnur samfylkingin hörðum höndum að því færa störf í tugavís frá landsbyggðinni yfir til reykjavíkur, enn eitt helvítis kosningaloforð ykkar skítlega flokks sem þið svíkið við okkur kjósendurnar!!!
P.s Það er mér svo ráðgáta hversu stórt þið lítið alltaf á ykkur sbr þessa pistla sem þið skrifið í hverri viku og stærið ykkur af, en eruð svo alltaf á endanum eins og Össur, kjaftmikil og loforðagjörn á blogginu en svo úti að skíta þegar kemur að því að framkvæma loforðin!!!.
kveðja
Gummi H.
Rita ummæli