Dofri Hermannsson

Virkjum hausinn – Verndum náttúruna

Færslur fyrir: júlí 2009

Borgarstjóri náði næsta vagni

16.7 2009 | 9 athugasemdir

Það góða við strætó er að þótt maður missi af vagni kemur yfirleitt annar skömmu síðar. Hve skömmu síðar er að vísu sífellt deilumál þeirra sem eru hlynntir og á móti strætó. Altént gerðust þau ánægjulegu tíðindi á fundi borgarráðs í dag að borgarstjóri náði næsta vagni í stóra strætómálinu svo að segja.

Þar nýtti hún sér það tækifæri sem henni var rétt af Umhverfis- og samgönguráði og tók til baka vonda ákvörðun um of ströng skilyrði fyrir endurfjármögnun Strætó bs. Ákvörðun sem hún hafði tekið ein á fundi úti í bæ með bæjarstjórum nágrannasveitarfélaganna.

Þessu ber að fagna og eins ber að hrósa borgarstjóra fyrir að skipta um skoðun á málinu. Það geta öllum orðið á mistök en það hafa ekki allir það þrek sem þarf til að játa mistök sín og bæta fyrir þau.

Hér er samþykkt borgarráðs um málið:

Borgarráð tekur undir samþykkt umhverfis- og samgönguráðs um endurfjármögnun Strætó og þær áherslur sem fram koma í samþykktinni og því minnisblaði sem lagt var fram samhliða.  

Borgarráð tekur einnig undir þá samþykkt umhverfis- og samgönguráðs að samþykkja ekki þær leikreglur sem fylgja tillögu um endurfjármögnun eins og þær liggja fyrir.  Fjármál Strætó bs og almenn stefnumótun um þjónustu fyrirtækisins verða skoðuð samhliða þeirri  heildarendurskoðun stofnsamþykkta og eigendasamkomulags Strætó bs sem stjórn SSH hefur lagt til.  Borgarráð telur að sú endurskoðun sé forsenda endurfjármögnunar fyrirtækisins og þess að góð sátt náist um öflugan framtíðarrekstur þessa mikilvæga samgöngumáta á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt setur borgarráð þann fyrirvara við samþykkt um endurfjármögnun að samningar takist við lánastofnanir um ásættanleg kjör.

Til að tryggja að sjónarmið og áherslur Reykjavíkurborgar verði sem best tryggð við heildarendurskoðun málefna Strætó, samþykkir borgarráð að skipa þverpólitískan starfshóp borgarfulltrúa til að halda utan um stefnu og áherslur Reykjavíkurborgar í þeirri vinnu.  

Flokkar: Óflokkað

Borgarstjóri missir af strætó

14.7 2009 | 4 athugasemdir

2. júlí var lögð fram í borgarráði tillaga um endurfjármögnun Strætó bs. Í henni fólst að sveitarfélögin sem eiga Strætó bs. (og skuldir þess) taka yfir hluta skuldana að uppfylltum vissum skilyrðum. Skilyrðin eru afar ströng og krefjast þess í raun að fyrirtækið mæti allri hækkun launa, olíu og annarra aðfanga fyrirtækisins næstu fimm árin með því að skera niður þjónustu og hækka fargjöld. Samfylkingin í borgarráði krafðist þess að málinu yrði frestað og það kynnt ítarlega fyrir kjörnum fulltrúum.

Þessa tillögu hafði borgarstjóri samið ásamt bæjarstjórum hinna sveitarfélaganna á höfuðborgasvæðinu á fundi í SSH (samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) úti í bæ. Þar tók sig upp gamaldags, miðstýringarárátta sem við mörg þekkjum frá fyrri stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins í borginni því með þessu vinnulagi sniðgekk borgarstjóri Umhverfis- og samgönguráð sem fer með stefnumótunarvald í samgöngumálum. Það var óheppilegt af þremur ástæðum:

  1. vinnubrögðin voru ólýðræðisleg
  2. faglega þekkingu skorti
  3. niðurstaðan var vond

Að beiðni undirritaðs var haldinn aukafundur í Umhverfis- og samgönguráði um málið í dag. Í ráðinu hefur verið einhugur um þessi mál í öllum meginatriðum allt kjörtímabilið – eða síðan Sjálfstæðisflokkur þurfti að láta af ábyrgðarlausri stjórnarandstöðu og axla ábyrgð á málaflokknum. Það kom því ekki á óvart að á fundinum var einróma samþykkt bókun sem fól í sér eftirfarandi:

  1. Ítrekað var mikilvægi Strætó bs við að hrinda í framkvæmd samgöngustefnu borgarinnar
  2. Eindregið var mælt með yfirtöku skulda fyrirtækisins til að rétta við rekstur þess
  3. Því var afdráttarlaust beint til borgarráðs að samþykkja ekki þau íþyngjandi skilyrði sem tillagan felur í sér

Það ber að þakka fulltrúum Samfylkingarinnar fyrir að standa vaktina og krefjast frestunar á þessari miðstýrðu og meingölluðu tillögu í borgarráði 2. júlí sl. Eins ber að þakka fulltrúum meirihlutans í Umhverfis- og samgönguráði fyrir þann pólitíska kjark að taka sér stöðu með minnihlutanum og gefa borgarstjóra sínum kurteislega tækifæri til að endurskoða vanhugsaða tillögu.

Vonandi verður hlustað á einróma leiðbeiningar fagráðsins í borgarráði á fimmtudaginn kemur.

Flokkar: Óflokkað

Leyndarmál á Laugavegi

3.7 2009 | 3 athugasemdir

Þetta er best geymda leyndarmál Laugavegarins, ekki síst á svona fallegum degi. Góðir Reykvíkingar, hellið upp á kaffi, smyrjið brauð, setjið ásamt ávöxtum og fleiri drykkjum að eigin vali í körfu. Grípið teppi og góðan reyfara með ykkur á leiðinni út og eyðið svo því sem eftir er dagsins hér:

Það er búið að tyrfa og helluleggja Hljómalindarreitinn - tilvalið fyrir lautarferð!

Það er búið að tyrfa og helluleggja Hljómalindarreitinn - tilvalið fyrir lautarferð!

Flokkar: Óflokkað

Hvalreki í Reykjavíkurhöfn!

2.7 2009 | Ein athugasemd

Rannveig Grétarsdóttir hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu verður gestur minn í Fimmtudagssíðdegi – ráðlögðum vikuskammti af bjartsýni – á Útvarpi Sögu á milli kl. 5 og 6 í dag.

Hún mun segja okkur frá ævintýralegum vexti fyrirtækisins en á 8 árum hefur fjöldi gesta í hvalaskoðun hjá fyrirtækinu vaxið úr 2.500 í 55.000. Rannveig telur að Elding sé með hátt í helming viðskipta í hvalaskoðun í landinu sem þýðir að yfir 100.000 ferðamenn eru að nýta sér þessa þjónustu.
Sannkallaður hvalreki fyrir ferðaþjónustuna í borginni!

Rannveig mun í þættinum í dag spjalla um mikilvægi þessarar nýju greinar fyrir ferðaþjónustuna í borginni, tilrauninni sem nú stendur yfir með að nota vetni í staðinn fyrir olíu á hvalaskoðunarskip og þeirri ógn sem hvalaskoðun stendur af hvalveiðum á Faxaflóa.

Hlustendur munu fá að hringja inn og leggja spurningar fyrir Rannveigu eða gott til málanna. Missið ekki af ráðlögðum vikuskammti af bjartsýni með yðar einlægum á Útvarpi Sögu milli 5 og 6 síðdegis í dag.

Flokkar: Óflokkað