Skip to content

Guð blessi byltinguna

ennþá

liggjum við í alþingisgarðinum

með hendur á lofti

klump í maga

grjót í hendi

og appelsínugulan borða

fyrir augum

byltingin fór fram

byltingin fór sínu fram

byltingin fór fram úr sér

fram úr mér og þér

og ennþá

liggur hjarta hennar

í dvala



3 Ummæli

  1.   Pétur Örn Björnsson skrifaði:

    Nályktina ferlegu leggur
    frá leiðtogum blindum.
    En hönd gyðjunnar heggur
    er hjartað í nýárs vindum,

    vaknar og púlsar
    ferskara en fyrr.

    18.12 2009 kl. | #
  2.   Pétur Örn Björnsson skrifaði:

    Undarlegt er súkkulaðiþamb ungliða VG
    þeirra sem láta éta sín eigin börn
    í boði frosinna höfuðskelja forustunnar
    á sama tíma
    já, í skinhelginni,
    á sama tíma
    og byltingin bíður og æpir óþolinmóð
    á Austurvelli.

    18.12 2009 kl. | #
  3.   Jón Þór skrifaði:

    Byltinginn snérist um að kommarnir sáu tækifæri til að komast að völdum. Þeir standa sig svo illa að það verður hægri stjórn framsóknar og sjálfstðismanna í 20 ár.

    18.12 2009 kl. | #

Rita ummæli

Netfangið þitt er ekki birt. Það er nauðsynlegt að fylla út í reiti merkta með *
*
*
Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og einum? Svar: