Norðurál seilist býsna langt við að sýna fram á að næg orka sé til fyrir álver í Helguvík. Þar er höggvið að Þjórsárverum með því að setja Norðlingaöldu á listann en þar eru líka allar virkjanir í Þjórsá og Bitruvirkjun sem Skipulagsstofnun lagðist alfarið gegn vegna mikilla neikvæðra áhrifa á náttúru og útivist.
Þetta er svo sem eftir væntingum. Hitt er verra að Norðurál vitnar í Rammaáætlun um orkugetu Krýsuvíkursvæðisins og telur þar leynast 400 MW. Þetta er alrangt eins og Norðurál hlýtur að vita. Eins og sjá má hér metur Orkustofnun getu þessa svæðis að hámarki 180 MW. Svæðið hefur lítið verið rannsakað utan að tvær holur hafa verið boraðar í Trölladyngju og báðar valdið miklum vonbrigðum. Margt bendir til þess að Krýsuvíkursvæðið sé alls ekki nægilega heitt til að virkja það með þeim hætti sem stefnt var að.
Aðra mikilvæga forsendu ákveður Norðurál að setja til hliðar. Stjórn Landsvirkjunar hefur ákveðið að ekki verði selt rafmagn til nýrra álvera á SV horni landsins. Þetta var m.a. gert til að draga úr áhættu fyrirtækisins en eins og sannast hefur er vont að vera með öll eggin í sömu körfunni. Þegar búið er að týna vatnsaflskostinar úr upptalningu Norðuráls fer nú að fækka Megawöttunum.
Eftir stendur:
- Hellisheiði 90 MW – rúmlega helmingur ætlaður til Grundartanga og því tvítalinn
- Hverahlíð 90 MW – fjármagn fæst ekki en verið að athuga möguleika á einkafjármögnun
- Bitra 135 MW – Skipulagsstofnun og almenningur á móti, Orkustofnun efast um orkumagn
- Reykjanes 100 MW
- Eldvörp 50 MW – á eftir að fara í umhverfismat
- Gráuhnjúkar 45 MW – á eftir að fara í umhverfismat
- Krýsuvík 180 MW – ég fer hér með fram á leiðréttingu af hálfu Norðuráls
Ef fjármagn fæst í Hverahlíðarvirkjun en Bitru er sleppt, hætt er að tvítelja 55 MW úr Hellisheiðarvirkjun gætu 280 MW fengist út úr því sem farið hefur í gegnum mat á umhverfisáhrifum. EF leyfi fæst til að virkja á öðrum svæðum gætu hugsanlega fengist þar til viðbótar 275 MW en mikinn fyrirvara verður að setja við að Krýsuvík skili þeirri orku sem ætlast er til.
Þetta dugar skammt í álver sem þarf 625 MW og skilur minna en ekkert eftir fyrir annan iðnað. Hér er verið að reyna að tala MW upp úr jörðinni. Það er ákaflega 2007.
Dofri Hermannsson
Ummæli (18)
Kópavogsbúi // 13.10 2009 kl. 20:09
Takk fyrir þetta Dofri. Þú staðfestir hér með það sem Norðurál sagði.
Þú telur upp 690 MW hjá OR og HS sem er meira en Norðurál segist þurfa í Helguvík er það ekki?
Þá eru alla Þjórsárvirkjanirnar eftir í „eitthvað annað“. Eru það ekki 400 MW?
Nú verður þú bara að koma með öll þessi vænlegu verkefni sem þú talar alltaf um.
Helst fljótlega !
Magnús Björgvinsson // 13.10 2009 kl. 20:23
Kópavogsbúi! Ég skammast mín fyrir að búa í bæjarfélagi þar sem menn eru svona skammsýnir.
Dofri er að tala um alla virkjanlega orku á Reykjanesi. Og hún rétt dugar kannski fyrir Helguvík en hvaðan á þá frekari orka að koma næstu 40 árin í uppbyggingu. Það verður öll orkan bundin í þessum álverum. Og þú gleymir stækkun í Straumsvík, gagnaveri í Keflavík og fleira. (Bendi mönnum á að skoða hvernig SV lína á að liggja. Það verður sjónmengun af henni um allt Reykjanes nærri því. )
Þannig að það eru líkur á að engin frekari orka verði til hér á suðurhluta landsins til frekari nota eins og t.d. fyrir garðyrkubændur næsu 40 ár og líftími Álvera er lengri þannig að við erum kannski að tala um 75 ár.
Tryggvi L. Skjaldarson // 13.10 2009 kl. 20:53
Í dag þegar ég er spurður um pólitík segist ég vera krati því að stuðningur við Samfylkinguna vefst vægast sagt fyrir mér. þökk sé m.a. þér Dofri.
Hulda // 13.10 2009 kl. 20:59
Þakka þér Dofri fyrir að fylgja þessu máli svona vel eftir. Ekki veitir víst af.
Dofri Hermannsson // 13.10 2009 kl. 21:06
Far þú í friði Tryggvi minn ef ný sýn í orkumálum er orðin þér svona þungbær. Ég veit að þú munt finna skjól hjá Sjöllum og Framsókn og þar áttu kannski bara betur heima.
Kópavogsbúi, varla hefur þú verið í stærðfræði hjá honum Þórði sem kenndi í Víghól því þá kynnirðu alla vega að leggja saman. EF ALLT GENGI UPP hjá OR og HS á Reykjanesskaganum og á því erum mikil tormerki væri hægt að skrapa saman 555 MW.
Hrannar // 13.10 2009 kl. 23:22
Ég held þú ættir að fara varlega í að skamma vesalings Kópavogunginn fyrir stærðfræðina.
Annaðhvort eru innsláttarvillur í forsendunum sem þú setur upp eða þú ert sjálfur úti á túni í samlagningunni eða frádrættinum.
Í mínum bókum eru 90+90+135+100+50+45+180=690
-55 í Grundartanga =635
Dofri Hermannsson // 13.10 2009 kl. 23:33
Takk fyrir þessa ábendingu Hrannar. Þú gleymdir reyndar að taka Bitru út eins og ég gaf mér í forsendunum. Ég aftur á móti gleymdi að taka út 55 MW sem fara á Grundartanga.
Niðurstaðan er því enn snautlegri – aðeins 500 MW og þá er gert ráð fyrir að allt gangi orkufyrirtækjunum í haginn á öllum svæðum, rannsóknar og virkjunarleyfi fáist og að þau gefi jafn mikið af sér og Orkustofnun spáir.
Sigurjón Vigfússon // 14.10 2009 kl. 00:33
Nú kemur í ljós að fyrirhugaðar orkuframkvæmdir á suðvesturlandi geta gefið allt að 1.500 MW af orku, sem er nærri þrefalt meira en þarf fyrir álver í Helguvík.
Guðbjörn Guðbjörnsson // 14.10 2009 kl. 09:21
Ljóst er að forsendur geta breyst í framtíðinni varðandi friðun landsvæða. Að auki geta forsendur breyst varðandi orkunýtingu svæða, m.a. vegna tækniframfara. Spá ykkar félaga er allt of svartsýn og líklega er spá Norðursáls aðeins og bjartsýn. Ég tek því gamla framsóknarmanninn á þetta, þeir nýju eru auðsjáanlega af allt annarri gerð!
Nýi Dexter // 14.10 2009 kl. 10:17
Frakkar framleiða nær allt sitt rafmagn með nýrri kynslóð umhverfisvænna kjarnorkuvera. Hvað skyldi 1 svoleiðis kosta?
bitvargur // 14.10 2009 kl. 10:57
Það er ekkert að koma í ljós núna sem er nýtt varðandi virkjanakosti svo menn geta hætt að fagna strax.
Ef taldir eru allir kostir sem eru inni í rammaáætlun fyrir Suðurland og Skaftafellssýslu þá er staðan svona
Vatnsafl:
Búðarháls 80 MW
Búðartunga 50MW
Hvammsvirkjun 82 MW
Holtavirkjun 53 MW
Urriðafoss 130 MW
Markarfljót 106 MW
Selfoss 30 MW
Hestvatn 35 MW
Vörðufell 52 MW
Haukhollt 60 MW
Hólmsárvirkjun 72 MW
Hnúta 15 MW
Skaftárvirkjun 125 MW
Djúpárvirkjun 75 MW
Samtals 965 MW
Jarðhiti:
Reykjanes 100 MW
Eldvörp 50 MW
Sandfell 30 MW
Trölladyngja 50 MW
Krýsuvík 50 MW
Hellisheiði 90 MW
Hverahlíð 90 MW
Þverárdalur 120 MW
Bitruvirkjun 90 MW
Grænidalur 120 MW
Ölfusdalur 10 MW
Samtals 710 MW
Í heild eru þetta 1675 MW
Einungis 6 af þessum kostum hafa í raun verið skoðaðir, eða umhverfismat unnið.
Verði ráðist í virkjun þeirra allra þ.m.t. Bitru þá gerir það samtals 435 MW.
Yfirlýsing Norðuráls er metnaðarfull en algjörlega óraunhæf eins og staðan er í dag.
Ef þetta eru aðferðirnar sem þeir nota við að skipuleggja uppbyggingu álvers og afla fjármagns þá er stór bomba í uppsiglingu. Búið er að lofa af þessum 435 MW, stækkun í Straumsvík, gagnaveri og kísilverksmiðju á Reykjanesi ofl ofl.
IceViking // 14.10 2009 kl. 11:25
Blessaður Dofri . Tek það fram að ég hef aldrei komið á bloggið þitt áður . En áður en ég fer að lesa um að því er virðist tortryggni þína í garð virkjana og virkjanaframkvæmda þá finnst mér eftirfarandi :
1) Að maður eins og þú sem hefur sterkar skoðanir í orku- og virkjanamálum hafir e.k. manifesto þitt í orkumálum á áberandi stað fyrir lesendur síðurnar.
2) Ef þú ert á móti virkjunum (hreinni orku) vinsamlegast færðu rök fyrir þínu máli. Ef þú ert hins vegar ekki á móti segðu þá hvað þú vilt virkja og hvað ekki.
3) Þegar ég þekki þínar skoðanir á því orkumagni sem þú vilt virkja á Íslandi. Segðu mér þá frá verðhugmyndum þínum á hvert megawatt. Frábært væri að fá sýnidæmi um verðmuninn milli t.d. orkusölu til gagnavers eða einhvers annars og til áliðnaðarins. (Ef ekki er hægt að fá uppgefnar tölur þá verður að styðjast við bestu nálgun)
4) Útskýrðu og færðu rök fyrir þeim sölumöguleikum sem Íslendingar hafa fyrir hin hreinu orku. Og taktu gjarnan tillit til þess að hingað til hefur aðeins tekist að selja verulegt magn til áliðnaðarins.
5) Taktu líka með í reikninginn að það að liggja með segjum 2000 megawött af hreinni orku í landinu ónýttan ár eftir ár. Gefur okkur ekkert og ætta þ.a.l. að valda fórnarkostnaði þ.e. ef einkaaðilar telja það borga sig að virkja orkuna. Fórnarkostnað ofan í allt atvinnuleysið í dag.
6) Skýrt yfirlit um þessa þætti ætti út frá þínum sjónarhól gæfi manni eins og mér t.d. hugmynd um hvort þú sért öfgafullur eða ekki í þessum málum.
7) Mér finnst furðulegt eins og Nóbelsverðlaunahafinn benti á að umhverfisvernd snúist um að vera á móti hreinni orku, sem ekki einu sinni skemmir landið. Þó hún geti breytt landinu.
Jóhannes Laxdal // 14.10 2009 kl. 11:26
Takk fyrir þetta Dofri. Það er hlutverk stjórnmálamanna að móta framtíðarsýn og þú ert óhræddur að ganga gegn flokkseigendafélagi Samfylkingarinnar. Fyrir það áttu hrós skilið.
Það er alltof mikið um jarmandi kindur í ykkar röðum
þg // 14.10 2009 kl. 12:37
Síðasta þegar Landsvirkjunnar og Norðurál „sömdu“ um Norðlingaöldu þa´var plottið þetta:
Norðurál vill stækka verksmiðju sína og hefja framkvæmdir en fyrst verður Landsvirkjun að tryggja orku — úr Þjórsárverum.
Nú er plottið þetta: Fyrst byggjum við álverið svo reddið þið orkunni,.
Tryggvi L. Skjaldarson // 14.10 2009 kl. 22:09
Fordómar eru bara fordómar breytir engu þótt þeir séu kallðir ný sýn.
Sparnaðurin á CO2 er 12.5 milljón tonn á ári ef 1 milljón tonn af áli eru framleidd hérlendis í stað lands sem nota kolakynt raforkuver. Sparnaðurinn er bara u.þ.b. þrisvar sinnum útblásturinn okkar í dag.
Grænna gerist það varla.
Örvar // 15.10 2009 kl. 16:56
Dofri þú mættir alveg svara Ice Viking. Annars þegar þú ert að benda mönnum á að fara í aðra flokka þá kemur þá úr hörðustu átt. Þú átt hvergi annarsstaðar heima en hjá VG, samfylkingarmenn á Suðurnesjum eru amk ekki á sömu línu og þú. Sá þig í Silfrinu og mér finnst þú neikvæður og afar kjánalegur. Atvinnuleysið hér fyrir sunnan er mikið, framkvæmdir við Helguvík eru langt komnar og orkan er til. Suðurnesjamenn koma þessu í gegn. Það á að virkja allar þær sprænur sem til þarf, aðeins mikilvægara að fólk hafi atvinnu. Svandís Svavarsdóttir er álíka hæf í starfi sínu og pabbi hennar er góður samningamaður. Hvílíkir bjánar og vonum bara að skynsemin ráði og vinstri nöldurseggir komi ekki í veg fyrir atvinnumöguleika og hagsæld suðurnesja.
Dofri Hermannsson // 15.10 2009 kl. 17:06
Örvar, ég er með ótal skrifum búinn að svara flestu sem Ice Viking spyr um. Þér til upplýsingar þá hafa allar skoðanakannanir sem gerðar hafa verið um afstöðu til frekari stóriðju, umdeildra virkjana o.s.frv. leitt í ljós að 70-80% þeirra sem segjast myndu kjósa Samfylkinguna eru verndunarsinnar og vilja annars konar stóriðnað en álbræðslur. Það er svipað hlutfall og það Samfylkingarfólk sem vill aðild að ESB. Ekki hefur Samfylkingin hingað til þótt á móti því!
Jón Steinar // 24.10 2009 kl. 20:26
Hér er eitthvað sem er rosalega 2009: http://www.youtube.com/watch?v=jIDgPkmZO_c&feature=player_embedded
Rita ummæli