Skrifað á davidstefansson.is og Eyjuna þann 20. febrúar 2011.
Breytingar heima …
Það hefur lengi staðið til að gera breytingar á heimasíðunni www.davidstefansson.is. Til hennar var upprunalega stofnað fyrir tæpum tveimur árum þegar mig vantaði vettvang til að kynna mig inn í pólitískt vafstur. Upprunalegt útlit síðunnar var þessu marki brennt og nú hefur því verið breytt, svo ég geti stundað þarna almenn bloggskrif, en ekki bara um stjórnmál. Gamli vefurinn verður sýnilegur á undirsíðunni Stjórnmál, svo honum sé haldið til haga.
… og bless bless, Eyja!
Fyrir nokkru bauðst mér líka að blogga á Eyjunni, sem mér hugnaðist ágætlega á sínum tíma, enda Eyjan í töluverðu uppáhaldi sem einskonar millivefur, hlutlaus í pólitískum skilningi.
En nú eru breyttir tímar. Ég ætla ekki að hafa uppi stór orð um nýja eigendur Eyjunnar. Ég læt nægja að segja að mér líst illa á þessa blöndu af eigendum með skrautlega fortíð og loðnar tengingar við viðskiptaífið og eignarhald á Pressunni, Bleikt.is og Mona.is. Þótt á Eyjunni sé enn að finna marga ágætustu bloggara landsins dugir það ekki lengur til.
Þetta er því miklu fremur viðbragð við eignarhaldinu en nýja ritstjóranum, svo því sé haldið til haga.
Ég hef því notað þetta tækifæri og er að safna saman öllum bloggpistlum mínum á einn og sama staðinn – davidstefansson.is. Þar mun ég hér eftir blogga, en ekki á vefmiðlum útí bæ sem geta hvenær sem er fallið í hendur einhverra sem mér hugnast ekki.
Kosturinn við Eyjuna var augljóslega sá að þar var töluverð umferð – og vill maður ekki að sem flestir lesi það sem maður skrifar? En það verður bara að hafa það – ég treysti því að þeir sem yfir höfuð vilja fylgjast með skrifum mínum geri það með bókamerki eða RSS-áskrift. Sjálfur nota ég Blogggáttina mikið til að fylgjast með því sem fram fer á bloggsíðum.
Að þessu sögðu kveð ég Eyjuna og óska henni velfarnaðar og hvet lesendur þessarar síðu til að taka óspart þátt í skoðanaskiptum á kurteislegum nótum.
Davíð Stefánsson
2 Ummæli
Þín er sárt saknað félagi, ekki bara héðan og Einar að veslast upp neftóbakslaus.
Takk fyrir það, ég sný aftur í mars, en neftóbakslaus …
Rita ummæli