Dofri Hermannsson

Virkjum hausinn – Verndum náttúruna

Skjöldur Borgvík

13.10 2009 | 12:50 | 1 ummæli

Það er orðin regla frekar en undantekning að borgarstjórnarmeirihlutinn beiti embættismönnum fyrir sig í erfiðum málum.

Nýjasta dæmið er fréttatilkynning frá forstjóra Orkuveitunnar þar sem hann skammar Umhverfisráðherra fyrir að segja nokkurn veginn nákvæmlega það sama í helgarblaði Fréttablaðsins og forstjórinn sjálfur hafði sagt í sama blaði daginn áður. Öllum sem þekkja til stjórnmála er ljóst að þarna er verið að nota forstjórann sem skjöld í pólitískum skylmingum. Láta hann segja hluti sem meirihlutinn treystir sér ekki til að standa á bak við sjálfur. Ekki sérlega stórmannlegt.

Í ráðum borgarinnar höfum við sem sitjum í minnihluta oft orið vitni að því hvernig meirihlutinn lætur embættismenn taka ábyrgð á óvinsælum aðgerðum. Þetta hefur jafnvel gengið svo langt að í ráðum borgarinnar hafa embættismenn verið látnir bera upp tillögur um aðgerðir, nýjar álögur eða sparnað sem líklegt má telja að mælist illa fyrir.

Skjöldur Borgvík er látinn fronta erfiðu málin. Human shield.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (1)

  •   Jón á skeri // 13.10 2009 kl. 17:16

    Þú ert nú meiri bullukollurinn.
    Mega ekki forstjórar ríkisfyrirtækja bera hönd fyrir höfuð síns reksturs? Mega þeir ekki tjá sig nema fá leyfi hjá kjörnum yfirmönnum sínum?

    Þetta er nú í meira lagi vitlaust.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):