Færslur fyrir: júní 2009
Veist þú hvað þær eru margar verslanirnar á milli Rauðarárstígs og Garðastrætis þar sem íslenskir hönnuðir selja sína eigin hönnun? Veist þú hvað hönnun á Íslandi veltir árlega eða hvaða upphæð útflutningur á íslenskri fatahönnun nemur á ári í milljörðum talið?
Þær Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður og borgarlistamaður og Þórey Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar munu sjá útvarpshlustendum fyrir ráðlögðum vikuskammti af bjartsýni í þættinum Fimmtudagssíðdegi með Dofra Hermannssyni á milli 5 og 6 á Útvarpi Sögu á morgun. Missið ekki af því!
Úr upphafskafla Draumalandsins eftir Andra Snæ Magnason:
Leigubílstjórinn: Á hverju eigum við eiginlega að lifa? Hvar endum við ef fólk hafnar öllum framförum? Hvað á allt þetta fólk að gera? Við verðum að lifa á einhverju?
Skáldið: Menn hljóta að skapa sér tækifæri ef þeir læra það sem þeir hafa áhuga á.
Leigubílstjórinn: Já, og gera eins og frænka mín sem fór til Danmerkur að læra hönnun!
Skáldið: Já til dæmis.
Leigubílstjórinn: Lifir maður á hönnun? Hvernig á fólkað fá peninga til að kaupa alla þessa hönnun? Á hverju á allt þetta fólk að lifa? Þið eruð ekki í neinum tengslum við raunveruleikann!
Flokkar: Óflokkað
Kannski vissi Þór Saari, sjálfskipaður sonur búsáhaldabyltingarinnar, ekki hvernig í pottinn var búið þegar hann frétti af manni sem hefði misst allt sitt til bankans og ætlaði að rífa húsið með beltagröfu í mótmælaskyni. En hann var fljótur á staðinn og lét mynda sig með spýtnabrak úr húsinu sem hann segir tákna efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar.

Hafi Þór ekki vitað það þá á hann altént að vita núna að fjárhagsleg staða beltagröfumannsins var honum sjálfum að kenna. Ríkisstjórnin og efnahagsstefna hennar hafði akkúrat ekkert með hana að gera. Beltagröfumaðurinn var í þeim bissness að flytja inn hús eins og það sem hann reif og þrátt fyrir mikla uppgangstíma undanfarin misseri fórst honum bissnessinn það illa úr hendi að hann skilur eftir sig svik við viðskiptavini sína upp á margar milljónir.
Samkvæmt þessari frétt á visir.is hefur Þór Saari nú hengt spýtnabrakið upp á vegg í þingflokksherbergi Borgarahreyfingarinnar. Annað hvort kann hann ekki að skammast sín eða það sem verra er – hann finnur ekki hjá sér neina þörf fyrir það.
Það er slæmt að nú þegar sannarlega þarf á samstöðu að halda um erfiðar ákvarðanir til að rétta við efnahag landsins skuli stjórnarandstaðan helst sjá sóma sinn í sýndarmennsku og loddaraleik. Upphrópunum um landráð, svikabrigsl um leynimakk sem enginn fótur reynist svo fyrir. Úlfur, úlfur!
Afraksturinn er aukið vantraust allra gagnvart öllum. Og kannski mynd af ásakendum í blaði eða nokkrar sekúndur í sjónvarpi. Örlítið feitari púki á fjósbitanum. Kannski finnst þeim það þess virði. Veggskraut þingflokks Borgarahreyfingarinnar bendir til þess.
Flokkar: Óflokkað
Ein af ástæðunum fyrir því að ég fór út í pólitík var að það var stungið svo eftirminnilega upp í mig í pólitískum umræðum í samkvæmi hjá vinafólki. Ég hafði látið móðan mása um allt sem að var í samfélaginu og þó mest um spillingu, dugleysi og skammsýni stjórnvalda. Þegar ég gerði örlítið hlé á ræðu minni spurði kunningjakona, dóttir þekktrar stjórnmálakonu, mig þessarar einföldu spurningar: „Nú ef þú ert svona óhress með þetta af hverju breytirðu því þá ekki?“ Hvílík ósvífni!
„Það er ekkert hægt, flokkarnir er eins og allir vita lokaðar valdaklíkur og lýðræðið einn alsherjar kolsvartur brandari.“ Eitthvað í þessa áttina stundi ég upp til að afsaka svartagallsrausið. En þetta sat í mér, ég fann að þetta var hárbeitt athugasemd. Ég ákvað að snúa gagnrýninni upp í hugmyndir að því sem væri hægt að gera og fann að það voru ýmsar leiðir til að breyta því sem maður er óánægður með.
Síðan eru komin tæp 4 ár, í borgarstjórn hafa 4 nýir meirihlutar verið myndaðir, tvisvar er búið að kjósa til Alþingis og mynda 3 nýjar ríkisstjórnir. Efnahagskerfið er hrunið, atvinnulífið stendur höllum fæti, gjaldþrot blasir við mörgum og velferðarkerfinu er ógnað af bágri stöðu ríkisins. Það er sannarlega nóg af tilefnum til að bölsótast – og margir sem nýta sér það! Helvítis fokking fokk! stendur upp úr öðrum hverjum manni.
En ég er kominn með nóg af þeim söng. Rétt eins og kunningjakona mín forðum spyr ég nú hinnar ósvífnu spurningar – hvað ætlar þú að gera? Hvernig er hægt að snúa gagnrýninni upp í tillögur að úrbótum?
Ert þú með hugmyndir að nýrri atvinnustarfsemi? Jafnvel eitthvað sem aflar gjaldeyris eða sparar hann? Veist þú hvernig væri hægt að spara í heilbrigðiskerfinu án þess að skerða þjónustu? Dettur þér eitthvað í hug sem er hægt að gera til að gefa öllum börnum kost á íþróttastarfi eða tónlistarnámi óháð efnahag? Kanntu góð sparnaðarráð fyrir heimilin í landinu?
Ef þú ert með góðar hugmyndir sem þú vilt segja frá, eða vilt heyra góðar fréttir af öðru fólki og þeirra hugmyndum, skaltu hlusta á Fimmtudagssíðdegi með Dofra Hermannssyni – ráðlagðan vikuskammt af bjartsýni – á Útvarpi Sögu á milli kl. 5 og 6 í dag.
Í þáttinn í dag mæta tveir gestir. Annar er Eyþór Ívar Jónsson framkvæmdastjóri Klaks sem er Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífisins en hann mun segja okkur frá fjölda nýrra fyrirtækja og starfa sem hafa skapast á síðasta ári í Viðskiptasmiðju Klaks – hraðbraut nýrra viðskiptahugmynda. Hinn gesturinn er Einar Örn Benediktsson tónlistarmaður og frumkvöðull en hann ætlar meðal annars að tala við okkur um gildi skapandi hugsunar fyrir atvinnulífið.
Í síðari hluta þáttarins verður hlustendum boðið að hringja inn og koma með góðar ábendingar eða spurningar. Hafið stillt á Útvarp sögu á milli kl 5 og 6 í dag og nælið ykkur í ráðlagðan vikuskammt af bjartsýni.
Flokkar: Óflokkað
Ef einhver skyldi vilja taka sér örlítið frí frá niðurdrepandi fréttum af skuldum Íslendinga, spillingu, barsmíðum og ránum kryddað með fréttum af fjöldamorðum hryðjuverkamanna í útlöndum þá er tækifærið í dag.
Á milli kl. 5 og 6 á fimmtudögum í sumar verður yðar einlægur með þátt á Útvarpi Sögu fm 99,4 þar sem sagðar verða góðar fréttir af atvinnu- og umhverfismálum og fleiru sem til framfara horfir. Í hvern þátt munu koma gestir sem hafa sérþekkingu á því sem verið er að ræða t.d. frumkvöðlar í sprotafyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum sem geta sagt hlustendum hvernig þeim tókst að gera sínar hugmyndir að raunveruleika.
Í þennan 1. þátt mæta tveir góðir gestir, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Ólafur B Schram forsvarsmaður Icelander Tours. Katrín er með atvinnu- byggða og ferðamál á sinni könnu en á þessum sviðum er margt gott að gerast. Ólafur á það sammerkt með mörgum öðrum að hafa fyrir nokkrum árum byrjað að bjóða upp á þjónustu við ferðamenn með mjög litlum tilkostnaði.
Náðu þér í ráðlagðan vikuskammt af bjartsýni í þættinum Fimmtudagssíðdegi með Dofra Hermannssyni á Útvarpi Sögu FM 99,4 í dag milli 5 og 6.
Flokkar: Óflokkað
Þessi frétt á visir.is er tímanna tákn. Í sumarlöndum Kaupþingsmanna vestur á Mýrum hefur varðveist fé sem hafði verið afskrifað. Eins og fréttin ber með sér hefur féð ekkert ávaxtað sig líkt og oft mun vera raunin með fé án hirðis. Á hinn bóginn hefur það sloppið við að virði þess væri uppfært, núvirt og lán tekið út á framtíðarhagnað þess. Eins og annað fé án hirðis (s.s. sparisjóðir sem ekki náðist að hlutafélagavæða) er það því enn til – og fundið fé!
Flokkar: Óflokkað
Rétt í þessu lauk kosningu í borgarráð en borgarráð er í raun framkvæmdaráð borgarinnar. Þar eru flestar ákvarðanir til lykta leiddar en svo valdamikið er þetta ráð að í raun starfa öll fagráð borgarinnar í umboði borgarráðs. Borgarráð er semsagt aðalráðið, fyrir utan fundi í sjálfri borgarstjórn.
Samfylkingin á tvö sæti í borgarráði og kaus karl og konu sem aðalmenn enda mikilvægt að í þessu valdamesta ráði borgarinnar séu viðhorf beggja kynja jafn hátt skrifuð. Vinstri græn eiga eitt sæti í borgarráði og settu í það sinn fyrsta mann sem er karl.
Sjálfstæðis- og framsóknarflokkur eiga hins vegar fjögur sæti í borgarráði og kusu karla í þau öll. Niðurstaðan er sú að í borgarráði sitja nú 6 karlar og ein kona.
Þess má í leiðinni geta að 14. maður á lista B-listans í kosningum 2006 og starfandi formaður Orkuveitu Reykjavíkur var um leið kosinn varamaður í borgarráð en fram til þessa hafa engir verið taldir kjörgengir í þessa valdastofnun borgarinnar nema borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar.
Með þessari breytingu hefur B-listinn slegið nýtt met í lýðræðishalla þegar 14. maður á lista, sem hlaut tæp 7% atkvæða í síðustu kosningum, er kominn með aðgang að valdamesta ráði borgarinnar.
Viðbót: Nú er lokið kosningu í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur þar sem eina konan í stjórn er annar fulltrúi Samfylkingarinnar.
Flokkar: Óflokkað