Ég sé hér og þar að hófstilltir og trúaðir vinir mínir hafa fullan skilning á tillögum mannréttindaráðs gegn trúboði í skólum. Það er jákvætt. Því þetta ekkert flókið mál – þeir sem hæst láta núna myndu urlast ef aðrir fengju að stunda sitt trúboð í eyru barnanna þeirra á skólatíma. Það þýðir heldur ekkert að [...]
Þessi pistill birtist á Smugunni þann 7. október 2010: Það æxlaðist þannig að mánuðinn minn á þingi í fyrra sat ég nálægt Ásbirni Óttarssyni og spjallaði töluvert við manninn. Hann var viðkunnanlegur og tók nýliðanum vel (enda hálfgerður nýliði sjálfur) og virkaði á mig sem fremur hófstilltur Sjálfstæðismaður og ekki líklegur til að hallast undir [...]
Þessi pistill er gefna tilefnið. Steingrímur Snævarr Ólafsson fer mikinn í greiningarpistli á atburðum kvöldsins. Hann lýsir að mörgu leyti mínum eigin tilfinningum gagnvart Búsáhaldabyltingunni í janúar 2009 – sorg mótmælenda gagnvart stöðunni og því að þurfa að öskra og berja og jafnvel kasta eggjum; vanmáttartilfinning einstaklings gagnvart valdinu. Allt þetta upplifðu þær þúsundir Íslendinga [...]
Ég er ekki að mótmæla á Austurvelli af þeirri einföldu ástæðu að ég vil ekki að núverandi ríkisstjórn fari frá. Fyrir tveimur árum lagði ég mig allan fram; þá vildi ég þáverandi stjórnarflokka burt. Ég er hins vegar – núna – afar ósáttur við ýmislegt sem stjórnin hefur gert eða ekki gert. Eitt af því [...]