Þessi pistill er gefna tilefnið.
Steingrímur Snævarr Ólafsson fer mikinn í greiningarpistli á atburðum kvöldsins. Hann lýsir að mörgu leyti mínum eigin tilfinningum gagnvart Búsáhaldabyltingunni í janúar 2009 – sorg mótmælenda gagnvart stöðunni og því að þurfa að öskra og berja og jafnvel kasta eggjum; vanmáttartilfinning einstaklings gagnvart valdinu. Allt þetta upplifðu þær þúsundir Íslendinga sem mótmæltu í janúar 2009.
En Steingrímur gerir undarlega tilraun til að aðgreina atburði kvöldsins frá Búsáhaldabyltingunni.
Hér eru nokkrar tilvitnanir úr annars einlægum pistli:
„Þetta voru ekki háskólanemar, anarkistar og iðjuleysingjar, hvað þá byltingarsinnaðir kommúnistar. Nei, þetta var fjölskyldufólk. / / Þetta var fjölskyldufólk, sumir með börn, aðrir sem eiga líklega uppkomin börn. / / Þetta var „venjulegt fólk“! Hinn almenni borgari, ekki óróaseggurinn, skemmdarvargurinn, uppreisnarmaðurinn sem stjórnmálamenn geta kennt um ófrið í miðborginni. En auðvitað voru þeir þarna líka.“
Þetta fær mig til að velta því fyrir mér hvort Steingrímur hafi mikið farið niður á Austurvöll í janúar 2009. Þar stóð ég nefnilega í hópi sem var undarleg blanda af fólki úr öllum flokkum, af öllum stéttum, á öllum aldri og báðum kynjum. Þarna var fjölskyldufólk, konur sem gátu verið mæður mínar og aðrar sem hefðu getað verið ömmur mínar, karlar á aldur við pabba, unglingar og börn. Þarna var fullt af fólki sem ég þekki sem er verulega „seinþreytt til vandræða“, svo notað sé orðalag Steingríms úr pistli kvöldsins. Þar voru auðvitað margir aktívistar líka. Og skemmdarvargar, en þeir voru sem betur fer í miklum minnihluta.
- – -
Mér dettur ekki í hug að gera lítið úr þeim krafti sem safnaðist saman á Austurvelli í kvöld.
Mér dettur ekki í hug að andmæla því að mótmælendahópur kvöldsins hafi verið að vissu leyti öðruvísi samsettur en í Búsáhaldabyltingunni.
En að söguskoða Búsáhaldabyltinguna sem byltingu „óróaseggja, skemmdarvarga, uppreisnarmanna, byltingarsinnaðra kommúnista, anarkista, iðjuleysinga og háskólanema“ er einfaldlega rangt. Það vita allir sem mættu á Austurvöll í janúar 2009 að hópurinn náði til allra þjóðfélagshópa – nema þá helst til harðra aðdáenda Sjálfstæðisflokksins.
Einmitt það gerði Búsáhaldabyltinguna svo magnaða.
Davíð Stefánsson
24 Ummæli
Það sem var einmitt svo stórkostlegt við fundina á Austurvelli í aðdraganda búsáhaldabyltingarinnar var að þar var svo mikið af fólki sem maður hafði aldrei séð í mótmælum áður! Laugardag eftir laugardag!
Davíð – Ég var líka á Austurvelli flesta dagana sem mótmæli Búsáhaldabyltingarinnar stóðu sem hæst og ég er hjartanlega sammála Steingrími – skipting mótmælenda kvöldsins nú í aldri og þjóðfélagsflórunni allri var allt öðruvísi en þá. Skilti kvöldsins nú voru heldur ekki komin úr geymslu vinstri grænna á Suðurgötunni. Og svo það sé á hreinu – ég verð seint talin til hörðustu aðdáenda Sjálfstæðisflokksins.
bara svo það sé á hreinu nokkrir sem munu hafa talist hörðustu stuðningsmenn XD sóðu á Austurvelli veturinn 08-09 og hörmuðu villu síns vegar
Piff.. hver tekur mark á flokksdindli úr VG varðandi þessi mótmæli.
Guðrún Sig er alveg með þetta varðandi kröfuspjöldin.
Og NB ég verð, jafnt og Guðrún Sig, seint talinn í harðasta kjarna Sjálfstæðisflokksins.
Guðrún – auðvitað voru margir úr Vinstri-grænum í Búsáhaldabyltingunni, bæði ungliðar og eldri félagar. En að reyna að mála upp þá mynd að Búsáhaldabyltingin hafi verið bylting „óróaseggja, skemmdarvarga, uppreisnarmanna, byltingarsinnaðra kommúnista, anarkista, iðjuleysinga og háskólanema“ er bara söguskoðun sem ég get ekki fellt mig við. Það æxlaðist þannig í kvöld að ég fór niður á Austurvöll um tíuleytið. Þar sá ég fullvel að samsetningin var öðruvísi en árið 2009, enda nefni ég það sérstaklega í pistlinum mínum.
Ég vildi einfaldlega halda því til haga að þá, rétt eins og nú, var hópurinn fjölbreyttur og fjölskyldufólk var svo sannarlega til staðar árið 2009. Venjulega fólkið, sem sagt, sem Steingrímur talar um að hafi mætt í kvöld.
Gaman að vera kallaður flokksdindill. Það er málefnalegt – einmitt það sem við þurfum núna.
Steingrímur Sævar minnir svolítið á Sigmund Erni í bullinu. Afar hressandi. Vonandi sækir hann sér uppfærslu og fer að skrifa í bundnu máli. Þá verður gaman.
Ég blæs á þennan nýja sannleik Steingríms. Það var kveikt bál í gær, það voru brotnar rúður og skvett málningu, skyri og eggjum, það var barið á ráðherrabíla og það var nákvæmlega sama sambland af fólki eins og í gær.
Fyrir utan eitt: nasistanna sem fengu að vera þarna óárittir í illsku sinni og það er skammarlegt að þeim hafi veirð leyft að valsa þarna um óárittir.
Hörmuleg að efnilegt ungt fólk sé svona gjörsamlega blindað af flokkapólitík.
Það eru sjónarmið eins og koma fram í þessum pistli sem koma í veg fyrir raunverulegar breytingar í landinu.
Sófakommarnir tryggja óbreytt ástand. Þeir eru á valdi flokkshyggjunnar.
Dæmdir til að hafa alltaf rangt fyrir sér.
Vonandi kemst þessi ungi maður aldrei til áhrifa í þessu landi.
Lifi byltingin!
Sæll Davíð,
Þessi Nasistaáróðurs Ögmundar er svolítið kjánalegur þegar honum er snúið við er það ekki?
Tek undir með Agnari. Var þarna í gær rétt eins og í búsáhaldabyltingunni. Ég sá mikið af sama fólkinu, talsvert af nýju fólki en fannst ekkert minna hlutfall háskólanema, kommúnista og anarkista. Þeir voru á sínum stað eins og alltaf. Og það var gamalt fólk og millistéttarfólk hérna alveg eins og í búsáhaldarbyltingunni.
Og helvítis nasistarnir. Ég íhugaði að gera eitthvað í þessum fána en svo sá ég hann hverfa og fór heim. Það er eitthvað verulega óhuggulegt við að til sé fólk sem finnst í lagi að flagga slíkum viðbjóð.
Rósa er alveg með þetta.
Það er engin flokkshyggja hjá Sjöllum. Það er einmitt þessvegna sem 35% kjósa hrunflokk #1 samkvæmt skoðanakönnun eftir skoðanakönnun. Þetta er eins og trúarbrögð. Kókkassi í fyrsta sæti á lista Valhallar fengi 35%
Frábær mæting á Austurvöll leitt að nokkrir einstaklingar skuli ekki hafa látið það í friði að ráðast gegn lögregluni því að hún stóð sig vel og var ekki með óþarfa inngrip. Eitt skulum við hafa á hreinu að enginn flokkur er æðri öðrum og þeirra tími er liðinn fjórflokksræðið er búið að sýna hvað hægt er að gera rangt því ber þeim að víkja til hliðar og ný öfl koma til.
Ég er forvitinn: Hvaða nasistaummæli Ögmundar er verið að tala um?
Nasistar fengu ekkert ad gagna um oareyttir..herna er faninn rifinn nidur og væntanlega brenndur..
http://www.youtube.com/watch?v=FLpUM1clq5g
Sammála Steingrími Sævarri.
Millistéttin var fjölmennari í þessum mótmælum en þeim sem voru veturin 2008-2009.
Harðast kjarni þeirra sem voru í Búsáhaldabyltingunni og þeir sem höfðu sig mest frammi með ofbeldi og látum, voru nefnilega anarkistar, hard-core vinstrisinnar og iðjuleysingjar sem löngu hafa sagt sig úr lögum við samfélagið.
Ps. Eitt eiga þó Nazistar og hörðustu vinstrisinnar sameiginlegt, og það er andúð á Gyðingaríkinu Ísreal og gyðingum sem þar búa.
Þetta ætti að sameina þessa tvo hópa undir formerkjunum; „óvinur óvinar míns, er minn vinur“.
Ég mótmæli þessu harðlega hjá Braga Páls:
„Harðast kjarni þeirra sem voru í Búsáhaldabyltingunni og þeir sem höfðu sig mest frammi með ofbeldi og látum, voru nefnilega anarkistar, hard-core vinstrisinnar og iðjuleysingjar sem löngu hafa sagt sig úr lögum við samfélagið.“
Þá, rétt eins og í gær, var einhver hluti mótmælenda sem fór fram með ofbeldi eða grimmdarlegum tilburðum.
Ég rölti einn hring um Austurvöll í gærkvöldi og gat ekki séð mikinn mun á þessum mótmælum og árið 2009.
Bara allavega fólk.
2009 hitti ég nokkra (fyrrverandi?) Sjálfstæðismenn og núna ég hitti ég aðra Sjálfstæðismenn og nokkra Suðurnesjamenn.
Vinstra fólkið var líka þarna – fullt af þeim.
Skil ekki tilganginn með því að vera að reyna að halda að fólkið sem mótmæli nú sé á einhvern hátt eðlilegra eða „venjulegra“ heldur en þeir sem hafa gert það hingað til.
Mótmælin voru skiljanleg – þessi umræða um „venjulegt fjölskyldufólk“ er hinsvegar bæði ótuktarleg og ógeðfeld.
Þessi maður hlýtur að hafa verið fullur þegar hann skrifaði þetta.
Mér finnst merkilegt að engin minnist á þá staðreynd að mótmæli seinustu daga hafa verið langtum ofbeldisfullari en öll búsáhaldar byltingin, það er núþegar búið að brjóta fleiri rúður á örfáum dögum heldur en þá var gert á heilum mánuði. Hvaða fjölskyldufólk er það sem fleygir eggjum í presta, brýtur rúður og flaggar nasistafánanum einsog enginn sé morgundagurinn. Það er greinilegt að sjallarnir kunna ekki að mótmæla á friðsamlegan hátt, þrátt fyrir allt vælið sem þeir gáfu frá sér í janúar 2009. Samt sem áður þá mun ég mæta á næstu mótmæli og ekki láta þá eyðileggja fyrir mér.
Held að það fólk sem var ekki sjálft á mótmælunum 2009 ætti að fara varlega í það að fullyrða hvernig hópurinn sem mótmælti þá var samansettur. Anarkistar og ofbeldismenn þóttu einfaldlega ólíkt betra forsíðuefni en það fólk sem mætti með barnavagna, alveg sama hver hlutföllin voru.
Að sama skapi dettur mér ekki í hug að fullyrða neitt um samsetningu hópsins í gær þar sem ég upplifði þetta ekki sjálf, en miðað við það að í sjónvarpsútsendingunni sá maður fullt af sama fólkinu mótmæla og var þarna 2009 þá sýnist mér nú að þessir tveir hópar séu nú ekki jafn mikið svart og hvítt og margir vilja meina…
Mjög áhugaverður pistill – fannst einmitt áhugavert hvernig er verið að reyna að tengja mótmælin við flokkspólitík og staðalímyndir jafnvel þótt fóllk hafi almennt verið að mótmæla persónulegum aðstæðum almennt. Ég er vinstri sinnuð en samt ekki höll undir Vinstri græna og get alveg séð fullt af góðum hlutum sem sjálfstæðiflokkur hefur komið að. Ég mætti ekki í janúar og ekki í gær því eftir því sem ég hef lesið þá skiptir víst ekki miklu máli hvaða stjórn er á annað borð við völd þegar Alþjóðagjaldeyrisjóðurinn er komin að borðinu. Lesið ykkur til um Argentínu, Tæland, Honduras.. svo eitthvað sé nefnt og þar sjást svo lík dæmi og hjá okkur. Hins vegar álít ég jákvætt að fólk, hvaða flokkspólitík það fylgir, láti heyra í sér, og kannski erum við sem þjóð að læra að við getum haft meiri áhrif heldur hefur gengist hingað til í kostningum. Kannski var það þess vegna sem hópurinn var öðruvísi í gær að einhverju leiti – við erum meira meðvituð um mótmæli í dag. E.s. Er samt ekki fylgjandi ofbeldi í mótmælum – bara svo það sé á hreinu.
„Fyrir utan eitt: nasistanna sem fengu að vera þarna óárittir í illsku sinni og það er skammarlegt að þeim hafi veirð leyft að valsa þarna um óárittir.“
Nú er ég óhress með að þetta fólk hafi verið með nasistafána og var að flagga því á mótmælunum. Finnst það tilraun til að skemma þessi annars ágætu mótmæli.
En svona ummæli, „er skammarlegt að þeim hafi veirð leyft að valsa þarna um óárittir.“
Hvað átti að berja þessar smástelpur sem voru með fánann?
Hverskonar málflutningur er þetta?? þú virðist ekki vera minni öfgamaður sjálfur, en þessir „nýnasistar“.
Bíddu, á maður að vera með eitthvað „tolerance“ gagnvart nasistum, Gunnar? Einum ógeðfelldustu samansafni úrhraka mannkyns’
Og þetta voru engar smástelpur, þetta er fólk á svipuðum aldri og ég sjálfur, sumt yngra, eitthvað eldra svo ekki reyna að gera einhverja sakleysingja úr þessu óþverrapakki.
Rita ummæli