Ég er ekki að mótmæla á Austurvelli af þeirri einföldu ástæðu að ég vil ekki að núverandi ríkisstjórn fari frá. Fyrir tveimur árum lagði ég mig allan fram; þá vildi ég þáverandi stjórnarflokka burt.
Ég er hins vegar – núna – afar ósáttur við ýmislegt sem stjórnin hefur gert eða ekki gert.
Eitt af því er meðferðin á Landsdómsmálinu. Jóhanna Sigurðardóttir gerði eitt rétt í stefnuræðu sinni áðan. Hún hrósaði þeirri staðreynd að þingmannanefndin náði þverpólitískri niðurstöðu.
En hvað gerði Jóhanna sjálf? Hún talaði niður trúverðugleika nefndarinnar áður en kom að atkvæðagreiðslunni og gagnrýndi niðurstöðurnar harðlega.
Hafði það einhver áhrif? Til dæmis á félaga hennar úr Samfylkingunni? Auðvitað.
Það var stórkostleg hneisa að aðeins einn af fjórum ráðherrum hlaut ákæru fyrir Landsdóm. Sú niðurstaða var í boði þingmanna Sjálfstæðisflokksins – allir sem einn kusu þeir gegn ákærum – og þeirra þingmanna Samfylkingarinnar sem kusu gegn ákærum eða vildu kæra suma en ekki aðra.
Ég fann strax sama dag að það byrjaði að sjóða á fólki. Mótmælin í dag og á föstudaginn koma því síður en svo á óvart. Ég myndi ganga svo langt að segja þetta: Það væru engin mótmæli eða umtalsvert minni ef ekki hefði verið fyrir Landsdóms-klúðrið. Og þar ber Jóhanna Sigurðardóttir þunga ábyrgð.
Því miður, því henni hef ég alltaf borið mikla virðingu fyrir.
- – -
Ég er skíthræddur við að boða til kosninga núna fljótlega. Ekki af ótta við að minn flokkur, Vinstri-græn, fari illa út úr þeim kosningum. Ekki af ótta við að nýtt hálfkærings-framboð á borð við Besta flokkinn líti dagsins ljós. Þar ríkir þó (enn) almennur mannkærleikur.
Ég er hræddastur við öfgaöflin sem bíða handan við hornið. Það þarf ekki að vera vel menntaður í sagnfræði til að vita hvenær öfgafull þjóðernisöfl láta mest á sér kræla. Og kjöraðstæður fyrir uppgang þeirra eru í kaosinu, óttanum og reiðinni. Einmitt þannig aðstæður ríkja í samfélaginu, ekki síst í samhengi við umdeilda ESB-umsókn.
- – -
Og svona er nú rauntíminn og hraðinn: Á meðan ég skrifa þessa færslu póstar félagi minn á Fésbók þessari mynd:
Nasistafáni á Austurvelli? Þurfum við að ræða þetta eitthvað frekar?
Davíð Stefánsson
19 Ummæli
Já
Það er sorglegt að þú viljir ekki þessa ríkisstjórn burt
Þú hlýtur að sjá að ástandið í þjóðfélaginu er mikið verra nú en fyrir tveimur árum. Og hverjum er það að kenna? Flokknum sem var hent burt úr ríkisstjórn fyrir tveimur árum?
Eða flokkunum sem eru búnir að sitja í ríkisstjórn síðan?
Líttu í eigin barm. Sjáirðu nasistafána á Austurvelli þarftu ekki að velkjast í neinum vafa um hver það var sem skóp ástandið sem leyfir slíkum óþverra að þrífast …
Nýtt lýðveldi takk !
Frakkar eru nú með sitt fimmta og við með okkar fyrsta.
Nú þarf að breyta kerfinu en gallinn er að við höfum engan De Gaulle til að leiða okkur í átt til breytinga.
Ég held að það sé fullt fullt af fólki á Austurvelli sem vilji ekki kosningar, hvort sem sé þá það að það vill bara ýta á núverandi stjórn til að gera betur því það treystir henni þó betur en hinum flokkunum eða að það vill annað og meira en kosningar í ónýtu kerfi. Ég er á þeirri skoðun að það er ekki nóg að hræra upp í kássunni, það þarf að henda henni út og byrja upp á nýtt, kosningar verði til einskins og meira þurfi að koma til.
Vinstri grænir hafa valdið gríðalegum vonbrigðum.
Festu fiskveiðistjórnunarkerfið í sessi. Leiðréttu ekki vísitöluna og létu þannig eigið fé fólks brenna upp. Voru næstum því búin að klúðra Icesave stórfenglega áður en forsetinn reddaði þeim. Mér líður eins og Sjálfstæðisflokkurinn sé að leiða okkur út úr kreppunni svo mikil er hollustan við fjármálaöflin og lítil við almenning í landinu.
Ég er sammála Davíð og ósammála Hilmari.
Ekki kenna slökkviliðinu um þó það taki nokkurn tíma að ráða niðurlögum slíks stórbruna sem efnahagshrunið var. Það vita allir sem vilja að það tekur mörg ár að klára nýja byggingu á brunarústunum – og óhjákvæmilegt að einhverjir hljóti sár.
Nú gildir að láta ekki taka sig á taugum! Horfa bæðí á það sem áunnist hefur auk þess sem hefur ekki gengið sem skyldi.
Erst nú ekki vel að þér í sagnfræðinni ef þú sérð nasistafánan út úr þessari mynd, en eins og þú sagðir sjálfur varstu ekki að mótmæla. Sýnist vera hringur með kross (ekki hakakross) inní enda sérðu ekki strikin fara útfyrir hringin.
Nú víst að við erum búnir að tækla þetta. Þá vil ég segja að ótti, hefur verið í gegnum söguna það tæki sem valdamenn hafa beitt í því skyni að koma í veg fyrir breytingar. Því skyldi núna vera eitthver breyting á. Með fullri virðingu en þú byrjar að tala um öfgahópa, öfgaöfl í þjóðfélaginu, sem mögulega mundu komast til valda. Þetta er ekkert annað en að beita ótta. Íslendingar eru langt frá því að vera svo heimskir að þeir mundu falla fyrir slíku framboði.Það sem fólk vill sjá eru raunverulega framsetningu lausna við að vísu erfiðu verkefni. Við vitum sbr. skýrslunar að þetta er heimatilbúin vandi að hluta til. Það er engin að fara kenna múslimum eða öðrum þjóðfélagshópum um ósköpin eins og við þekkjum til í Usa og víða í Evrópu. (Kanski auðmannahópin, en til þess höfum við ákveðna málsmeðferð.) Eins og ég sagði fólk vill sjá aðgerðir ef alþingi getur ekki staðið undir því þá verður það að víkja.
Þá vill ég einnig minnast á það að amk af þeim sem ég hef talað við, ef þeir ættu að benda á öfgahópa þá væri það hópur innan VG í fyrsta lagi, bendi á málinu til stuðnings, þær aðgerðir sem þeir stóðu fyrir í búáhaldsbyltingunni, náttúruaðgerðasinnar og síðan en ekki síðst Feministafélag Íslands.
Úlfari má koma í skilning um að hakakrossinn er bannaður í Þýskalandi. Þetta er hið nýja tákn nasista þar.
Mér dettur ekki í hug að verja allar gjörðir ríkisstjórnarinnar. Til dæmis fannst mér alltof lítið gert í lýðræðisumbótum og eins og hugur hafi ekki alltaf fylgt máli í þeim efnum. Ég vildi líka sjá miklu ákveðnari skref stigin í kvótamálunum og AGS burt, svo eitthvað sé nefnt.
En ég styð þessa ríkisstjórn, heilt yfir, vegna þess að hún er að vinna með fáránlega erfitt verkefni og hefur gert margt gott. Og ég treysti engum betur í það.
Og ég gef lítið fyrir tal Hilmars um að ástandið sé verra núna en fyrir tveimur árum. Það er barnalegt að reyna að klína því á stjórnarflokkana að nasistafáninn blakti á Austurvelli. Ekki einu sinni mér dettur í hug að kenna hrunflokkunum um tilvist nasisma á Íslandi, þótt ýmislegt sé ég til í að kenna þeim um. Kommon.
http://www.crwflags.com/fotw/flags/qt-z_sym.html#cac
hér er staðfesting á því að um nasistafána er að ræða fyrir þa sem efast enn um það
Þakka fyrir þessa ábendingu Arngrímur, sá núna umfjöllunina á dv.is um þessa fána. Kemur samt sem áður ekki að sök, þar sem ég stórlega efast um að skipulagður öfgahópur á uppá borð með íslendingum, ef yrði af kosningum. Tel hann yrði afgreiddur á einfaldan hátt meðal almennings.
varðandi nýnasistatákn, fyrir þá sem hafa áhuga:
http://flagspot.net/flags/qt-z_sym.html
Kallinn minn það er ekki rétt að öfgaöflin bíði nú handan við hornið. Þau biðu handan við hornið í búsáhaldabyltingunni og hafa nú Fjármálaráðuneyti sjávarútvegsráðuneyti mennta- og menningarmálaráðuneyti,
ráðuneyti norrænna samstarfsmála,
dómsmála- og mannréttindaráðuneyti
samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti og umhverfisráðuneyti
Er þetta ekki ESB sendinefnd á leiðinni til Ögmundar?
Hver var tilgangurinn með því að kasta rannsóknarskýrslunni fyrir þingmannanefnd yfir höfuð? Það er ekki eins og alþingi sé vannýtt auðlind af hugviti og/eða sérfræðiþekkingu. Það þykja reyndar tíðindi ef fólk þar inni hefur lokið raunvísindagráðu eftir aldamótin.
Kæri Hrenni. Gangi þér vel með þessa söguskýringu. Gef ekki mikið fyrir það að allir ráðherrar VG séu öfgafólk – að minnsta kosti ekki í þeim skilningi sem ég legg í orðið.
Úlfar heldur nokkrum áhugaverðum punktum fram í athugasemd #8:
„Íslendingar eru langt frá því að vera svo heimskir að þeir mundu falla fyrir slíku framboði.“
Af hverju í ósköpunum ættu Íslendingar að vera gáfaðri en aðrar þjóðir? Í Svíþjóð fyrir nokkrum vikum komust nýnasistar inn á þing. Ætli þeir séu yfir meðallagi heimskir?
Ég er ekki að „beita ótta“ þegar ég viðra minn eigin ótta við öfgaöfl. Allt frá fyrstu dögum hrunsins hef ég verið meðvitaður um að hér gætu myndast kjöraðstæður fyrir öfgahópa – löngu áður en ég hóf störf fyrir VG.
Svo er kommentið þitt um öfgahópana Femínistafélag Íslands, náttúruverndarsinna og þá sem stóðu fyrir Búsáhaldabyltingunni svo skemmtilegt að ég ætla bara að brosa út í annað.
Ég er sammála þér Davíð og mér finnst gott að vita af þér í íslenskum stjórnmálum! Viltu halda áfram að minna íslendinga á hvað gerðist í Svíþjóð í síðustu kosningum (nokkuð sem svíar héldu að aldrei myndi gerast í góða Svíþjóð!)Það væri hræðilegt ef sama gerðist á Íslandi. Ég treysti á þig Davíð minn.
Rita ummæli