Færslur fyrir: maí 2009
Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag lagði Samfylkingin fram tillögu á síðasta fundi í Umhverfis- og samgönguráði um lokun á hluta Laugarvegar fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum í tilraunaskyni. Þetta hefur verið gert í Pósthússtræti með ágætum árangri og því tilhlökkunarefni að sjá hvort ekki verður hægt að ná upp sömu góðu stemningunni í aðalverslunargötu og hjarta borgarinnar – Laugaveginum.
Í Fréttablaðinu var líka rætt við verslunareiganda við Laugaveginn sem tók vel í hugmyndina en fannst skorta á samráð um tillöguna. Þarna er líklega um einhvern misskilning að ræða því í tillögutexta er beinlínis lagt til „að leita samstarfs við verslunareigendur við Laugaveg um að loka götunni fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum í sumar í tilraunaskyni“. Enda væri annað fráleitt.
En hér er sem sagt tillagan ásamt greinargerð fyrir þá sem áhuga hafa á.
Tillaga:
Umhverfis- og samgönguráð samþykkir að leita samstarfs við verslunareigendur við Laugaveginn um að loka götunni fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum í sumar í tilraunaskyni. Í þessu sambandi verði kannaður möguleiki á að góðviðrisstrætó gangi upp og niður Hverfisgötu á meðan á lokun stendur til að koma til móts við þá sem eiga erfitt með að ferðast gangandi.
Greinargerð:
Lokun Pósthússtrætis á góðviðrisdögum hefur mælst vel fyrir og ekkert er því til fyrirstöðu að færa sér þá reynslu í hag til að bæta borgarbrag og auka á góðviðrisstemningu víðar í miðborginni. Þannig mætti hugsa sér að í tilraunaskyni yrði Laugavegi lokað frá hádegi til síðdegis á kafla, t.d. frá Klappar- eða Frakkastíg að Lækjargötu (Bankastræti meðtalið), í samráði við verslunareigendur.
Bílastæðahús eru við Hverfisgötu gegnt Þjóðleikhúsi, við Bergstaðastræti næst Skólavörðustíg, á Stjörnubíóreit og víða í nágrenni Laugavegar er að finna bílastæði fyrir þá sem vilja koma akandi í miðbæinn. Þá ganga flestar leiðir Strætó bs annað hvort að Hlemmi eða Lækjartorgi.
Reynsla borgarbúa af lokun Laugavegar fyrir bílaumferð, t.d. á Þorláksmessu í tengslum við ýmsa menningarviðburði er góð og líklegt að slík lokun, hluta úr góðviðrisdögum í sumar muni enn auka á aðdráttarafl þessarar helstu verslunargötu miðbæjar Reykjavíkur.
Svo má til gamans geta þess að hin frábæra göngugata Strikið var að sjálfsögðu alls ekki alltaf göngugata. Það var svo ekki síst fyrir vilja verslunareigenda við götuna að hún var gerð að göngugötu enda mun betra fyrir viðskiptin.

Flokkar: Óflokkað
Í gær var fundur Umhverfis- og samgönguráðs og þar lagði Samfylkingin fram eftirfarandi tillögu:

Umhverfis- og samgönguráð samþykkir að ráðast nú þegar í sérstakt borgarhjólaátak sem miðar að því að sjá vegfarendum í miðborginni fyrir litríkum borgarhjólum í sumar. Lögð verður áhersla á fá notuð hjól, gefins eða á mjög lágu verði, lagfæra þau, gera upp og mála. Verkefnið verði unnið í samráði við Vinnuskólann og/eða Hitt húsið með það í huga að ungmenni fái vinnu við að gera við og viðhalda borgarhjólum Reykjavíkur í sumar.
Greinargerð:
Í mörgum erlendum borgum er vegfarendum boðið að nýta sér almenningshjól sem samgöngutæki. Víða er þetta fyrirkomulag orðið mjög þróað og farið að skila miklum árangri. Þar er um stöðluð hjól að ræða og greiðslufyrirkomulag fyrir notkun á hjólunum alsjálfvirkt. Ljóst er að þótt Reykjavíkurborg vildi stefna í þá átt verður slíkt fyrirkomulag ekki sett upp á örfáum vikum.
Hins vegar ætti að vera vel gerlegt að bjóða upp á áberandi borgarhjól með þeim hætti sem hér er lagt til, enda hafa slík verkefni oft verið undanfari þróaðra skipulags á borgarhjólum í erlendum borgum.
Afgreiðslu tillögunnar var frestað eins og oft er gert með góðar tillögur minnihlutans. Ég vona samt að meirihlutinn ákveði að slá til og samþykkja hana á næsta fundi ráðsins eftir 2 vikur.
Þá er þess skammt að bíða að við sjáum gesti og gangandi ferðast um á litríkum borgarhjólum í smásnatti í miðborginni. Ef reynslan af átakinu verður góð (eins og víðast hvar erlendis hefur verið raunin) er þróaðri útgáfa af borgarhjólakerfi vonandi næsta skref.
Flokkar: Óflokkað
Sumarið er tíminn, segir í þekktu dægurlagi og það má til sanns vegar færa að sumarið er einmitt tíminn þegar svo margt gerist í lífi ungs fólks. Það er tíminn þegar maður kynnist nýrri vinnu, tíminn þegar maður nýjum vinum og nýrri reynslu af ýmsu tagi, bæði jákvæðri og neikvæðri.
Nú eru aðstæður þannig að fjöldi ungs fólks verður án vinnu og með því hverfur stór hluti af þeirri jákvæðu reynslu sem vinnan færir. Það myndast tómarúm sem miklu skiptir að verði fyllt með einhverju jákvæðu. Það er sannarlega hægt því þótt launuð vinna sé af skornum skammti á með hugmyndaauðgi að vera hægt að búa til nóg af skapandi og skemmtilegum verkefnum.
Í þessari trú lagði Samfylkingin í borgarstjórn fram tillögu um „RÉTTA“ – átak í til að bæta úr skorti á skipulögðu tómstunda- og sjálfboðaliðastarfi á fundi borgarstjórnar sem enn stendur yfir þegar þetta er ritað.
Okkur til mikillar ánægju var tillögunni vel tekið af meirihlutanum og samþykkt að vísa henni til Íþrótta- og tómstundaráðs en formaður ráðsins tilkynnti að tillagan yrði tekin fyrir eins fljótt og því yrði komið við – sem er á morgun. Nafnið á átakinu er kannski ekki „RÉTTA“ nafnið en er einfaldlega andsæðuorð nafnorðsins „KREPPA“ sem allir eru búnir að fá sig fullsadda af. Það er okkar von að þetta sé „RÉTTA“ leiðin til að virkja athafnagleði, sköpunarkraft og frjótt hugmyndaflug framhaldsskólanema í sumar.
Tillagan gengur út á að setja upp miðstöðvar í sex hverfum borgarinnar þar sem ungu fólki á aldrinum 16 – 20+ verður boðið að taka þátt í og móta skipulegt tómstunda- og sjálfboðaliðastarf í sumar. Frístunda- og þjónustumiðstöðvar í hverju hverfi yrðu nánir samstarfsaðilar verkefnisins sem heyra myndi undir íþrótta- og tómstundasvið.
Ráðnir yrðu 6 verkefnisstjórar og 6 fagstjórar sem allir hafa reynslu af vinnu með ungu fólki. Verkefnisstjórar yrðu staðbundnir en fagstjórar myndu fara á milli starfsstöðva, koma hópavinnu af stað og leiðbeina hópunum í starfinu í sumar.
Til viðbótar við fagstjórana yrði farið fram á framlag í sjálfboðaliðavinnu frá ýmsum aðilum sem gefa myndu góð ráð og vinnuframlag á viðkomandi sviðum. Margvísleg verkefni mætti hugsa sér en til dæmis mætti nefna:
- tónlist – hljómsveitir, kammerhópar, götutónlist
- myndlist – listmálun, skúlptúrar, gjörningar, styttur bæjarins
- leiklist – götuleikhús, dans, grímuleikur, trúðanámskeið, stuttmyndagerð…
- íþróttir – streetball, bretta- og hjólafimi
- nýsköpun – starf þar sem ungt fólk getur komið með ferskar hugmyndir og fengið ráðleggingar frá fagaðilum s.s. Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Innovit, Viðskiptasmiðjunni…
- sjálfboðaliðastarf – fegra hverfin með því að mála yfir veggjakrot, gróðursetja, heimsækja eldri borgara t.d. í samvinnu við heimaþjónustu
Átakið yrði hugsað sem lotubundin verkefni í t.d. 5 vikur með uppskeruhátíð í lok hvors tímabils.
„RÉTTA“ átakið yrði kynnt sem sjálfboðaliðaátak þar sem Reykjavíkurborg leggur til ákveðið start en einstaklingar og fyrirtæki í öllum hverfum borgarinnar aðstoða með vinnuframlagi, efni og aðstöðu fyrir starfsemina.
Flokkar: Óflokkað