Álvíkingar í Helguvík hafa tekið upp baráttuaðferð Húsvíkinga og láta nú fyrirtæki í bæjarfélaginu kosta auglýsingar á undan fréttum Ríkisútvarpsins þar sem lamið er á Umhverfisráðherra vegna ákvörðunar um SV línu. Þetta er rætin og illa dulin hagsmunapólitík sem keyrð er áfram af stjórnmálamönnum, verktökum, verkfræðistofum, verkalýðshreyfingum og samtökum úr atvinnulífinu sem öll taka skammtímahagsmuni sína fram yfir þjóðarhag.
Í Silfrinu í gær benti ég á hvað margt er líkt með aðdraganda bankahrunsins og þess sem nú er að gerast í orku- og stóriðjumálum. Orkugeta jarðhitasvæða er blásin upp eins og óefnislegar eignir útrásarfyrirtækjanna. Þar sem Orkustofnu segir að hámarki fáist 50 MW segja framkvæmdaaðilar hiklaust 100 MW. Þegar spurt er hvar á að taka orkuna til að knýja Helguvíkurálverið þegja menn þunnu hljóði. Vita sem er að dæmið gengur ekki upp – jafnvel ekki þótt farið verði í öll okkar helgustu vé.
Þetta vita allir ef þeir hugsa og kunna einfalda samlagningu. Og nú eru margir farnir að sjá að kapallinn gengur ekki upp. Orkuveitan fær enn ekki afgreitt pólitískt lán úr Evrópska fjárfestingarbankanum (ekki síst af því D og B hamast gegn lausn á Icesavemálinu) en jafnvel þótt lánið fengist eru engar líkur á að fá peninga á sömu kjörum í Hverahlíðarvirkjun en það er ein af grundvallarforsendum Helguvíkurálvers.
Engra frétta er að vænta af fjármögnun álversins fyrr en á nýju ári en nú í nóvember þarf OR að gefa lokasvar um kaup á túrbínum sem nota átti í Hverahlíðarvirkjun/Gráuhnjúka. Það væri algert glapræði af OR að ráðast í kaup á rándýrum túrbínum sem enginn veit hvort nýtast á komandi árum. Mín spá er því sú að OR afpanti þær túrbínur nú í nóvember og þar með detti botninn úr Helguvíkurálverinu.
Ef Samtök iðnaðarins og atvinnulífsins, ASÍ, orkufyrirtækin og sveitarstjórnir sem málið varðar vildu hefja sig upp yfir þröngsýna hagsmunapólitík myndu þau boða til málþings um stöðuna í íslenskum orkuiðnaði og sameinast með alþingi og ríkisstjórn um nýja stefnu í orku- og stóriðjumálum.
En líklega er til of mikils mælst að fara fram á þetta. Áfram skal haldið að spila upp á Svarta Pétur.
Dofri Hermannsson
Ummæli (13)
Ólinn // 12.10 2009 kl. 12:32
D&B og við „vinir“ ykkar í VG…
Pétur Henry // 12.10 2009 kl. 12:53
Þú stóðst þig vel í Silfrinu. Auðvitað eru allir að ota sínum tota og hugsa um eigin hagsmuni, það á varla eftir að breyttast og er mannlegt eðli, Ísland hefur verið sjálftökuþjóðfélag, menn kunna bara það. Það er hinsvegar hlutverk ríkisins að hafa hag heildarinnar að leiðarljósi. Það hafa fyrri ríkisstjórnir varla gert, allaveganna ekki vel. En nú er vonandi komið annað hljóð í strokinn og augu almennings vonandi opnari og minnið kannski skárra?!
Loori // 12.10 2009 kl. 13:09
…álvíkingar …hálfverið …. oh Dofri, þú ert svo hnittinn og snjall.
GSS // 12.10 2009 kl. 13:31
Það er virðingarvert og raunar óvenjulegt að heyra sjálfstæða rödd innan Samfylkingar sem gengur hiklaust gegn sjónarmiðum þingliðs flokksins.
Á þingi stóð Samfylkingin einhuga að uppbyggingu álvers í Helguvík og fylgdi því kappsamlega eftir að ryðja úr vegi öllum hindrunum.
Ótvíræður og öflugur stuðningur Össurar við Þingeyinga í sambandi við álver á Bakka er öllum í fersku minni.
Þingmenn Samfylkingar í viðkomandi kjördæmum styðja eindregið álvershugmyndirnar með þeim rökum að það sé lífsnauðsynlegt að styrkja og efla byggðir landsins.
Það fer ekki leynt að Dofri Hermannsson er háttskrifaður innan borgarstjórnarflokks Samfylkingar, axlar þar mikla ábyrgð og talsmaður á mörgum merkilegum sviðum.
En þrátt fyrir virðulegar nafnbætur virðast sjónarmið hans ekki ná inn í þingflokk Samfylkingar.
En dropinn holar steininn og sjálfstæð skoðun á þessum vettvangi er gleðiefni. Og ekki má gleyma því að þó að rödd hrópandans í eyðimörkinni skili sjaldnast árangri þá eru til dæmi um það gagnstæða.
G.ERLA // 12.10 2009 kl. 13:44
Flott grein hjá þér félagi – og ekki varstu síðri í Sifrinu.
Við Samfylkingarfólk sem teljum ekki vænlegt að pissa í skóinn sinn – eins og álversframkvæmdir eru – þurfum að láta heyra meira í okkur.
Flokkurinn verður að halda á lofti þeim gildum sem við í Kvennalistanum höfðum í öndvegi; Við megum skila landinu til barnana okkar í verra ásikomulag en við tókum við því.
G.ERLA // 12.10 2009 kl. 13:47
nú vantaði inn hjá mér – ekki – í síðust settninguna
Jóhannes Laxdal // 12.10 2009 kl. 14:27
Gott að einhverjir í Samfylkingunni séu farnir að styðja VG í hinni grænu og umhverfisvænu orkustefnu. Ekki veitir af. En mér finnst vanta að benda á leiðir til að styrkja atvinnustig á Suðurnesjum. Ég bendi á flutning innanlandsflugs til Keflavíkur, gæti skapað einhver hundruð starfa.
Og eins er brýnt að auka krókaveiðar með því skilyrði að vinnslan fari fram í heimabæ.
þg // 12.10 2009 kl. 14:30
Árna Sigfússonar heilkennið er drifið áfram af frekjuhunda lógík — þeirri sömu og Húsvíkingar hafa notað. Sveitastjórinn segir álver skal rísa á Bakka.´Í málflutningi þeirra er sífellt tönglast á hugmyndinni við gegn þeim. „Við suðurnesjamenn…“
Þessari aðferðarfræði var óspart notuð fyrir austan. Ef einhver heimamaður var á móti Kárahnjúkavirkun þá var hann óvinur austurlands.
Er hægt að gera veruleikann svo svart-hvítan að maður fer á endanum að trúa því að allir suðurnesjamenn vilji álver ? — og að það komi engum öðrum við. Að þetta sé orkan þeirra.
HG // 12.10 2009 kl. 14:50
Hvar er ALLT hæfileikaríka fólkið hans
Árna Sigfússonar núna ?
Hefur Árni ekkert B- plan handa þessu fólki að gera ?
Góðir hlutir gerast hægt enn ekki með aðferðum
Árna Sigfússonar.
þú varst góður í Silfrinu !!!
Endilega fáðu að koma aftur í þáttinn fljótt það þarf að hamra á þessu þangað til að hæfileikaríka fólkið fer að skilja þetta.
Jón. Ekki séra Jón. // 12.10 2009 kl. 16:26
Það eru nú ansi margir sem auglýsa. Held bara næstum að það sé góður þverskurður þjóðarinnar. Alla vega af þeim sem eru að vinna en ekki að dunda sér við skýjaborgir eins og sumir.
Hvað þarf núna ef ekki eru skammtímalausnir! Við erum í skammtímavanda.
Það þýðir ekkert að segja; Við gerum bara eitthvað á morgun, eða hinn… Þá fer illa fyrir börnunum..
Þorgrímur Gestsson // 12.10 2009 kl. 16:53
Og hvað þegar þessi „skammi tími“ verður liðinn? Það er nú dálítið skammur tími þangað til. Hvað þá? Fleiri skammtímalausnir skammsýnna manna áskamamtsímavanda?
Þorgrímur Gestsson // 12.10 2009 kl. 16:54
Afsakið. Þetta var ætlað Jóni, ekki séra Jóni.
Nýi Dexter // 12.10 2009 kl. 20:29
Auka fiskveiðar og málið er dautt.
Rita ummæli