Dofri Hermannsson

Virkjum hausinn – Verndum náttúruna

Færslur fyrir: ágúst 2009

Brunaútsala OR

31.8 2009 | 13 athugasemdir

Nú er meirihlutinn í borgarstjórn búinn að knýja í gegn sölu á hlut OR í HS orku til hins Kanadíska félags Magma Energy. Aumingjalegri díll hefur ekki sést lengi. 30% út og afganginn eftir 7 ár, lánað á 1,5% vöxtum með veði í engu nema bréfunum sjálfum. Verðið miðað við dollara þannig að ef íslenska krónan verður búin að rétta úr kútnum um t.d. 50% eftir 7 ár þá fáum við 50% minna.

Meirihlutinn í borgarstjórn segir að við neyðumst til að selja núna því Samkeppnisstofnun hafi bannað OR að eiga meira en 10% í HS orku. Þetta er rangt á marga vegu.

  • Í fyrsta lagi eru samkeppnislögin ekki hafin yfir gagnrýni og ljóst að á margan hátt eiga þau engan vegin við um sölu á rafmagni til stórnotenda
  • Sækja hefði mátt um framlengdan frest þar til betur árar og umræða hefur farið fram um eignarhald á auðlindum landsins og nýtingu þeirra
  • Að minnsta kosti hefði mátt láta nægja að selja eignarhlut OR umfram 10% og draga þannig úr skaðanum.

Nú þegar búið er gefa þetta fordæmi er vandséð hvernig íslensk orkufyrirtæki ætla að fá lán til framkvæmda í framtíðinni. Af hverju ætti einhver að lána slíku fyrirtæki þegar er hægt að kaupa það fyrir slikk? Hvað mun meirihlutinn selja næst? 49% í Orkuveitunni? Af hverju ekki? Hefur það ekki verið blautur draumur Hannesaræskunnar mörg undanfarin ár?

Sigrún Elsa Smáradóttir hefur fyrir hönd Samfylkingarinnar barist einarðlega á móti þessum fráleita gjörningi í stjórn OR. Hér er bókun hennar um málið:

Fulltrúi Samfylkingar greiðir atkvæði gegn tillögunni. Forkastanlegt er að stjórnarmönnum sé aðeins gefin klukkustund til að kynna sér innihald samningsins og þá fjölmörgu fyrirvara sem þar er að finna. Tilboðið sem fyrir liggur er óhagstætt fyrir OR og áhættan sem því fylgir allt of mikil. 70% tilboðsins er greitt með skuldabréfi, sem greiðist upp með einni greiðslu eftir sjö ár. Þá er það mikið áhyggjuefni að móðurfélagsábyrgð Magma er ekki á skuldabréfinu heldur einungis veð í bréfum í HS- orku.

Samkvæmt umsögn Fjármálastjóra Reykjavíkurborgar um útreikning á núvirðingu sem lögð var fram íborgarráði 26. ágúst sl. samsvarar tilboðið sem fyrir liggur genginu 4,93 sé miðað við 10% ávöxtunarkröfu. Í þeim útreikningum hefur verið tekið tillit til væntrar álverðshækkunar en skuldabréfið er tengt álverði að hluta. Sé ekki gengið útfrá hækkun álverðs samsvarar tilboðið enn lægra gengi eða 4,4 mv. 10% ávöxtunarkröfu.

Miðað við þessar forsendur tapar því OR 5-6 milljörðum á viðskiptunum.

Eðlilegra hefði verið að sækja um lengri frest til samkeppni yfirvalda um fullnustu úrskurðar um hámarkseignarhluta OR í HS, til að freista þess að tryggja OR ásættanlegt endurgjald fyrir hlutinn.

Fulltrúi Samfylkingar telur að í ljósi efnahagsástands á Íslandi, mikillar óvissu og varkárni fjárfesta þegar kemur að fjárfestingum hérlendis þá væri slíkur frestur auðsóttur. Enda getur varla verið markmið samkeppnisyfirvalda að vega að almannahagsmunum og knýja opinber fyrirtæki til að selja eigur sínar á brunaútsölu.

Flokkar: Óflokkað

Húrra Haðarstígur

25.8 2009 | Engar athugasemdir

Frumkvæði íbúa við Haðarstíg er loftsvert. Þeir hafa gefist upp á að bíða eftir því að borgaryfirvöld hlusti á óskir þeirra um að búa til öruggara og leikvænna umhverfi fyrir börnin í götunni. Eru búin að tyrfa miðju götunnar svo hún lítur út eins og gróin tröð í sveit í upphafi síðustu aldar og lagfæra leiksvæði barnanna.

Það er hins vegar ótækt að ítrekuðum erindum íbúa skuli ekki vera svarað eða að þeir fái ekki fund með borgaryfirvöldum. Stjórnendur borgarinnar ættu að fagna framtakssömum íbúum sem vilja auðga og bæta umhverfi sitt en ekki loka sig af frá þeim.

Flokkar: Óflokkað

Ekki-frétt á RÚV

23.8 2009 | 8 athugasemdir

Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gær var umfjöllun um árlegt Reykjavíkurmaraþon. Talað var við sigurvegarann í karlaflokki, fyrsta íslenska karlinn sem varð í 4. sæti og ungan körfuboltastrák sem náði ágætum árangri. Þess var getið hvaða karl og kona komu fyrst í mark í hálfu maraþoni og 10 km hlaupi en einhverra vegna láðist fréttastofu allra landsmanna að greina frá því hvaða kona vann í heilu maraþoni. Það var miður því þar var augljóslega merk frétt. Fréttastofu mun hafa verið bent á þessa yfirsjón en eftir fréttir í kvöld er ljóst að sú ágæta stofnun ætlar ekki að gera bragarbót á umfjöllun sinni.

Af því undirritaður hefur annað fréttamat en RÚV í málinu verður nú birt á þessum litla fjölmiðli það sem vantaði í frétt RÚV: 

Í flokki kvenna sigraði hins vegar íslensk kona, Veronika Sigríður Bjarnadóttir frá Skokkhópi Fjölnis á tímanum 3.08.13. Tími Veroniku í hlaupinu, sem er hennar fyrsta maraþonhlaup, er jafnframt besti tími ársins í kvennaflokki á Íslandi, 5. besti tími íslenskrar konu í maraþoni frá upphafi og 3. besti tími íslenskrar konu í sögu Reykjavíkurmaraþons en af því í brautinni eru drjúgar brekkur þykir hún ekki árennileg til að metasláttar. Að þessu sinni var Reykjavíkurmaraþon jafnframt íslandsmeistaramót í greininni og Veronika því íslandsmeistari í maraþoni kvenna 2009.

Síðuskrifari óskar Veroniku til hamingju með þennan frábæra árangur og Skokkhópi Fjölnis til lukku með að eiga íslandsmeistara í heilu maraþoni og tvær fyrstu konur í flokki kvenna 50-59 ára og 60-69 ára í hálfu maraþoni.

Flokkar: Óflokkað

Árið 1879

19.8 2009 | 4 athugasemdir

- fæddist Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður í Hulduárhvammi í Nýja Íslandi í Kanada
- var samþykkt að styðja Torfa Bjarnason við stofnun Bændaskóla í Ólafsdal
- samþykkti 3. löggjafaþing Íslendinga að ráðast í byggingu alþingishússins
- dó Jón Sigurðsson, sómi Íslands, sverð þess og skjöldur
- var fyrsta hrútasýningin á Íslandi haldin í Eyjafirði

- fann Edison upp ljósaperuna
- fæddist Joseph Dzhugashvili (síðar Stalín) í Georgíu
- var Brúðheimilið eftir Henrik Ibsen frumsýnt í Kaupmannahöfn
- voru Slóvanskir dansar Dvorák frumfluttir
- var mjólk fyrst seld í glerflösku

130 árum síðar ákveður sveitastjórn suður með sjó að leigja einkafyrirtæki orkuauðlindir samfélagsins til næstu 130 ára.

Flokkar: Óflokkað

Algerlega galið!

18.8 2009 | 9 athugasemdir

Það er algerlega galið að sveitastjórn sem er kosin til 4 ára skuli geta framselt nýtingarrétt á auðlindum samfélagsins til næstu 130 ára.

Gjörningurinn felur t.d. í sér að búið er að semja um verð á auðlind sem ómögulegt er að verðmeta svo langt fram í tímann og svipta komandi kynslóðir réttinum til að hafa áhrif á það í hvernig atvinnustarfsemi orkan er nýtt.

Árið 1880 var fyrsti bændaskóli á Íslandi stofnaður. Byltingarkennd nýjung, ný tegund af ljá jók afköst við slátt um tugi prósenta. Ný tækni við jarðrækt olli straumhvörfum í landbúnaði á Íslandi – landi sem fólk flúði í þúsundavís vegna harðbýlis.

1880 var enn eitt ár í að Alþingishúsið risi.

1880 voru íbúar Chicago 299 þúsund en eru tæpar 3 milljónir í dag.

Flokkar: Óflokkað

Frost í helvíti

14.8 2009 | 2 athugasemdir

Af gefnu tilefni er rétt að minna á að Hel er ekki einungis afkvæmi Loka og Angurboðu sem Óðinn kastaði niður í Niflheim þar sem hún skyldi ríkja yfir undirheimum heldur gengu hinir köldu undirheimar einmitt undir nafninu Hel þar ævinlega ríkti mikill kuldi.

Það kann því vel að vera að Helvíti sé þegar gaddfrosið.

Flokkar: Óflokkað

Stelpurnar okkar

13.8 2009 | Engar athugasemdir

Var að koma af frumsýningu á heimildarmynd um íslenska kvennalandsliðið. Í myndinni er liðinu fylgt eftir í undankeppni um sæti á EM 2009 sem er besti árangur sem íslenskt landslið í fótbolta hefur náð.

Saga um sigra og töp, gleði og sorgir en umfram allt um einstaklega jákvæðan og þrotlausan baráttuanda sem ég vona svo sannarlega að smiti alla þjóðina. Ekki veitir af. 

Flott mynd um frábært lið. Til hamingju stelpur!

Flokkar: Óflokkað

Smá borgarahreyfing

13.8 2009 | 8 athugasemdir

Síðasta útspil þess flokks sem óverðskuldað telur sig skilgetið afkvæmi búsáhaldabyltingarinnar er að reyna að þvinga einn af þingmönnum sínum til afsagnar af því hann er ósammála hinum þremur.

Það sem Þráin og þremenningana greindi á um er atkvæðagreiðsla um tillögu um umsókn Íslands að ESB. Eins og flestum er í fersku minni var lína Borgarahreyfingarinnar í þessum efnum afar skýr – það átti vitaskuld að sækja strax um, fá samninginn á borðið og greiða svo atkvæði um niðurstöðuna.

Þremenningarnir í Borgarahreyfingunni ákváðu hins vegar að nota þetta kosningaloforð sitt sem efni í algerlega óforskömmuð pólitísk hrossakaup. Þegar tilboði þeirra var hafnað enduðu þremenningarnir á að taka afstöðu gegn ítrekuðum loforðum til kjósenda sinna í þessu máli.

Ítrekað hefur einn þremenninganna látið hafa eftir sér fullyrðingar um „hefðbundið ofbeldi“ ríkisstjórnarinnar gagnvart þingmönnum stjórnarflokkanna. Það er því í meira lagi athyglisvert að sami þingmaður skuli taka þátt í að senda flokki sínum ályktun þar sem m.a. þessi málsgrein kemur fyrir:

Til þess að vinna þessum stefnumálum Borgarahreyfingarinnar fylgi á Alþingi er mikilvægt að þinghópurinn sé heill og óskiptur. Það liggur því beinast við að Þráinn kalli þegar í stað inn varamann í sinn stað og taki sér sjálfur góðan umhugsunarfrest um framtíðaraðkomu sína málefnum borgarahreyfingarinnar.

Hvar er nú umburðarlyndið fyrir sannfæringu þingmannsins sem þremenningarnir vilja burt? Að ekki sé spurt um virðingu þeirra fyrir loforðum hreyfingarinnar til kjósenda sinna.

Ég fagnaði því þegar borgarahreyfingin ákvað að bjóða fram til Alþingis. Mér fannst það bera vott um heilbrigt lýðræði og held m.a.s. að ég hafi skrifað upp á lista því til stuðnings að hreyfingin fengi að bjóða fram. Oft hafa lítil framboð velt þungum pólitískum hlössum s.s. Bandalag jafnaðarmanna og Kvennaframboð víða um land og markað með starfi sínu djúp spor í rétta átt. Breytt farvegi hinna pólitísku sjónarmiða.

Þrátt fyrir fögur fyrirheit og án efa margt afbragðs fólk innan hreyfingarinnar hafa hinir samstilltu þremenningar náð að gera borgarahreyfinguna að öllu því sem átti að berjast gegn; pólitískum hrossakaupum, sviknum kosningaloforðum, hroka, tækifærismennsku og nú „hefðbundið ofbeldi“ gagnvart félaga sínum á þingi.

Flokkar: Óflokkað

Meira um oflátungshátt og minnimáttarkennd

12.8 2009 | 3 athugasemdir

Það er ánægjulegt að einhver stjórnmálamaður skuli leggja orð í belg um hinar undirliggjandi ástæður þess að svona er komið fyrir okkur Íslendingum. Einar K Guðfinnsson skrifar um oflátungshátt og minnimáttarkennd Íslendinga og biður fólk að fara ekki öfganna á milli, frá hinu fyrra yfir í hið síðara.

Efnislega er hann að vara við erlendum sérfræðingum sem við þurfum ekki á að halda. Þar hefur hann nokkuð til síns máls. Það eitt að maður sé útlendingur tryggir ekki ráðgjöf hans sé góð. Það getur þó verið mikilvægt, ekki síst í fámennu kunningjasamfélagi, að fá einhvern sem ekki hefur hagsmuna að gæta og getur séð hlutina með hinu glögga gestsauga.

Það sem vantar í færslu Einars eru hins vegar þau alkunnu sannindi að oflátungsháttur og minnimáttarkennd eru tvær hliðar á sama peningi. Það þarf ekki djúpsálarfræði til að sjá að þjóð sem hefur sífellda þörf fyrir að vera talin sterkust, fegurst, gáfuðust, duglegust og hamingjusömust í heimi er með minnimáttarkennd. Og reyndar að ástæðulausu, eins og oftast er raunin.

Ég veit ekki hvaðan hún er sprottin þessi þörf fyrir að vera „Best í heimi“ eins og segir í Thule auglýsingunum (sem hitta beint í mark einmitt af því þær snerta þennan viðkvæma streng). Er ekki bara verðugt markmið að vera góð þjóð? Að það sé gott að búa á Íslandi af því þar er gott samfélag, vel menntað fólk, glæpatíðni lág, landið fallegt, loftið hreint o.s.frv.? Er það ekki farsælla?

Best í heimi – all the beutiful women in Iceland

Flokkar: Óflokkað